Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 6
SVIÐSLJÓS Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Vinnumálastofnun hefur í samstarfi við Stúdíó Sýrland boðið atvinnulausu fólki þann kost að sitja svokallað virkninámskeið þar sem kennt er nánast allt sem viðkemur kvikmyndagerð og hljóðvinnslu. Tveir hópar, yngri og eldri, útskrif- uðust þaðan í gær og frumsýndu af því tilefni af- rakstur námskeiðsins, stuttmyndir. Þátttakendur sáu alfarið um gerð myndanna, allt frá handrit- skrifum að hljóðsetningu, en langflestir höfðu litla eða enga reynslu af kvikmyndageiranum. Taka eftir því sem þau geta „Við fengum að velja um þrjú námskeið hjá Vinnumálastofnun og settum held ég öll Sýrland í fyrsta sætið því það var eitthvað sem við viss- um ekkert um. Við erum öll búin að lifa lengi og fara á alls konar námskeið en aldrei neitt svona. Ég held að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið á ævi minni. Við erum á öllum aldri en erum faktískt öll jafn gömul því við tökum aldrei eftir aldr- inum, við tökum bara eftir því sem hinn getur og hvort að við getum nýtt okkur það. Við lærðum að skrifa handrit, taka mynd, klippa, leika, hljóð- setja, mixa og allt saman,“ segir Inga Helgadótt- ir, meðlimur eldri hópsins, og bætir við að nám- skeiðið hafi verið hörku vinna og alls ekkert dútl. „Við vorum frá eitt til sjö alla daga vikunnar og stundum lengur ef þurfi … og ef við fengum.“ Inga skellir upp úr og útskýrir mál sitt: „Stund- um vorum við rekin út því fólkið vildi fara heim sem vann hjá Sýrlandi.“ Aðalleikarinn í Áramótaskaupinu Námskeiðið hefur nú þegar skilað ætluðum árangri. Eldri hópurinn, sem skipaður er 18 manns á aldrinum 26 til 64 ára, stefnir á að stofna nýtt fyrirtæki og hefur einn aðalleikarinn nú þegar hreppt hlutverk í Áramótaskaupinu og Hlemma vídeó. „Við ákváðum þegar lengra var komið að nota alla þessa hæfileika sem voru samankomnir á einum stað. Við erum til dæmis með lögfræðinga, viðskiptafræðinga, arkitekta, kennara, myndlistarfólk, margmiðlunarfólk, dansara, tónlistarmenn og öll þau tæki sem fylgir þessum hópum. Það var ekkert annað að gera, við vorum með fyrirtæki.“ Hið nýja fyrirtæki hefur hlotið nafnið Di- vine Production sem sótt er í titil stuttmynd- arinnar Divine intervention, eða Himneskt inn- grip, sem hópurinn framleiddi á námskeiðinu. Fyrirtækið mun einbeita sér að fyndnum og skemmtilegum stuttmyndum og jafnvel fræðslu- og heimildarefni. „Við ætlum að hætta að bíða eftir að einhver komi og segi: „Get ég boðið þér vinnu?“ Við ætlum að fara og segja: „Getum við selt ykkur eitthvað?“ Þó svo að þátttakendur séu flestir hverjir ánægðir með árangur námskeiðsins voru einhverjir hnípnir þegar það hóf göngu sína að sögn Ingu, enda ekki auðvelt að horfast í augu við atvinnumissi. „Þetta er ævintýri“ „Ég man að ég hugsaði: „Hvað er ég komin í.“ Ég kom hingað inn í allt annan heim sem ég kunni ekkert á en svo kemur maður út sem al- veg ný manneskja, tilbúin í hvað sem er. Guði sé lof fyrir kreppuna,“ segir Inga og gerir að gamni sínu. „Hún kom allavega með eitthvað jákvætt fyrir okkur. Hún kom með nýtt tækifæri og nýja vini inn í líf okkar allra. Ég er búin að vinna sem bókari síðan ég var sextán ára og er svo fegin að hafa ekki farið á tölvunámskeið sem ég hef farið á þúsund sinnum. Með þessu kemst maður því- líkt út fyrir kassann. Nú ætla ég að stofna fyr- irtæki með átján manns og fara inn í stutt- myndagerð. Þetta er ótrúlegt, þetta er ævintýri.“ Hópur Ingu ætlar ekki að taka sér neitt hlé þó svo að námskeiðinu sé lokið og var fyrsti vinnufundurinn á vegum fyrirtækisins Divine production haldinn í gær. „Það er eins og okkur hafi verið raðað saman, rétt fólk á réttum stað og allt passaði. Við ætlum ekki að leyfa neinum að stoppa og hugsa, við erum lögð af stað. Nú tekur lífið við og peningastreymið,“ segir Inga og hlær. Kreppan kom með nýtt tækifæri og nýja vini  Atvinnulausir stofna fyrirtæki  Ætla að einbeita sér að stuttmyndum Morgunblaðið/Ernir Virkni Þessi föngulegi hópur sat sex vikna virkninámskeið Vinnumálastofnunar og Sýrlands Stúdíó og úr varð nýtt fyrirtæki, Divine Production, sem mun sérhæfa sig í stuttmyndagerð. