Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 ✝ Borgar Þor-steinsson fæddist 2. febrúar 1943 í Brattlandi, Vest- mannaeyjum. Hann lést 12. nóvember sl. Foreldrar hans voru Sigurbjört Kristjánsdóttir, f. 20.11. 1915, d. 23.10. 2007 og Þorsteinn Óskar Guðbrandsson, f. 26.10. 1914, d. 13.3. 1982. Systir Borgars samfeðra er Ester Þorsteinsdóttir, f. 28.9. 1940, gift Ingimundi Erlends- syni sem er nú látinn. Þau eiga tvær dætur. Bróðir Borgars sam- mæðra er Kristján Sigurðsson, f. 29.1. 1942, kvæntur Ingunni Guð- bjartsdóttur og eiga þau þrjú börn. Borgar kvæntist Elínu Ingólfs- dóttur árið 1983 og eignuðust þau einn son, Þorstein Óla Borgarsson, f. 31.12. 1984. Unnusta hans er Linda Björk Frið- geirsdóttir. Elín átti tvö börn fyrir, þau Ingólf og Ragnheiði. Borgar og Elín voru skilin. Borgar flutti ungur á Stokkseyri og ólst þar upp í Stíghúsi. Ungur fór hann á sjó- inn, það var að mestu hans ævistarf en hann lenti í slysi og þurfti að hætta sjómennsku árið 1979. Síðustu starfsárin vann hann í frystihúsi Stokkseyrar. Útför Borgars fer fram frá Stokkseyrarkirkju í dag, 20. nóv- ember 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Ég kveð með söknuði kæran föð- urbróður, Borgar Þorsteinsson, sem lést þann 12. nóvember sl. Samveru- stundirnar hefðu gjarnan mátt vera fleiri en nú eru það einungis minn- ingarnar sem sitja eftir. Í þeim minningabanka sé ég fyrir mér glað- beittan svipinn á frænda mínum, ég heyri flissið og hláturinn hans og ég hlæ í huganum að stríðnislegu at- hugasemdunum sem hrutu af vörum hans. Í bernsku bar ég óttablandna virðingu fyrir þessum stóra og kröftuga sjómanni með litríka tattú- ið á annarri hendi. Fyrir mér var hann töffari, svona týpa sem kallar ekki allt ömmu sína og gott er að hafa sér við hlið þegar á reynir. Þeg- ar ég eltist átti ég margar góðar samræður við hann. Alltaf ein- kenndust þær af kímni og glettni, og að sjálfsögðu velútilátinni kald- hæðni á báða bóga. Venjulega end- uðu slíkar samræður okkar í hlátri og fíflagangi sem við bæði höfðum gaman af. Ég sakna þess að hafa ekki átt fleiri svoleiðis stundir með frænda. Sú síðasta átti sér stað í sumar þeg- ar við hittumst við sjoppuna á Stokkseyri, bæði á rúntinum á far- arskjótunum okkar, hann á bíl, ég á mótorhjóli. Það lá vel á honum þenn- an dag er við spjölluðum saman um lífið og tilveruna. Ég er þakklát fyrir allt það góða sem ég fékk að upplifa í návist Bogga frænda, megi þær minningar lifa um ókomna tíð. Steina, syni hans, og allri fjölskyld- unni færi ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur og bið þeim Guðs blessunar á erfiðum tíma. Íris Kristjánsdóttir. Elsku Boggi. Okkur í sjoppunni langar að þakka þér fyrir allar þær mörgu, mörgu stundir sem við höfum fengið að eiga með þér í gegnum tíðina. Á hverjum degi varstu mættur að opna sjoppuna með okkur og fórst beint í þín vanaverk eins og til dæm- is að ganga frá blöðunum og bíða eft- ir kaffinu. Mörg okkar lentu í því að gleyma sér í vinnunni og eiga með þér góða stund yfir kaffinu og bull- inu. Alltaf var jafn gaman að spjalla við þig um alla heima og geima. Þín verður sárt saknað, elsku Boggi. Að fá ekki að hitta þig dag- lega, tala við þig, fá að heyra frá þér eins og við stelpurnar fengum svo oft að heyra, „mikið ertu sæt í dag“, gefa þér smá íssmakk á sumrin þeg- ar ísinn klikkar hjá manni, sitja úti með þér í sólinni, sötra kaffi, fá heit- asta slúðrið og spjalla um daginn og veginn. Þetta verður aldrei eins. Með söknuð í hjarta kveðjum við góðan vin og viljum við einnig votta fjölskyldu hans okkar samúð. Starfsfólk Shellskálans á Stokkseyri, Lára, Rakel og Þóranna. Elsku Boggi minn, að morgni 12. nóvember varstu ekki mættur til að opna með mér sjoppuna eins og þú varst vanur, leggja höndina yfir öxl- ina á mér, smella léttum kossi á kinn mína og oftast segja: „Mikið ertu nú sæt í dag,“ og síðan fórstu í verkin þín sem þú skilaðir alltaf af þér með mikilli gleði og léttleika á hverjum degi. Ég heyrði frá þér í síma seinna um morguninn sem var ekki vana- legt, þú varst kátur og hlýr og stuttu síðar komu frétttir um að þú værir látinn. Þetta er sárt og því fylgir mikill söknuður, kæri vinur, að hugsa til þess að þú, þessi fasti punktur í lífi okkar, sért ekki með okkur lengur. Allan þann tíma sem við höfum verið samferða hefur þú verið okkur fjölskyldunni svo mik- ilvægur og mikill stuðningur í blíðu og stríðu, og ekki stóð á því, elsku Boggi minn, að þú segðir hvað þér þætti vænt um okkur og vildir okkur vel. Og þegar kom að litla þorpinu okkar sem þú unnir svo heitt þá mátti hvergi skyggja á. Mikil ósköp sem okkur hjónunum þykir vænt um þig og ekki síður krökkunum okkar, þú átt svo undur stóran og fallegan stað í hjörtum okkar allra þar sem minningarnar um þig verða geymd- ar þangað til við hittumst aftur. Guð geymi þig, elsku Boggi. Blessuð sé minning þín. Elsa og Jón. Borgar Þorsteinsson ✝ Kjartan Magn-ússon fæddist í Borgarnesi 27. mars 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akra- nesi 12. nóvember 2010. Kjartan var sonur hjónanna Magnúsar Jóhann- essonar og Maríu Ólafsdóttur og var yngstur sjö systkina. Kjartan kvæntist Hönnu Sigríði Krist- vinsdóttur, f. 12.8. 