Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 371
369
þeirra sýnist ranglega talinn sonur Jóns, er
kallaSur var „lögmaður“, Finnbogasonar ins
gamla. Páll Sæmundarson nefnist í reiknings-
ágripi nokkru Gizurar biskups syðra 1540 (D.
I. X, nr. 289, bls. 585). Hann hefir búið í Horna-
firði, e. t. v. á Kálfafelli ytra eða annarri jörð
þar í grennd, úr erfð eftir Hólmfríði Bjarna-
dóttur, móður þeirra bræðra Sæmundarsona.1)
Páll Sæmundarson er fæddur nálægt 1500, heit-
inn eftir fyrra manni Hólmfríðar móður sinn-
ar, Páli bónda í Hoffelli, Pálssyni, Ormssonar,
Eiríkssonar (d. 1412), Hjaltasonar á Felli í
Kinn, Guðmundarsonar.2) Faðir þeirra Jóns og
1) Sæmundur Jónsson, efalaust Sæmundarsonar,
Jónssonar lang-s, Þorkelssonar prests, Guðbjartssonar,
kemur við bréf í Hornafirði 1573—87 ásamt, frændum
sínum Bjarna og Jóni eldra á Kálfafelli, Pálssonum
(Alþb. I, bls. 158; II, bls. 99). Efasamt þykir, að Sæ-
mundur son Jóns Finnbog'asonar gamla hafi verið til..
Þó gæti það verið.
2) Guðmundur Iljaltason er fulltiða 1333 og' á lífi
1386. Faðir hans var Hjalti Helgason, efalaust Hjalta-
sonar i Leirhöfn (er Þórður kakali vá í Flóabardaga
1244), Helgasonar. En Helgi, faðir Hjalta i Leirhöfn,
mun hafa verið sonur Hjalta Klængssonar, þess er
óprentuð skjöl Þóroddsstaðar í Kinn nefna (Þjóðskjala-
safn), og' er sá máldagakafli frá c. 1200, að sumu leyti,
því að þar er og' getið Ingimundar prests Þorgeirsson-
ar, föðurbróður Guðmundar biskups góða Arasonar.
Hjalti Klængsson hefir verið son Klængs, er lézt 1149
(Annálar), Hallssonar, Eldjárnssonar, Arnórssonar
kerling'arnefs, af ætt Höfða-Þórðar. Bræður Páls Orms-
sonar hafa verið Eiríkur Ormsson eystra og að því er
næst verður komizt: Halldór Ormsson ábóti á Helga-
felli og' Þorleifur, faðir Guðrúnar, ,er átti Andrés
Hauksson, Einarssonar prests (d. 1430), Haukssonar,
Finnssonar (d. 1359), Hálfdanarsonar í Nesi i Selvog'i,
Blanda VII 24