Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknarsjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Dagskrá Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís 8.30 Setning Haustþings Rannís Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra 8.45 Developing the European Research and Innovation Ecosystem Professor Luke Georghiou, Vice-President for Research and Innovation, University of Manchester and Professor of Science and Technology Policy and Management 9.30 Einkaleyfi sem mælikvarði á þekkingu Grétar Ingi Grétarsson aðstoðarforstjóri Norrrænu einkaleyfastofunnar 9.50 Frá rannsóknum á Íslandi til alþjóðlegrar nýsköpunar Rögnvaldur Sæmundsson dósent við Viðskiptadeild HR og forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum 10.10 Samantekt Haustþing Rannis verður á Hótel Sögu, Harvard 2. hæð Morgunverður fyrir gesti. Skráning á rannis@rannis.is Haustþing Rannís 2010 Frá rannsóknum til nýsköpunar 25. nóvember kl. 8.30 - 10.30 á Hótel Sögu H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 34 dagar til jóla Síðasti öruggi skiladag- urinn til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er mánudagurinn 6. desember, og jóla- kort til landa utan Evrópu er föstu- dagurinn 10. desember. Síðasti öruggi skiladagur fyrir jólapakka til Evrópu er mánudag- urinn 13. desember og fyrir jólakort til Evrópu föstudagurinn 17. desem- ber, til að þau skili sér í tæka tíð fyrir jólin. TNT-sendingar til landa utan Evr- ópu hafa frest til 17. desember en þær TNT-sendingar sem fara til Evr- ópu til 21. desember. Til að vera viss um að jólapakkar og jólakort innanlands skili sér fyrir jól er mánudagurinn 20. desember síðasti öruggi skiladagurinn. Á öllum pósthúsum landsins er tek- ið á móti jólapóstinum en til að auka þjónustu fyrir jólin verða opnuð jóla- pósthús í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri. Jólapóst- húsin verða opnuð 9. og 10. desember nk. og verða opin á afgreiðslutíma verslunarmiðstöðvanna. Allar nánari upplýsingar um síð- ustu skiladaga, afgreiðslutíma og þjónustu póstsins er að finna á www.postur.is. Síðustu skiladagar fyrir jólapakka Jólakort SOS barna- þorpanna eru komin í sölu. Það eru listakon- urnar Ingibjörg Eldon Logadóttir og Gunnella sem eiga heiðurinn af kortunum í ár. Á vef samtak- anna, www.sos.is, er úrval jóla- korta til sölu. Einnig eru þau fá- anleg á skrifstofu samtakanna að Hamraborg 1 í Kópavogi. SOS barnaþorpin taka að sér munaðarlaus og yfirgefin börn í yfir hundrað löndum og sjá þeim fyrir heimili. Þar fá börnin að búa við öryggi og hlýju þar til þau eru orðin fullorðin og reiðubúin til að standa á eigin fótum. Barnaþorpin eru nú orðin 510 talsins og í þeim búa um 80.000 börn. Samtökin sinna einnig forvarn- arstarfi meðal fátækra barnafjöl- skyldna sem eiga á hættu að sundrast. Með fjölskyldueflingu SOS eru innviðir fjölskyldunnar styrktir og foreldrum hjálpað með fræðslu og stuðningi svo þeir sjálfir geti mætt grunnþörfum barna sinna með mannsæmandi hætti, segir í tilkynningu. SOS barnaþorpin selja jólakort Í dag, laugardag, kl. 14 verður opið hús í Dagdvöl Sunnuhlíðar að Kópavogsbraut 1c. Seldir verða munir unnir af heimilisfólkinu á Dagdvöl og heimabakaðar kökur. Þá verður kaffisala á vegum Sorop- timistaklúbbs Kópavogs. Allur ágóði rennur til Dagdvalar þar sem eldra fólk dvelur daglangt og nýtur ýmissar þjónustu. Bazar og kaffisala Íslandsdeild Amnesty Inter- national hefur hafið sölu á jóla- korti ársins 2010. Allt frá stofn- un Íslandsdeildar Amnesty International árið 1974 hefur Ís- landsdeildin gefið út listaverka- kort og ætíð leitast við að fá verk íslenskra listamanna til að prýða kortin. Í ár var leitað í smiðju meistara Ásgríms Jóns- sonar og mun verk hans prýða kortið. Amnesty International gegnir mikilvægu hlutverki í verndun mannrétt- inda. Samtökin grípa til aðgerða þegar grundvallarmannréttindi fólks eru fótum troðin. Kaup á jólakortum Amnesty International jafngilda mark- vissum stuðningi við mannréttindi, segir