Vera


Vera - 01.10.1998, Qupperneq 46

Vera - 01.10.1998, Qupperneq 46
eftir Margréti Jónsdóttur Stofnfundur áhugamannafélags um HEIMAFÆÐINGAR VERDUR HALDINN í SKÓLAB/t 11. nóvember. kl. 21:00 -22:30. ÁHUGAFÓLK FJÖLMENNIÐ! Þegar NO RR I fæddist heima Fg hef lengi furðað mig á því að barnshafandi konur skuli ekki hafa með sér samtök sem berjast fyrir hagsmunum verð- andi foreldra, en sú góða staðreynd að við erum, sem betur fer, aðeins barnshafandi í níu mánuði hindrar að slík samtök blómstri. Því hét ég sjálfri mér því fyrir rúmu ári síðan að ég skyldi ekki hætta að skipta mér af réttindamálum fæðandi kvenna. Nú fyrst hef ég kraftinn til þess og liður í því er að deila með víðsýnum lesendum Veru minni allra skemmtilegustu, merkilegustu og áhrifamestu kynreyslu, nefnilega heimafæðingu hans Snorra sonar míns í fyrra. Ekkert hefur haft jafn gríðarleg áhrif á mig sem konu og ekkert hefur gefið mér jafn jákvæða sjálfsmynd sem kynveru. Að morgni 1. maí vaknaði Margrét með verki og skömmu síðar kom Inga Ijósmóðir heim til hennar og Más og tveggja sona þeirra. Ein aðalástæðan fyrir því hversu fáar heimafæðingar eru á íslandi er að ekki er boðið upp á heimafæðingu sem gildan valkost og barnshafandi konur hafa ekki greiðan aðgang að bókum um efnið. Þær hafa því ekki aðrar forsendur en ríkjandi hugmyndafræði Landspítalans. Þegar þrálát gubbupest hafði plagað mig í meira en viku haustið 1996 horfðist ég í augu við staðreyndir og gerði þung- unarpróf. Ég var þá komin sex vikur á leið og eftir að hafa grátið svolítið og fundist sem heimurinn væri að hrynja og að nú væri starfsframa mínum lokið hringdi ég f Ingigerði Guðbjörnsdóttur, sem þá var Ijósmóðir á Heilsuverndarstöðinni. Mér var svo mikið niðri fyrir að ég gat ekki beðið þess að hitta hana á Heilsuverndar- stöðinni, heldur hringdi heim til hennar. Þetta fyrsta viðtal í gegn- 46

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.