Hugur - 01.01.1989, Blaðsíða 69

Hugur - 01.01.1989, Blaðsíða 69
HUGUR ATLl HARÐARSON valinn.“ Sé þetta rétt og séu kostimir siðferðilega jafngildir er þá ekki réttast að greiða bara atkvæði eða varpa hlutkesti eins og menn gera gjama þegar velja þarf milli tveggja kosta og engin knýjandi rök hníga að því að annar sé valinn fremur en hinn? Auðvitað ekki. Séu deiluaðilar sammála um eittltvað þá er það að kostimir séu ekki siðferðilega jafngildir og það skipti máli hvor er valinn. Ef þeir eru með öllum mjalla þá vilja þeir frekar leiða deiluna til lykta með rökræðum en greiða afkvæði eða varpa hlutkesti. Af þessu dæmi má ljóst vera að afstæðishyggjan er undir sömu sök seld og hinar leiðirnar tvær: Ilún gerir okkur ómögulegt að taka siðferðilegan ágreining alvarlega. Hún neit- ar kannski ekki að hann sé til. En hún segir að hann sé tæpast áreynslunnar virði því hvorugur sé að leiðrétta neina villu hjá hinum. Þótt afstæðishyggjan stangist ekki beinlínis á við stað- reyndir þá er hún óþolandi því hún felur í sér að rökræður um siðferðileg efni séu fánýtar, þær leiði menn ekki nær sann- leikanum, vegna þess að samkvæmt afstæðishyggjunni er eng- inn sannleikur til. Við höfum nú athugað þrjár tilraunir til að sætta þá skoðun Kants að hver maður sé löggjafi og dómari um siðferði og þá staðreynd að menn greinir á um siðferðileg efni. Niðurstaða athugananna er sú að þessar þrjár tilraunir séu allar dæmdar til að mistakast. Tvær þær fyrri mistakast bæði vegna þess að þær stangast á við staðreyndir og vegna þess að þær eru siðferði- lega rangar. Sú síðasta mistekst vegna þess að hún er óþolandi. En geturkenning ekki verið sönn þótt hún sé óþolandi? Nei, ekki í siðfræði. Siðfræði fjallar um hvemig mönnum er best að vera og hvað er gott fyrir þá að gera og ef siðfræðikenning felur það í sér að menn verði að gera hluti sem allir sjá að eru siðferðilega rangir þá hlýtur hún að vera ósönn. Fyrrgreind afstæðishyggja felur í sér að fánýtt sé að rökræða um sið- ferðileg efni því engin leið sé að slíkar rökræður leiði til réttari skoðana. En allir sjá og skilja að það er siðferðileg skylda að reyna að leiða siðferðilegan ágreining til lykta með rökum. Þess vegna ereitthvað bogið við þessa afstæðishyggju. En standa okkur aðrar leiðir til boða en þessar þrjár? Eins og ég ýjaði að hér á undan, þar sem ég minntist á T.H. Green, tel ég svo vera. Ég tel að með því að nota þá kenningu Green að 67
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.