Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 207
205
skyldleika Magnúsar og ögmundar biskups. Það
hefir því gleymzt fljótt, þótt fornskjölin enn
sýni það, ef vel er athugað, og er það svo mikils
vert atriði sögulega, að fyrrgreindur skyldleiki
Ögmundar við Magnús biskup (1477 — d. 1490)
hlýtur að hafa orsakað það, að ögmundur Páls-
son komst til mennta, líklega einmitt fyrst í
Skálholti, undir hendi Magnúsar biskups, hálf-
bróður Ögmundar Eyjólfssonar, móðurföður
Ögmundar Pálssonar. Til þess að skýra þetta
merkilega atriði í sögu Ögmundar biskups, hefi
ég orðið að rannsaka móðurætt hans í lengra
máli en annars myndi þörf þykja, og verður þó
&ð fara nokkru lengra út í rannsókn þeirrar
ættar.
Eyjólfur mókollur (II.) Magnússon, án efa
faðir Ögmundar, móðurföður Ögmundar bisk-
ups, bjó á Hóli í Bíldudal 1460 og átti jarðirnar
Bíldudal, Eyri og Hól1 2) og Deildará á Skálmar-
nesi-). Eyjólfur mun fæddur um 1398, og get-
nr hans 1434—1471. í registrinu við D. í. V,
bls. 8741, er hann talinn „frá Bæ í Borgar-
firði“, og er það að því leyti rétt, að nöfnin:
Böðvar og ögmundur, á sonum Eyjólfs, — og
svo nafn Magnúsar, föður Eyjólfs, og hitt, að
Eyjólfs getur fyrst í Borgarfirði3), bendir á, að
Magnús, faðir Eyjólfs, hafi verið dóttursonur
Magnúsar bónda í Bæ og á Lundi í Lundar-
reykjadal, sonar Gizurar galla og Þuríðar Ög-
mundardóttur frá Bæ, Þórðarsonar þar, Böðv-
1) D. í. V, nr. 190, bls. 205—206.
2> D. I. V, nr. 232, bls. 379—80; nr. 495, bls. 556.
3) D. í. IV, bls. 536, 539. Einn af sonum Eyjólfs og
Belgu Þórðardóttur, s. k. hans, mun vera Þórður Eyj-
blfsson (bréf 1472: D. í. V, bls. 684).