1921, d. 25.2. 1967, 3. maí 1942 og eignuðust þau tvo syni, Hauk Arnar og Eyþór Magnús. Þann 28. mars 1970 kvæntist Kjartan Jónu Sigurðardóttur og eignuðust þau eina dóttur, Hönnu Sig- ríði. Fyrir átti Jóna dótturina Svandísi Eddu, sem Kjartan gekk í föðurstað. Útför Kjartans fer fram frá Borgarnes- kirkju í dag, 20. nóv- ember 2010, og hefst afhöfnin kl. 14. Mig langar í fáum orðum að minn- ast mágs míns Kjartans Magnússon- ar. Fyrstu kynni mín af Kjartani eru þegar hann kom að heimsækja Jónu systur heim á Urriðaá. Kom hann þá oft ríðandi með Óskari vini sínum, sem áreiðanlega tekur vel á móti honum á nýjum stað. Kjartan var iðulega á Toppi með Grána til reiðar. Toppur var mikill gæðingur og vilj- ugur hestur og það kunni Kjartan að meta. Hann leyfði mér stundum að fara á bak Toppi og fannst mér það alger toppur. Kjartan var duglegur til vinnu, ósérhlífinn og allt sem hann tók sér fyrir hendur dreif hann áfram af dugnaði. Mig langar að þakka Kjartani fyrir alla hjálpina sem hann veitti okkur, fyrst á Urr- iðaá svo á Leirulæk eftir að við flutt- um þangað. Alltaf var hann reiðubú- inn að koma og hjálpa og þá skipti ekki máli hvaða verk það var sem vinna þurfti, þau eru óteljandi hlöss- in af sandi og möl sem hann keyrði fyrir okkur í vegi, hlöð og að nýja fjósinu, hann var líka liðtækur að keyra heim heyrúllur eða aðstoða við að reka heim fé. Bara að hringja og Kjartan var mættur. Seinni árin tal- aði hann um að vera ekki lengi, var þó gjarnan mættur kl. níu, tók stutt- an matartíma og vann svo þar til hann fór heim í kvöldmat kl. sjö, þetta þótti Kjartani ekki langur vinnudagur. Það verður erfitt að venjast því að geta ekki hringt og spurt hvort hann geti ekki komið og gert þetta eða hitt. Kjartan var ótrú- lega heilsuhraustur og hélt sér í góðu formi alla tíð. Og megum við þakka fyrir að hann þurfti ekki að heyja langa baráttu við veikndi sín en hann lést rétt rúmum þremum vikum eftir að hann keyrði sjálfur suður á Landspítala; það var jú hans háttur að drífa hlutina af. Hvíl í friði, kæri mágur, minning þín mun lifa í öllum þeim verkum sem þú hefur tekið að þér hér hjá okkur. Elsku Jóna, við sendum þér, börn- um, tengdabörnum, afa- og langafa- börnum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðrún og Sigurbjörn, Leirulæk. Kjartan Magnússon MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is likkistur.is Íslenskar kistur og krossar. Hagstæð verð. Sími 892 4605 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR, lést mánudaginn 15. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Sigþór Másson, Kristín Arnþórsdóttir, Björk Hafliðadóttir, Magnús B. Óskarsson, Sigdís Þóra Sigþórsdóttir, Ingvar Óskarsson, Soffía Karen Magnúsdóttir, Þórdís Björt Sigþórsdóttir, Óskar Magnússon, Arnþór Freyr Sigþórsson, Einar Anton Birgisson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, INGIBJÖRG KRISTJANA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Naustvík, Árneshreppi, Álftamýri 2, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 14. nóvember, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 22. nóvember kl. 15.00. Soffía Guðrún Ágústsdóttir, Einar Jónsson, Ósk Sigurrós Ágústsdóttir, Þorsteinn Tryggvason, Erlendur Steinar Friðriksson, Inga Margrét Birgisdóttir, Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir, Einar Smári Einarsson, Ágúst Reynir Þorsteinsson, Kittý Johansen, Fanney Rós Þorsteinsdóttir, Árni Hrafn Gunnarsson, langömmubörn og systkini. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur og tengdasonur, EYJÓLFUR KARLSSON, Sjávargrund 8a, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu- daginn 25. nóvember kl. 13.00. Kristjana Júlía Jónsdóttir, Hulda Lind Eyjólfsdóttir, Ólafur Sigmundsson, Karl Jónasson, Guðný Aradóttir, Jón Gunnar Jóhannsson, Unnur Jóhannsdóttir, afabörn, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur sambýlismaður, faðir, fósturfaðir, afi, og langafi, ÞÓRÐUR EIRÍKSSON, Flatahrauni 1, Hafnarfirði, lést á krabbameisdeild Landspítalans þriðju- daginn 9. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Haraldsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.