Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 ✝ Margrét JónínaJóhannsdóttir, húsmóðir og verslunarmaður, fæddist á Siglufirði 10. ágúst 1928. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Fjallabyggð- ar, Siglufirði, 9. nóv- ember 2010. Foreldrar hennar voru Halldóra Bjarnadóttir, f. 18.9. 1900, d. 20.4. 1979, og Jóhann Ásgríms- son, f. 5.7. 1889, d. 24.8. 1968. Þau skildu. Frá tveggja ára aldri ólst Margrét upp hjá föðursystur sinni, Sólveigu Ás- grímsdóttur, og eiginmanni henn- ar, Ásgrími Jónssyni, í Ólafsfirði. Systkini Margrétar Jónínu voru: 1) Ragna Jóhannsdóttir, f. 18.4. 1924 2) Bjarni Lenhard Jóhannsson, f. 17.6. 1926, d. 13.5. 2006. Bróðir sammæðra: 3) Einar Her- mannsson, f. 11.6. 1934. Fyrri eiginmaður Margrétar Jónínu var Sigmundur Sig- urgeirsson, þau skildu. Árið 1997 giftist Margrét Jónína seinni eiginmanni sínum, Inga Karli Jóhannessyni, dómtúlki og löggiltum skjalaþýðanda, f. 11.9. 1928, d. 25.3. 2001. Margrét Jónína lauk fullnaðarprófi frá barnaskóla Ólafs- fjarðar 1. maí 1941. Hún stundaði nám við Húsmæðraskól- ann að Laugalandi og útskrifaðist þaðan 24. apríl 1947. Þegar Margrét Jónína var í kringum tvítugt flutti hún frá Ólafsfirði til Reykjavíkur. Hún starfaði lengst af við verslunarstörf, m.a. í JL-húsinu, Skóversluninni Rímu og síðast hjá Agli Jacobsen. Margrét Jónína tók virkan þátt í ýmsum félagsstörfum, hún var ævifélagi í Slysavarnafélagi Ís- lands, Ólafsfirðingafélaginu í Reykjavík og sat í fulltrúaráði í Sjálfstæðisfélaginu í Reykjavík. Eftir andlát eiginmanns síns flutti Margrét Jónína til Akureyrar en vorið 2004 flutti hún til Siglu- fjarðar og bjó á Dvalarheimilinu Skálahlíð. Útför Margrétar Jónínu fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 20. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður í Ólafsfjarð- arkirkjugarði. Kæra systir og mágkona, okkur langar til að þakka þér fyrir stund- irnar okkar saman og þó sérstak- lega nú síðari ár, okkar kynni urðu mun meiri og nánari eftir að þú fluttir hingað til Siglufjarðar og tókst með okkur sérstök og innileg vinátta og erum við sérstaklega þakklát fyrir það. Það var ávallt gott að heimsækja þig og þitt notalega og fallega heim- ili. Þín verður sárt saknað þegar fjölskyldan okkar kemur saman en við huggum okkur við það að eiga góðar minningar um þig. Elsku Lilla, far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sofðu rótt, sofðu rótt, nú er svartasta nótt. Sjáðu sóleyjarvönd geymdu’ hann sofandi í hönd. Þú munt vakna með sól Guð mun vitja um þitt ból. (Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.) Einar og Margrét. Kær vinkona og fóstursystir hef- ur kvatt þetta líf, þar fór vönduð kona. 82 ár eru ekki langur tími í ei- lífðinni en talsvert löng mannsævi. Lillu kynntist ég árið 1947 þegar Jón Halldórsson, fóstri hennar, og móðir mín, Ástríður Hannesdóttir, giftu sig. Ég tel að það hafi orðið okkur öllum til gæfu og gleði. Lilla var þá í kaupavinnu í Kaupangi í Eyjafirði, nýkomin úr húsmæðra- skólanum á Laugalandi, bústin, úti- tekin, brosmild og ánægð. Samband mömmu og Lillu var einstakt, reyndist hún mömmu kærleiksrík dóttir og er ég henni ævinlega þakklát fyrir það. Börnum mínum og barnabörnum var hún Frænka með stórum staf. Þegar Lilla kom svo til Reykja- víkur bjó hún að sjálfsögðu hjá okk- ur á Holtsgötunni. Hún fékk vinnu í KRON enda vön afgreiðslustörfum úr Kaupfélaginu í Ólafsfirði. Síðar starfaði hún í skóversluninni Rínu í JL-húsinu og hjá Jacobsen. Alls staðar vann hún af vandvirkni og samviskusemi, naut trausts sam- starfsfólks og vinnuveitenda. Hún var stundvís, reglusöm og