Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 224
222
Steingrímsfirði, og seldu þau
hundruð þessi Helgafellsklaustri
1504 (D. í. VII, nr. 617, bls. 655-6,
og nr. 682, bls. 747). Synir Gunn-
hildar og Þórðar máske: Jón (bréf
1511) og Hemingur (eða Hening),
sem nefndur er í bréfum 1511—
1519 (D. í. VIII, bls. 352, 716).
Þar í Húsavík í Steingrímsfirði dvaldi
Margrét Þorsteinsdóttir, ekkja Guðmund-
ar Tumasonar, en föðurmóðir Gunnhildar
Thomasdóttur, eftir lát bónda síns (bréf
2. júní 1470: D. í. V, nr. 508, bls. 567—8),
sem fyrr er getið, og hafa þeir frændur
Ásgarðsmenn, niðjar Tuma Bergþórsson-
ar, átt Húsavík þessa, líklega alla götu frá
Brandi, forföður sínum, Bergþórssyni,
föður Jóns prests, föður Bergþórs, föður
þeirra: Ásgríms, (Þorsteins kolls?), og
Ingibjargar, móður Þorgríms Einarsson-
ar á Stað í Steingrímsfirði, Bergþórs og
Brands. En þeir voru synir Einars auð-
manns í Vík í Skagafirði, Auðunarsonar,
Kárasonar ábóta, Rúnólfssonar prests, Ket-
ilssonar biskups. En Bergþór faðir Brands
á Reykhólum hefir verið son Kolla yngra,
Þormóðarsonar, Kollasonar, Þormóðarson-
ar, bróður Steinþórs á Eyri, Þorlákssonar
þar, Ásgeirssonar. Þau voru börn Þor-
gríms: Einar á Eyri í Bitru; Magnús, fað-
ir Rúnólfs (d. 1329), föður Þorgríms, föð-
ur Sturlu. Þórður „bóndi“, son Bergþórs
Einarssonar (D. í. II, 408, 714), bjó í
Tungu (Tröllatungu) í Steingrímsfirði um
1317—1330 og var síðan vestur á Snæ-