Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 292
290
7 bændur: Bjarni Kristjánsson, Núpi í Dýra-
firði, Daði Eggertsson, Skarði í Skötufirði,
Jakob Rósinkarsson, Ögri, Magnus Jónsson,
Meirihlíð, Guðm. Bárðarson, Borg (síðar í Bæ),
Sigmundur Erlingsson, Vigur, Tómas Tómas-
son, Hjöllum. — Þorst. Thorsteinsson greiddu
atkvæði þessir 6: Benedikt Oddsson, Hjarðar-
dal í Dýrafirði, Einar Magnússon, Garðsstöð-
um, Jón Sæmundsson, Arnardal, Jón Halldórs-
son, Arnardal, Kristján Matthíasson, ísafirði,
Magnús Jochumsson, Isafirði.
Fyrsta kjörtímabili löggjafarþinganna lauk
með þinginu 1879, og voru kosningar fyrir-
skipaðar í öllum sýslum landsins í september
1880.
Kjördagurinn í ísafjarðarsýslu var 17. sept-
ember. Var nú yfirleitt gengið að kosningum
með áhuga og talsverðu kappi sums staðar. I
Isafjarðarsýslu var þetta fjörugasti kjörfund-
urinn, sem haldinn hafði verið. Ekki var þó
fundurinn fjölsóttur, aðeins 61 kjósandi greiddi
þar atkvæði. En kapp var allmikið, eftir að á
fundinn kom, um að hremma þingsætin. Skipu-
legir flokkar voru þó engir, og fastákveðinna
skoðana frambjóðenda á landsmálum gætti lítt.
Þó lifði ávallt sú ákveðna skoðun hjá miklum
meirihluta þjóðarinnar, að halda fast fram
hinum fornu frelsiskröfum, sem Jón Sigurðs-
son hafði barizt fyrir, en ekki fengið fram
nema að litlu með stjórnarskránni 1874. Mikil-
hæfir menn að öðru leyti, sem taldir voru linir
í sjálfstjórnarkröfunum, urðu jafnan að lúta
í lægra haldi fyrir miðlungsmönnum.
Kjörstjórnina skipuðu: Carl Fensmark sýslu-
maður, Árni Jónsson verzlunarstjóri og Sumar-