skemmti- legur vinnufélagi, kom auga á spaugilegar hliðar varðandi menn og málefni, en talaði aldrei illa um nokkurn mann. Það var gaman að heyra Lillu segja frá uppvaxtarárunum í Ólafs- firði, allt á kafi í snjó á veturna og gaman að renna sér á sleða eða skíðum. Síðsumars heilluðu brekk- urnar fyrir ofan bæinn með sínum ljúffengu aðalbláberjum. Alltaf var gleði og væntumþykja þegar hún minntist á æskuvinina að norðan, hélst vinátta við marga þeirra alla tíð. Heimili Lillu var mjög fallegt hvar sem hún bjó enda mikill fag- urkeri. Lilla og Ingi Karl Jóhannesson hófu sambúð 1981 og áttu þau sam- an 20 góð ár. Í veikindum Inga sýndi hún einstakan dugnað og ósérhlífni er hún annaðist hann heima til hinstu stundar. Það verða margir sem munu sakna þessarar lífsglöðu og bjart- sýnu konu, sem aldrei gafst upp í sínum erfiðu veikindum en talaði alltaf um að komast heim af sjúkra- húsinu og fara í Héðinsfjarðargöng- in. Að eiga trausta vini í lífinu er eitt af því mikilvægasta, það finnur maður best þegar aldurinn færist yfir og manni bregður þegar þeir kveðja. Einari, Maggý og börnum þeirra þakka ég innilega fyrir alla þá ást og umhyggju sem þau sýndu Lillu alla tíð og bið þeim blessunar. Einn- ig þakka ég starfsfólki Sjúkrahúss Siglufjarðar góða umönnun. Systkinum Lillu, þeim Rögnu, Einari og fjölskyldum þeirra votta ég samúð. Hennar tími var kominn. Blessuð sé minning Lillu minnar. Helga Guðmarsdóttir. Elsku Lilla frænka. Takk fyrir hvað þú varst góð við mig og Týru, þú varst alltaf svo góð við alla, alveg sama hver það var. Takk fyrir litlu bænabókina sem þú gafst mér, ég bið fyrir þér með bænum upp úr henni. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. Láttu nú ljósið þitt lýsa upp rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti signaður Jesús mæti. (Hallgrímur Pétursson) Þín frænka, Franzisca Dóra Úlfsdóttir, Siglufirði. Það er kominn vetur, fjöllin í firð- inum okkar klædd í hvíta vetrar- kápu, það er kyrrð og friður yfir öllu, einnig yfir þér elsku Lilla frænka. Þannig upplifði ég síðasta augnablikið með þér kvöldið sem þú kvaddir og síðar þetta sama kvöld sáum við, ég og yngri dóttir mín, hún Franzisca Dóra, stjörnuna þína fallegu skína svo skært á himninum og þá vorum við alveg vissar um að núna liði þér örugglega vel, já svo miklu betur en undanfarnar vikur því við vitum að þær voru þér erf- iðar þó að þú hafir aldrei nokkurn tíma kvartað yfir veikindum þínum, nei aldrei, enda sagðir þú oft „það lagast ekkert við það að kvarta“. Þú varst svo sjálfstæð, viljasterk og ótrúlega dugleg manneskja, barst virðingu fyrir sjálfri þér og öðrum, ef þér leið eitthvað illa þá settirðu góða músík í spilarann þinn, lokaðir augunum og hlustaðir, enda mikil músíkmanneskja, ef maður spurði hvernig þú hefðir það þá var við- kvæðið alltaf þetta „það er ekkert að mér“ eða „þetta lagast allt sam- an“. Lífsgæði þín voru orðin ansi takmörkuð og þér hafði hrakað mik- ið á þessu ári þó að þú hafir með þrjósku þinni og baráttuvilja komist upp úr ítrekuðum veikindum þínum og komst okkur öllum á óvart hvað þú náðir þér á strik, það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þig að takast á við allt það mótlæti sem fylgdi heilsubresti þínum en alltaf varstu jafn jákvæð, kappsöm og ákveðin í því að komast heim í fallegu íbúðina þína sem þú varst svo ánægð með og okkur þótti mikil synd að þú skyldir ekki fá tækifæri til að njóta hennar lengur en raun varð. Er við hugsum um þig sjáum við glæsilega, hnarreista og vel til hafða konu sem gengur ótrúlega rösklega þangað sem ferð hennar er heitið í það og það skiptið. Þú