Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 50
48
Brynjólíur hefir skráð eftir henni. Steinunn var fædd á
Þórustöðum i Ölfusi 1844. Hún var af Ölíusingakyni í
báðar ættir, dóttir Hannesar á Þórustöðum og Hvoli í
Ólíusi, Hannessonar á Hvoli, Hannessonar spítalahaldara
í Kaldaðarnesi, Jónssonar. Voru þeir Hannesar allir kvæntir
konum úr Ölfusi. Steinunn stóð þvi vel að vígi um sögur
og sagnir þaðan úr sveit, en var sjálf greindarkona, eins
og hún átti kyn tii. Er þessi vitnisburður því nokkurs virði,
þótt ungur sé. Óbein rök benda og miklu fremur til síra
Jóns Daðasonar en Þormóðar i Gvendareyjum. í fyrsta
lagi sver kvæðið sig sjálft fremur til 17. aldar en hinnar
18., eins og áður er sagt. í öðru lagi bendir uppruni hand-
ritanna eindregið til stöðva sira Jóns, þar sem fjögur hand-
rit af fimm, sem vitað er um skrifara að, eru einmitt úr
Árnessýslu, Ölfusi og Flóa, þar af þrjú handrit, sem hafa
kvæðið heilt. Loks kemur það einkar vel heim við það,
sem kunnugt er um sira Jón Daðason sjálfan, að hann
sé höfundur Draumgeisla. Hann var að visu lærður mað-
ur vel að hætti sinnar tíðar, en hjátrúarfullur í meira
lagi. Ber ljósastan vott um það kæra sú, er hann bar fram
á Bakkárholtsþingi 21. júní 1673 fyrir Jón sýslumann Vig-
fússon eldra, þar sem hann krafðist sóknar og lagadóms
um „það óguðlegt athæfi, sérstaklega ódyggð, ótrú og óholl-
ustu, flærð og fjölkynngi, sem hann og hans hafi hlotið
saklausir að liða langsamlega til meins og mikils skaða
í margt ár af galdra völdurn, ráðum og rökum eða sam-
tökum sinna heimuglegra óvina, trollfólki og þeirra með-
vitara“.') Utmálar hann þessar ásóknir með mörgum orð-
um, er komið hafi fram við sig og sitt fólk, en ekki nafn-
greinir hann þó þá eða þann, er hann hafði grunaðan um
verknaðinn. Eftir því sem til var stofnað í þessari kæru
síra Jóns, hefði þar án efa orðið úr ófagurt galdramál,
ef sýslumaður og meðdómsmenn hans hefðu ekki tekið
kærunni með gætn) og stillingu, sem leiddi til þess, að mál-
ið féll niður. Sýnir þetta, að síra Jón var í fullum mæli
1) Dómabók Jóns sýslumanns Vigfússonar í Þjóð-
skjalasafni.