Hlín - 01.01.1922, Blaðsíða 77
HUn
75
Mjer hlýnar um hjartaræturnar við að lesa
Laufey Friðriksdóttir »Hlín*. . . . Mjer þykir fyrir að geta ekki
Oberman, landstjóra- verið í verki með ykkur, að jeg skuli vera
frú á Sumatra skrifar: svona fjarri, að alt sainband er eiginlega
fyrirmunað. — Síðan 1912, að við fyrst
komum hingað, hefi jeg oft, einkum fyrstu árin, meðan alt var mjer
enn í fersku minni, gert ítrekaðar tilraunir til að fylgjast með í öllu
lieiina, mjer finst jeg sjálf altaf eiga hlut í máli um alt, sem liggur
þjóð minni á hjarta. ... — »Hlín« sendir frú Laufeyju bestu þakkir
fyrir góða gjöf til S. N. K. og árnaðaróskir.
1. mynd. Frá sýningu vefnaðarnámsskeiðs H. N.
Um myndirnar. á Akureyri. — Námsskeiðið hefir verið starfrækt
síðastliðin 5 ár. Kenslutíminn smálengdur (nú
4 mán.), til þess að nemendur sjeu færir um að kenna að lokinni
skólavistinni. Nokkur framhaldsnámsskeið hafa verið haldin. — Þetta
hefir verið ofið: Ljereft, tvisttau, javi, bóldang, rúm-, bekk- og gólf-
ábreiður, borð- og bakkadúkar (ull, bómull, hör), handklæði, glugga-
tjöld, húsgagnafóður, glitvefnaður (innl. og útl.), flosvefnaður (innl.
og útl ), rósabragð, krókbragð, krossvefnaður og brekánsvefnaður..
2. mynd. Lampaþrífólur.
3. mynd. Bárður Sigurðsson á Höfða við Mývatn með fyrstu
spunavjelina, sem liann siníðaði fyrir H. N. á Akureyri. — Spólurnar
og teinarnir, sem spunnið er á, sjást ekki á myndinni. Tvinningar-
stóllinn (meðl2 spólunum) er framan á vjelinni, hesputrjeð á borðinu.
29 spunavjelar hafa verið seldar frá Akureyri síðastliðin 2 ár.
4. mynd. Þptta prjón má nota á vetlinga o. fl. Fitjað upp á vetl-
ingum 55 lykkjur. Finun munstur á laskanum, 7 lykkjur í hverju.
1. umferð: 8 lykkjur rjettar, 2 brugðnar, 1 lykkja rjett, bandinu
brugðið um prjóninn, 1 lykkja rjett, þannig 6 sinnum brugðið um,
rjett lykkja síðast. — 13 lykkjur nú í munstrinu (með böndunum),
2 lykkjur jafnan brugðnar milli hvers nrunsturs.
2. umferð. Alt pr. rjett nema snúnar lykkjur niilli munstranna.
3. umferð. 8 lykkjur rjettar. Úrtaka á báðum jöðrum á hverju
munstri, steypt yfir í fyrra sinn, tekið samau í síðara. Þanmig er
tekið úr í hverri umferð, þar til 7 lykkjur eru á hverju munstri aftur.
6. umferð. Nú eru aftur orðnar 7 lykkjur í hverju munstri, 8
lykkjurnar fyrst á prjóninum, sem altaf hafa verið pr. rjettar, eru nú
pr. þannig: 4 lykkjur teknar af á aukaprjón, síðari 4 lykkjur pr.
rjettar á lausa pr., þær fyrri teknar fram- fyrir og pr. rjettar. í þess-
ari umferð er bandið lagt yfir prjóninn 6 sinnum sem í 1. umferð.
Snúningur á 8 lykkjunum í annaðhvort sinn, þegar munstur er sett
niður. 10 umferðir því á milli.