varst virkilega góð manneskja með hlýtt hjarta, trúuð með eindæmum og barst ætíð hag þinna nánustu fyrir brjósti sem lýsir sér best í því að ef einhver úr fjöl- skyldunni eða annar sem þú þekktir var á faraldsfæti þá baðstu sérstak- lega fyrir viðkomandi og last ferða- bænina upp úr litlu bænabókinni en það var bók sem þú skildir aldrei við þig. Þær voru ófáar samverustund- irnar sem við áttum með þér, þú varst viðstödd alla stóru atburðina í lífi okkar Úlfs og dætra okkar og komst fram við okkur eins og við værum þín eigin börn. Nú er tími jólanna framundan og það verður skrítið að hafa þig ekki á meðal okk- ar, en við trúum því að þú heiðrir okkur með nærveru þinni þó svo að hún verði öðruvísi en áður og fyrr. Elsku Lilla, þú varst einstök mann- eskja og það var heiður fyrir okkur að fá að kynnast þér, litla fjölskyld- an, Kristín, Úlfur og dætur, Hávegi 4, Siglufirði, þakkar þér innilega fyrir allar yndislegu og góðu sam- verustundirnar sem við áttum með þér og reynum að ylja okkur við minningarnar sem við eigum um þig þegar þú varst frísk og hraust og huggum okkur við að nú líði þér miklu betur á þeim stað þar sem þú ert núna. Við sjáum fallegu skæru stjörnuna þína á himninum, hún skín skært til okkar. Kristín, Úlfur og dætur. Elsku Lilla frænka, mig langar að þakka þér innilega fyrir hvað þú varst alltaf góð við mig og hvað þú fylgdist alltaf vel með hvernig mér gekk í náminu mínu og vinnunni. Þú átt ákveðinn stað í hjarta mínu. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Þín frænka, Ágústa Margrét Úlfsdóttir (Maggý). Margrét Jónína Jóhannsdóttir ✝ Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, VILBORGAR SIGURJÓNSDÓTTUR frá Hvassafelli, Austur-Eyjafjöllum. Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks Heilsugæslu Rangárþings eystra og Sjúkrahúss Suðurlands, Selfossi, fyrir góða umönnun og hlýhug. Guðlaug Pálsdóttir, Sigurður Guðnason, Bergur Pálsson, Agnes Antonsdóttir, Elín Pálsdóttir, Ásbjörn S. Þorleifsson, Rútur Pálsson, Guðbjörg Albertsdóttir, Sigurjón Pálsson, Jón Þormar Pálsson, Hulda Karólína Harðardóttir, Páll Magnús Pálsson, Heiða Björg Scheving, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu í veikindum og við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, ÞORLEIFS HALLBERTSSONAR, áður Suðureyri Súgandafirði, Lautasmára 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Karitas hjúkrunar- þjónustu og starfsfólk Landspítalans, deild 11 E, fyrir umönnun og hlýhug. Sigríður Kristjánsdóttir, Kristján Þorleifsson, Kristín Kristjánsdóttir, Ingunn M. Þorleifsdóttir, Leó Pálsson, Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Sölvi Bragason, Sigþór Þorleifsson, Aðalheiður Gylfadóttir, Hrafnhildur Þorleifsdóttir, Davíð Þór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLMARS ÞÓRARINS EYJÓLFSSONAR organista, Skipagerði, Stokkseyri. Guðrún Loftsdóttir, Andrés Pálmarsson, Helga Pálmarsdóttir, Eyjólfur Pálmarsson, Svanhildur Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Hjartans þakkir eru færðar öllum þeim sem sýndu samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns míns, BJARNA FRIÐRIKSSONAR, Aðalgötu 5 í Keflavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki í dagdvöl Reykjanesbæjar og Garðvangs í Garði. Fyrir hönd fjölskyldu, Anney Guðjónsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, stjúp- og tengdamóð- ur, systur og mágkonu, INGER R. JESSEN. Jóhann Axelsson, Viggó K. Jóhannsson, Guðrún H. Sigurðardóttir, Axel Jóhannsson, Eleanor Jóhannsson, Kristján R. Jessen, Rhona Pearson og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.