Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 372
370
Páls Sæmundarsona hefir verið Sæmundur í
Hoffelli o. v., síðari maður Hólmfríðar, dóttur
Hákarla-Bjarna, sonur Jóns ,,langs“ á Þverá
í Laxárdal, síðar á Jörva í Haukadal, Þorkels-
sonar prests í Laufási (d. 1483), Guðbjartsson-
ar. Þessa ættfærslu Sæmundar staðfestir bréf
nokkurt ritað í Miklagarði í Eyjafirði 20. sept.
1485, þar sem Sæmundur lýkur Laufáskirkju
3 jarðir fyrir sig og bræður sína (líkl. Jón á
Æsustöðum, Björn(?) og Hall í Skörðum, er
þeim hafði til erfða fallið -eftir séra Þorkel
Guðbjartsson (áður í Laufási).
Framætt Jóns Pálssonar, föður séra Jóns
gamla á Staðarhrauni, hefir hingað til verið
ókunn. Hvernig á því stóð, að Kálfafell lenti
síðan að sumu í ætt séra Orms Egilssonar á
Kálfatjörn, sem virðist hafa verið bróðir séra
Jóns Egilssonar í Stafholti, föður Þórdísar,
síðari konu séra Jóns gamla á Staðarhrauni,
læt ég hér ósagt. I ritdómi um „Víkingslækjar-
ætt“ P. Z. hefi ég bent á, að Arnbjörn Saló-
monsson, ættfaðir þeirra Þórðar lögmanns
Guðmundarsonar (d. 1609), séra Björns
Halldórssonar í Sauðlauksdal og Jóns forseta
Sigurðssonar, dr. Alexanders Jóhannessonar o.
fl., hefir verið kominn í beinan karllegg af
Mýramönnum og Agli Skallagrímssyni (Sunnu-
Finnssonar þar, Bjai'narsonar, Hamra-Finnssonar,
Arnórssonar, af Ingólfsætt. Sonur Andrésar Hauksson-
ar mun hafa verið Vig'fús (,,Fúsi“), er kemur við bréf
í Viðey 5. sept. 1503, faðir þeirra Teits og Ásdísar, er
átti Jón í Mýdal (f. 1480) Pálsson, Sigmundarsonar.
Þeirra son var Vigfús sýslumaður á Kalastöðum (d.
1595), faðir Orms sýslumanns í Eyjum (sbr. Blöndu
VII, bls. 199—200).