Morgunn - 01.12.1941, Blaðsíða 77
MORGUNN
175
og jurtaþróunina í tilverunni. En til er einnig mannleg
líffræði, sem engin ástæða er til að telja tóma þjóðtrú, og
mikið af henni er varðveitt ekki í hinum svonefndu vís-
indaritum, heldur í leikritagerð, ljóðlist og sögu, í bók-
menntunum yfirleitt. Náttúrlega sögu mannsins lesum við
í skáldritunum, því að þau sýna oss hvernig mannlegar
verur bregðast við margvíslegum atvikum, og rithöfund-
unum er frjálst, að láta persónurnar haga sér eins og þeim
sýnist. Án hjálpar skáldanna myndu fæstir af okkur vita
eins mikið um lífið og við vitum. Þau auðga okkur að lífs-
reynslu. Og það er eðlilegt og fyllilega réttmætt að við
skírskotum til persóna hinna miklu rithöfunda, því að þær
veita oss þekking á mannlegu lífi. Hamlet, Macbeth og
Óthello eru eins lifandi menn og Plató, Caesar og Napó-
leon. Og hinar smærri persónur skáldritanna eru einnig
raunverulega lifandi, enda þótt þær hafi aldrei verið til
sem holdi klæddar, jarðneskar, persónur. Stórri hugsjón
kunna að vera miklu fleiri leiðir opnar til að bera ávöxt,
en við þekkjum nú.
Bilið milli hins æðsta og lægsta manns er óskaplegt. En
alheimurinn hlýtur að rúma langt um æðri verur en mann-
inn. Frá upphafi hefir menn órað fyrir því. Og nú eru
menn farnir að skilja það, í ljósi æðri opinberunar, að
ekki eru þessar verur að eins til, heldur einnig að við er-
um í ætt við þær. Við finnum að frá þeim leggur andblæ
góðleikans og velvildarinnar og það gefur okkur hugrekki
og traust. Maðurinn hefir verið fullvissaður um hjálp,
samúð og hughreysting frá verum, sem eru miklu voldugri
en hann ; og hann finnur, að hið endanlega heimkynni hans
er í löndum, sem liggja langt fyrir ofan þá veröld, sem
hann gistir nú, og er þó sannarlega fögur í augum
hans; honum er að byrja að skiljast, að framhaldstilvera
bíður hans, óháð efni þessarar jarðstjörnu; að sá skerfur
vitundarlífs, sem nú birtist og starfar í gegnum heila
hans, er að eins lítið brot úr stærri heild; að í þessari víð-
tækari heild persónuleika hans er voldugur veruleiki undir-