Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 369
367
feðgar þóttu fjölkunnugir, t. d. Guðbjartur
flóki, séra Þorkell Guðbjartsson, Jón Magnús-
son á Svalbarði o. fl., og bendir það á fræða-
iðkanir ættarinnar.
Það tel ég naumast geta verið vafamál,
að séra Jón Jónsson gamli á Staðarhrauni,
sem varð 103 ára, hafi verið sonur Jóns Páls-
sonar, þess er átti Kálfafell ytra í Hornafirði
og bjó þar, að vísu á árunum 1587—1608 (Al-
þingisbækur V, bls. 316—17), og hefir Jón
Pálsson verið fæddur um 1525. Synir séra Jóns
gamla á Staðarhrauni áttu hluta af Kálfafelli,
þeir Páll, Jón og Narfi á Sigmundarstöðum í
Þverárhlíð (Alþb. VI, bls. 452, 473).x) En það
er víst, að faðir Jóns prests gamla á Staðar-
hrauni (f. c. 1550, d. 1653) var Jón Pálsson, og
hefir séra Jón gamli verið skyldur Lofti presti
á Staðarhrauni, síðar í Hítardal (d. 1595), syni
Narfa, er kemur við bréf vestur á Öndverðu-
eyri í Eyrarsveit 7. maí 1520 (D. I. XI, bls. 79;
sbr. D. I. VI, bls. 612—14), Loftssonar í Skóg-
arnesi (bréf 1486—8), Jónssonar. 1587 nefn-
1) Narfi á Sig-mundai'stöðum c. 1650 (d. c. 1690)
var faðir Margrétar (f. 1658), konu Guðmundar á Sig-
mundarstöðum 1703—1709-(f. c. 1656), Guðmundar-
sonar gamla á Hafþórsstöðum og Háreksstöðum (f.
1620, d. 1707, 87 ára), Guðmundarsonar (d. 1620),
Helgasonar lögréttum. á Hvítárvöllum, Vigfússonar,
Jónssonar í Norðtungu, er veginn var 1570, Grímsson-
ar á > Vatnshorni. — Sonur Guðmundar og Margrétar
Narfadóttur var Hjálmar (f. 1694, d. 1745), faðir Guð-
mundar hreppstjóra á Háfafelli (f. 1738, d. 1822),
langafa míns. Framætt Guðmundar Hjálmarssonar á
Háfafelli er hér rakin eftir samtíða manntölum og öðr-
um skjölum, en er alls staðar áður rangt rakin í ætta-
tölum. S. D.