Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 115
113
að tiltekinn biskup sé frá honum kominn, án
þess að ætt sé rakin, t. d. þrír biskupar, Þorlákr,
Páll og Brandr, frá Sigmundi kleiki, Þorlákr
biskup frá Reyni-Birni o. s. frv. í Landnámu,
eins og upphaflega virðist frá henni gengið
(„Frum-Landnámu"),1) hafa ættir verið raktar
til ýmissa kunnustu manna landsins, er uppi
voru á öndverðri 12. öld. Sýnist þó mjög handa-
hófskennt, til hverra ættir hafa þar raktar ver-
ið. Biskuparnir ísleifr og Gizurr feðgar, Jón
helgi Ögmundarson, Þorlákr Runólfsson, Magn-
ús Einarsson, Eiríkr upsi Grænlendingabiskup
Gnúpsson og Kolr Þorlcelsson Víkverjabiskup
eru allir að einhverju leyti ættfærðir, og Björn
biskup Gilsson er sagður kominn af Þorfinni
karlsefni að eins. Hins vegar er Ketill biskup
Þorsteinsson alls ekki nefndur, en þó er kona
Runólfs, sonar hans, ættfærð á einum stað. Þeir
Ketill biskup og Sæmundr fróði voru þó systk-
inasynir, og Ketill var tengdasonur Gizurar
biskups, og Ketill biskup var einn ættstærstu
nianna landsins. Þá eru nokkrir klerkar ætt-
færðir, Ari fróði til Halls af Síðu, en ekki er
rakin ætt hans frá Þorkatli Eyjólfssyni, Sæ-
ijiundr fróði á nokkrum stöðum, Hallr Teitsson
1 Haukadal, Bjarnhéðinn Sigurðarson í Kirkju-
bæ á Síðu, Finnr lögsögumaður Hallson á Val-
þjófsstað,Guðmundr Brandsson í Hjarðarholti,
Sighvatr Hallbjamarson, sem kominn var af
Auðuni skökli og mun hafa verið uppi á fyrra
1) Vitnunum til Landnámu er hér sleppt. Þeir, er
v'lja kanna þetta efni gerr, mega sjá menn þá, sem
nefndir eru, í nafnaskrám útgáfna Landnámu, og leita
Peirra siðan í texta hennar.
Blanda VII
S