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Lagt var hald á fimm haglabyssur og þrjár rjúpur í eftirlitsferð lög- reglunnar í Borgarfirði og Dölum á rjúpnaveiðislóðir í almenningi á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði í gær. Lögreglunni höfðu borist til- kynningar um veiðimenn á fjór- hjólum og vélsleðum en það er ekki leyfilegt. Mennirnir voru farnir þegar lögreglan kom. Farið var á TF-GNÁ þyrlu Land- helgisgæslunnar og voru sextán veiðimenn teknir tali. Fimm þeirra voru ekki með sín mál í lagi. Vant- aði skotvopnaleyfið, veiðikortið eða hvort tveggja. Einn var með byssu í eigu annars manns en ekki skrif- lega lánsheimild. Ekki voru allir veiðimennirnir sáttir við þessar aðgerðir lögregl- unnar og áttu síst von á því að eft- irlitið kæmi að ofan úr heiðskíru lofti. gudni@mbl.is Fimm haglabyssur og þrjár rjúpur tekn- ar við eftirlit úr lofti Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson Eftirlit Þyrla Gæslunnar aðstoðaði lögreglu í eftirliti á rjúpnaslóðum. „Við erum þátttakendur í átaksverkefnunum UFTA – Ungt fólk til athafna og ÞOR – Þekk- ing og reynsla á vegum Vinnumálastofnunar sem ganga út á það að virkja atvinnulaust fólk sem er á bótum. Reynslan sýnir að með tíð og tíma sest fólk í ákveðið form og þá er mjög erfitt að komast upp úr því,“ segir Þórir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Sýrlands. Hvert námskeið stendur yfir í sex vikur og er kennt í fjóra tíma á dag. Eldri hópurinn mætir fyrir hádegi og sá yngri eftir hádegi. Þórir segir þátttakendur almennt ánægða með námskeiðið hjá Sýrlandi, þeir fyllast krafti, jákvæðni og þori og drífa sig strax af stað. „Það er jákvætt að ríkið skuli horfa út fyrir boxið á þessum niðurskurðartímum og hafa þor í að setja pen- inga í svona. Þetta skilar sér margfalt.“ „Fyllast krafti, jákvæðni og þori“ ÁTAKSVERKEFNIN UFTA OG ÞOR Þórir Jóhannsson MMyndskeið á mbl.is „Þetta eru ekki stórir markaðir og eru fljótir að sveiflast niður í verði ef mikið er framleitt,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar í Neskaupstað, um markað fyrir frosna loðnu og loðnu- hrogn. Hann getur þess að Norð- menn séu komnir á fullt inn á þenn- an markað og enn séu til birgðir frá síðustu vertíð. Sjávarútvegsráðherra gaf í gær út reglugerð um loðnuveiðar á komandi loðnuvertíð. Heildaraflamark er 200 þúsund tonn og þar af koma 139 þús- und tonn í hlut íslenskra loðnuskipa. Gunnþór telur að útflutnings- verðmæti þess kvóta sem íslensku útgerðirnar fá geti numið 12 millj- örðum króna. Jón Bjarnason ráðherra lagði áherslu á það þegar hann gaf út kvótann að sem mestur þjóðhags- legur ábati skapaðist af þessari auð- lind og kvótinn nýttist sem best til manneldis. Gunnþór segir að fyr- irtækin séu með mikla fjárfestingu bundna í tækjum og mannskap sem þau vilji nýta sem best. Hann reikn- ar þó ekki með að mikið verði hægt að frysta til manneldis í vetur vegna markaðsaðstæðna, bæði í Rússlandi og Japan. Á sama tíma sé verð á lýsi og mjöli gott og fyrirtækin hafi það forskot á aðrar þjóðir, til dæmis Norðmenn, að hafa stýringu á hrá- efninu á einni hendi. Þannig sé hægt að hámarka heildarverðmæti afurð- anna. helgi@mbl.is Viðkvæmur mark- aður fyrir loðnu  Íslensk skip fá 139 þúsund tonn Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Gallerí Fold • þar sem verkin seljast Síðustu forvöð að koma verkum inn á næsta listmunauppboð Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16 Opnun kl. 15 • Allir velkomnir Jólauppboð 6. desemberHulda Vilhjálmsdóttir Jörðin hreyfist Ekki líklegt að höfðað verði mál „Ég held að hún sé nú ansi seint fram komin. Sér- staklega frá flokkum sem sjálfir tóku ákvörðun um að höfða ekki mál gegn Bretum á meðan það var hægt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um þingsályktunartillögu 14 þing- manna stjórnarandstöðunnar þess efnis að höfðað verði mál gegn Bretum vegna beitingar hryðju- verkalaga gegn íslenska ríkinu og íslenskum fyrirtækjum haustið 2008. Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins og fyrsti flutningsmaður tillög- unnar, segir ætlunina „að leita réttlætis fyrir Íslands hönd“. Steingrímur segir að ríkisstjórn- inni hafi verið það í lófa lagið að höfða mál á sínum tíma. „Það var niðurstaða þáverandi ríkisstjórnar að hverfa frá því að höfða mál. Frestur til þess rann út 7. janúar 2009, þannig að ég óttast að það sé ansi síðbúið að fara að taka það upp núna aftur,“ segir hann. einarorn@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.