Morgunblaðið - 03.12.2009, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.12.2009, Qupperneq 5
Nú hefur verið tilkynnt að kröfuhafar Kaupþings hafi eignast 87% hlut í Arion banka. 13% verða áfram í eigu ríkisins. Ákvörðun kröfuhafa sýnir að þeir meta rekstur bankans traustan og hafa trú á framtíð hans og íslensks efnahagslífs. Samkomulag um eignarhald bankans felur í sér að kröfuhafar leggja fram 66 milljarða kr. eigið fé í stað ríkisins. Þetta skilar sér í minni lánsfjárþörf íslenska ríkisins og þar með lægri álögum á landsmenn. Í krafti tengsla við erlenda kröfuhafa getur Arion banki aukið tiltrú erlendra aðila á íslenskan fjármálamarkað og verið í forystu við uppbyggingu efnahags- lífsins. Arion banki heyrir áfram að öllu leyti undir íslensk lög og íslenskar eftirlits- stofnanir. Þetta felur í sér að innstæður í bankanum eru jafn tryggar og áður. Arion banki stendur á traustum grunni, hefur á að skipa hæfu starfsfólki með mikla þekkingu og er velgengni bankans samofin hagsmunum kröfuhafa. Það er markmið okkar hjá Arion banka að byggja upp öflugan banka, vinna með og fyrir fólkið í landinu. Með nýju eignarhaldi getum við beitt okkur af fullum krafti að endurreisn og uppbyggingu íslensks efnahagslífs. Með fagmennsku, framsækni, ábyrgð og umhyggju að leiðarljósi setjum við viðskiptavini okkar í fyrsta sæti. Nánari upplýsingar má finna á vef bankans: arionbanki.is Hafðu samband sími 444 7000 • arionbanki.is ÍS L E N S K A S IA .I S A R I 48 33 1 Nýtt upphaf með breyttu eignarhaldi Í stuttu máli: • Kröfuhafar eignast 87% í Arion banka • Kröfuhafar leggja fram 66 milljarða króna • Innstæður verða áfram tryggðar • Breytt eignarhald styrkir bankann • Hagsmunir bankans og kröfuhafa fara saman • Bankinn stendur á traustum grunni Nýtt eignarhald 13% Ríkissjóður87% Kröfuhafar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.