í tilkynningu. Kortin eru seld á skrifstofu deildarinnar að Þingholtsstræti 27 í Reykjavík og í helstu bóka- búðum. Hægt er að panta kortin á heimasíðu samtakanna. Jólakort Amnesty International Í ár mun Blindrafélagið gefa út tvær gerðir af jólakortum auk merkisspjalda á pakka. Jólakort með myndinni „Englajól“ eftir listamanninn Marilyn Herdísi Mellk verða seld 8 saman í pakka með umslögum fyrir 1.200 kr. Merk- isspjöld verða seld 8 saman í pakka á 400 kr. og jólakort með mynd af Eyjafjallajökli eru seld 15 saman í pakka fyrir 2.250 kr. Hægt er að nálgast kortin hjá Blindrafélaginu að Hamrahlíð 17 í Reykjavík eða með tölvupósti á net- fangið blind@blind.is. Þá munu sölumenn ganga í hús á næstu vik- um og bjóða kortin til sölu. Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjár- magnar starfsemi sína að lang- mestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa jóla- kort félagsins tekur fólk virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðla þannig að auknum lífsgæðum þeirra og betra sam- félagi, segir í tilkynningu. Blindrafélagið reiðir sig á sölu jólakorta til að halda starfseminni gangandi Sænska jóla- geitin hefur nú fengið sinn fasta stað á litlum hól við IKEA í Kaup- túninu og nýt- ur sín vel. Búið er að skreyta hana með rauðum borðum og jólaljósum þannig að hún er mjög jólaleg og lýsir upp skammdegið. „Þess má geta að geitin var smíðuð hér á Ís- landi þannig að hún er dálítið ís- lensk í sér þrátt fyrir að forfeður hennar séu sænskir,“ segir í til- kynningu. Jólageitin ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjar Þó að Vestmannaeyingar séu ekki kátir með að ekki skuli allt ganga eins og ætlað var með Land- eyjahöfn er nóg um að vera í Eyjum eins og venjulega á haustin. Það sem Eyjamenn sakna helst er að ekki skuli koma fleiri og njóta með þeim en trúa því að úr rætist.    Þann 15. nóvember, 2010, voru liðin 60 ár frá andláti eins virtasta ljósmyndara í Vestmannaeyjum, Kjartans Guðmundssonar (1885- 1950). Af því tilefni var efnt til dag- skrár til heiðurs Kjartani í Safna- húsinu á laugardag. Í anddyri eru myndir Kjartans til sýnis og verða til mánaðarloka.    Þann 12. nóvember voru fimm ár síðan vefurinn www.heimaslod.is var formlega opnaður. Hugmynda- fræði vefsins byggir á Wikipedia al- fræðiorðabókinni og má segja að Heimaslóð sé alfræðisafn Vest- mannaeyja sem sérhæfir sig í upp- lýsingum um Vestmannaeyjar og Vestmannaeyinga.    Safnahelgi í Vestmannaeyjum hefur fest sig í sessi sem menningar- veisla þar sem í boði eru tónleikar, sýningar og aðrar uppákomur. Má segja að listagyðjan leiki við hvern sinn fingur, hvort sem um er að ræða ritlist, myndlist eða tónlist. Meðal gesta af fastalandinu voru rit- höfundar, tónlistarfólk og grínarar. Aðsókn var yfirleitt góð.    Söngleikurinn um Konung ljón- anna, Lion King, var nýlega frum- sýndur í Bæjarleikhúsinu í Vest- mannaeyjum. Er þetta sérstök hátíðarsýning í tilefni af 100 ára af- mæli félagsins á þessu ári. Leik- stjóri er Haraldur Ari Karlsson en alls koma um 50 manns að sýning- unni sem er bæði fjörug og skemmtileg.    Þema norræna skjaladagsins þetta ár er veður og veðurfar. Hér- aðsskjalasafnið í Vestmannaeyjum sýnir af því tilefni veðurbækur frá Stórhöfða síðastliðin níutíu ár, allar eru þær til, vel varðveittar, í örugg- um höndum uppi á Stórhöfða. Einn- ig veðurbók frá frostavetrinum mikla 1918 en hún sýnir mesta frost sem mælst hefur í Vestmannaeyjum frá því að mælingar hófust.    Nú er lokafrágangur hafinn á nýju fjölnota íþróttahúsi við Há- steinsvöll en í húsinu verður m.a. að- staða fyrir frjálsar íþróttir og hálfur knattspyrnuvöllur. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið í desember. Færri ferðamenn vegna vandræða með höfnina Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Afmælissýning Haraldur Karl, leikstjóri Konungs ljónanna, og Fríða Sigurðardóttir sem hefur starfað með Leikfélagi Vestmannaeyja í áratugi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.