Morgunn - 01.12.1941, Blaðsíða 51
MORGUNN
149
raunverulega. Fjórum mánuðum síðar giftum við okkur
og þá var spádómurinn loks endanlega kominn fram.
Mary hefir aðeins tvisvar sinnum sótt miðilsfund. Mig
langar að segja nánara frá síðara fundinum.
Mánuði áður en við giftumst símaði ég til frú Mason
(sem er þekkt fyrir miðilsstarf sitt) og bað hana um fund.
Ég lét ekki nafns míns getið og kvaðst koma með einka-
skrifara minn með mér. Áður en við lögðum af stað til
frú Mason sagði ég Mary, að hún mundi sanna, að á fund-
inum kæmi faðir minn fyrstur allra, að vanda.
Þegar frú Mason var fallin í transinn sagði stjórnand-
inn af vörum hennar: „Þessi kona, sem þér komið með
hingað sem skrifara yðar, er einmitt konan, sem Max
hefir ákveðið, að þér skuluð giftast“. Þá hvíslaði Mary til
mín: „Þú hafðir á réttu að standa. Faðir þinn er hér“.
Stjórnandi miðilsins greip fram í fyrir henni og sagði:
„Nei, nei, það er bróðir hans, sem féll við Guillaumont.
Hann er hingað kominn vegna þess, að í dag er ártíðar-
dagur hans“.
Þessu hafði ég algerlega gleymt, en hafði aftur á móti
það ríkt í huga, að þessi dagur var fæðingardagur Jane
dóttur minnar, en hún fæddist á dánardegi hans.
„Hann heitir Max — hélt stjórnandinn áfram — og er
sonur Max, og var venjulega kallaður Maxie“. Þetta var
alveg rétt.
J. A. þýddi.
11