Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 197
195
gæti Margrét varla verið fædd fyrir 1455—601 2),
en Ögmundur (Eyjólfsson) faðir hennar ekki
fyrir 1435. Þess skal þó gæta, að Þórólfur ög-
mundarson, bróðir Margrétar, móður Ögmund-
ar biskups, kemur fyrst við bréf á Alþingi og
er þá sveinn Þorleifs Björnssonar ríka 4.—5.
júlí 1469-), og næst á Reykhólum 19—20. febr.
14713). En 30. júní 1474, á Öxarárþingi, nefnir
Oddur lögmaður Ásmundarson 12 menn í dóm
nm vígsmál Þórólfs Ögmundarsonar, er vegið
hafði óbótamanninn Jón Böðvarsson, er sekur
var um Krossreið, þar sem Magnús Jónsson
hafði verið veginn (1471)4). Ef Þórólfur hefir
verið tvítugur eða því næst, er hann vá Jón
(1474), yrði hann svo sem 15—16 vetra 1469,
fæddur hér um bil 1453—4; verður því ólíklegt,
að Ögmundur, faðir hans, sem að vísu mun
hafa verið Eyjólfsson, hafi verið sonur Eyjólfs
ftiókolls (II.) Magnússonar ogkonu hans, Helgu
^órðardóttur5), er Eyjólfur hefir kvænzt 1434,
1) Jón Gizurarson segir, að Ögmundur biskup hafi
vei'ið „sjötug-ur eða vel svo“, þegar hann kjöri Sigmund
Prest Eyjólfsson systurson sinn til biskups (Safn t. s.
I, 662) en það hefir verið 1536 (P. E. Ó.: Menn
°S menntir II, bls. 236). Eftir því ætti Ögmundur að
Vera fæddur um 1466. En J. G. er sjáanlega alls óviss
Uln þetta aldurs takmark Ögmundar biskups. Hann gat
°rðið blindur um 60 ára eða yngri, og var þá sjálfsagt,
hann léti kjósa sér eptirmann.
2) D. í. V, bls. 546.
3) D. í. V, bls. 600.
4) D. í. V, nr. 670, bls. 756—757.
5) Erfðir Saurbæjar á Rauðasandi sýna, að Helga
tni>ni hafa verið dóttir Þórðar (bréf 1411), Svartsson-
er drukknaði 1377, Loftssonar í Saurbæ (d. 1377),
ilippussonar í Haga, Loftssonar i Saurbæ, Gíslasonar,
■‘itnrkússonai’. Fyrri maður Helgu hét Þorsteinn Sig-