Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 210
208
H .... í Eyjólfur. — ögmundur. — Margrét. — ögmundur biskup
°r J N. N. Halldórsd. — Eyjólíur mókollur (II.) — Ingibjörg.
sson) | Eyjólfur mókollur (III.) Gislason.
Fyrir fyrnd þessa hverf ég frá þeirri ætlun, aS
ögmundur móðurfaðir ögmundar biskups hafi
verið sonur Eyjólfs mókolls (I.) Halldórsson-
ar1), þó að eðlilegt myndi annars þykja, vegna
Ásdísarnafnsins, að þau Eyjólfur mókollur (I.)
Halldórsson og kona hans, Ásdís Þorsteinsdótt-
ir, væri foreldrar ögmundar Eyjólfssonar, föð-
ur Margrétar, móður þeirra Pálsbarna: Ög-
mundar biskups og Ásdísar á Hjalla. En þess
, sést ekki vottur í samtíða skjölum, að þau Eyj-
ólfur mókollur Halldórsson og Ásdís Þorsteins-
dóttir hafi átt börn, sem lifðu, þótt það gæti
verið. En vegna tengda við Eyjólf Halldórsson
hafi Eyjólfur mókollur (II.) Magnússon verið
systurson nafna síns, sem líklegast er, — gat
Ásdís á Hjalla engu að síður verið heitin eftir
Ásdísi Þorsteinsdóttur (mágkonu Eyjólfs mó-
kolls (II.), langafa síns), þótt þær Ásdísarnar
væri óskyldar að frændsemi. Máske Eyjólfur
mókollur (II.) Magnússon hafi alizt upp hjá
1) Eyjólfs þessa mókolls er aðeins getið í vottoi'ði
frá 13. okt. 1467 (D. í. V, nr. 440, bls. 496), og er hann
þá löng-u látinn. Hann átti hálfan Brjánslæk og Vatns-
dal á Barðaströnd, er Eyjólfur hafði fengið með konu
sinni Ásdísi, dóttur Þorsteins bónda á Brjánslæk, er átt
hafði Brjánslæk og „Lækjareignir allar“, — Halldórs-
sonar, sjálfsagt Andréssonar bónda á Brjánslæk (um
1310: Bisk. s. Bmf. I, 380. bls.), er verið hefir son
Lofts Gíslasonar frá Saurbæ á Rauðasandi Markússon-
ar, og hefir kona Lofts verið Kristín (Ártíðaskrár, bls.
116, 2. marz) Filippusdóttir frá Stórólfshvoli, Sæmund-
arsonar frá Odda (d. 1222), Jónssonar. Þannig kornust
nöfnin Ásdjs og Kristín í ætt Haga-manna oir Ögmund-
: ar biskups.