Hugur - 01.01.1989, Blaðsíða 83

Hugur - 01.01.1989, Blaðsíða 83
HUGUR JÖRUNDUR GUÐMUNDSSON hugtakið góðvild við hlutverki hugtaksins samhygð.13 Tvennt þarf að nefna hér í þessu samhengi: í fyrra lagi, að augljóst er að Selby-Bigge skilur hugtakið samhygð sem lögmál um tilfinningaflutning. Skilið á þennan hátt þá getur hann vitan- lega haldið því fram að Hume hafi varpað hugtakinu fyrir róða, reyndar væri það mjög líklegt eins og ég hef þegar hald- ið fram. En ef hugtakið samhygð byggist á greinargerð Humes fyrir ímynduninni, eins og ég tel að Hume hafi á endanum viljað, þá verður kenning Selby-Bigge vafasöm, svo ekki sé meira sagt. Hume notar hugtakið samhygð í Rannsókninni, nema hvað hann leggur hreint ekki eins mikla áherslu á mikil- vægi þess og í Ritgerðinni. Þrátt fyrir að svo sé, þá tel ég mögulegt að hugmyndir hans um samhygð séu í raun hinar sömu í báðum ritunum. í öðm lagi er það ljóst, að samkvæmt þeim skilgreiningum sem Hume gefur á hugtökunum samhygð og góðvild, þá getur seinna hugtakið ekki leyst það fyrra af hólmi, þar sem það er allt annars eðlis. Samhygðimii er ætlað að styðja þá grundvallarskoðun Humes að öllum mönnum sé í raun þóknanlegt allt það sem eykur á velferð mannkynsins. En í Rannsókninni er góðvildinni einungis ætlað það hlutverk að skýra hvers vegna þeir eiginleikar manna eru okkur ætíð þóknanlegir, sem auka á hamingju og velferð samfélagsins. Segja má að óskýr viðmið í þeirri aðferð sem beitt er til þess að ákvarða hvað geti talist umbætur á kenningu og hvað ekki, sé orsök þess ruglings sem átt hefur sér stað um raun- verulegar skoðanir Humes. Mér virðist, að þær umbætur og breytingar sem finna má í Rannsókninni, megi fyrst og fremst rekja til breyttrar framsetningar efnisins, en ekki innihalds. í ljósi þeirra hörðu dóma sem Hume mátti þola er hann birti Ritgerðina, þá er það deginum ljósara, að hann hefði aldrei sett kenningu sína og hugmyndir fram á nýjan leik með sama orðfæri og sömu hugtakanotkun og áður. Sú einfalda staðreynd, að hugtakið samhygð kemur ekki eins oft fyrir í seinna ritinu og því fyrra, felur þess vegna ekki í sér að umrætt hugtak hafi verið lækkað í tign í þessari nýju 13 Selby-Bigge, L.A.: "Introduction" í Hume's Enquiries, 3ja útgáfa, Oxford 1975, bls. xxiv. Fleiri hafa tekið undir þessa skoðun, þar á meðal Nicholas Capaldi: David Hume: The Newtonian Philosopher, Boston 1975, og John Laird: Hume's Philosophy of Human Nature, London 1932. 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.