Æskan - 01.11.1971, Side 82
og gerði það Úrban páfi VIII. Er Péturskirkjan stærsta
guðshús kristninnar.
Kirkjan er 187 metra löng að innanmáli, þverskipið er
137 metrar og hæðin undir hvelfingunni 123 metrar. i
kirkjunni rúmast yfir 50.000 manns. Það er ómögulegt að
lýsa henni i stuttu máli eða segja frá öllum þeim lista-
verkum, sem í henni eru, bæði myndastyttum, veggmynd-
um, málverkum, tréskurði, útsaumi, gullvirki og silfurs og
eirs. Fjöldi af frægustu listamönnum heimsins, allt frá
Rafael og Michelangelo til Canova og Thorvaldsens hafa
unnið að skreytingu kirkjunnar. Geta verður sérstaklega
hins mikla líkneskis af Pétri postula, sem i kirkjunni er,
og stendur annar fóturinn ofurlítið fram af stallinum. Þenn-
an fót kyssa allir pilagrímar, sem í kirkjuna koma, og er
hann orðinn slitinn af öllum kossunum. Háaltari kirkjunnar
er 32 metrar á hæð og yfir þvi þaldakin á fjórum snúnum
Péturskirkjan í Róm
Þar sem einu sinni var hringleikahús Nerós keisara, og
svo margir kristnir menn liðu píslarvættisdauða fyrir óarga-
dýrum, lét Konstantín mikli keisari síðar reisa hina fyrstu
St. Péturskirkju, fyrir áskorun Silvesters páfa, og var gröf
Péturs postula mestur helgidómur þeirrar kirkju. i tíð þess-
arar kirkju stóð páfaríkið með mestum blóma. I þessari
kirkju tók Karl mikli við keisarakórónu sinni úr höndum
Leós III. og þar voru margir kelsarar miðalda krýndir síðar.
En smám saman hrörnaði kirkjubyggingin, svo að ákveðið
var að reisa nýja höfuðkirkju kaþólskunnar, og í páfatíð
Júlíans II. var hornsteinninn lagður að nýrri og risastórri
kirkju, þann 18. apríl 1506. Fyrsti meistari kirkju þessarar
var Bramante, en eftir dauða hans þeir Rafael, Sangallo
og Peruzzi, en verkinu miðaði mjög hægt. Frá 1546—64
hafði snillingurinn Michelangelo yfirumsjón með bygging-
unni og hann á heiðurinn af hvelfingunni á henni, sem var
stærri en nokkur kirkjuhvelfing, sem þá hafði verið byggð,
og jafnvel þó að siðar væri leitað. En svo hægt miðaði
byggingunni, að kirkjan var ekki vigð fyrr en 18. nóv. 1626
súlum úr ónyxsteini. Þar les páfinn sjálfur messu á mestu
hátíðisdögum kirkjunnar, en altarið stendur, samkvæmt
sögunni, á þeim stað, sem Pétur postuli var grafinn. Yfir
stiganum niður í grafhvelfingu postulans hangTr fjöldi silf-
urlampa, og í grafhvelfingunni eru varðveittir ýmsir þeir
munir, sem kaþólskir menn hafa mesta helgi á. —
Torgið fyrlr framan kirkjuna er meðal hinna tilkomu-
mestu í heimi. Er það sporöskjulagað, 273 metrar á lengd
en 240 á breidd. Á þvi miðju stendur 251/2 metra há stein-
súla frá Egyptalandi, sem Caligula keisari lét á sínum tíma
flytja frá Heliopolis. Efst á súlunni er gullinn kross, en I
honum er timburflis, sem kvað vera úr krossi Krists, en
sagan segir, að Helena, móðir Konstantíns keisara, hafi
fundið þessa flís ( Jerúsalem árið 327. Beggja vegna við
torgið er súlnaröð úr 284 dórfskum súlum, en á milli
þeirra eru 162 standmyndir ýmissa dýrlinga. Var þessi um-
gerð torgsins sett upp af Bernini árið 1667. En hjá kirkj-
unni stendur páfahöllin eða Vatíkanið, og eru þar tuttugu
bakgarðar, 200 stigar og 11.000 herbergi.
2. Þeytið rjómann og blandið eggjajrykkn-
inu saman við með liröðum handtökum.
ATH.: Uppskriftinni má skipta í tvo
liluta, áður en bragðefni eru látin í og
láta siðan t. d. kaffiduft i annan hlutann,
en súkkulaði i hinn. Ef geyma á isinn i
nokkra daga, er bezt að frysta í iokuðu
íláti. ís, sem nota á samdægurs, er gott
að frysta í kökuformi, eins og sést á
myndinni. Minnsti frystitimi er 2% klst.
Stingið hringmótinu snöggt i heitt vatn
til að ísinn losni.
80