Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2006, Side 12
72 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006
Fréttir DV
Tinni Sveinsson
• Hljómsveitin
Ghostigital tróð upp
á tónleikum í Berlín
í síðustu viku. ís-
lendingarnir í borg-
inni mættu vitan-
lega á tónleikana og
fylgdust með þeim Einari Emi og
Curver, Gfela Galdri, Frosta Loga-
syni og Elfe Péturssyni spila af stakri
snilld. Tónleikarnir fóru fram á
staðnum Ballhaus Ost í austurhluta
borgarinnar. Staðurinn er þekktur
fyrir að hafa verið vinsæll á fyrri
hluta síðustu aldar og hýsti fjöl-
marga dansleiki Adolfs Hitler og
háttsettra nasista, sem hefðu ef-
laust skotið sér leið út hefði felenska
nýbylgjusveitin stigið þá á stokk...
• Farsaslagur er framundan á leik-
húsmarkaði. í Borgarleikhúsið
kemur norðan frá Akureyri Full-
komið brúðkaup á
vegum 3sagas og
Leikfélags Akureyrar.
Yfir flögur þúsund
miðar seldust fyrsta
söludag og nú eru
átta þúsund famir.
Um mánaðamótin
verður síðan farsakenndur söng-
leikur frumsýndur í Þjóðleikhúsinu,
Átta konur, með snillingnum Krist-
jáni Ingimarssyni og átta flinkum
leikkonum undir stjóm Eddu
Heiðrúnar. Leikfélag Reykjavíkur
stefriir í frumsýningu á farsa eftir
Ray Cooney, sem er mikill meistari í
að taka farsa og hressa þá við. Svo
er bætt um betur í Sogamýrinni.
Gfeli Rúnar Jónsson hefur snittað
Viltu finna miffjón? að íslenskum
húmor. Er nema von að Guðjón
Pedersen boði hátíð hláturs í vor...
• ísfirðingar em þessa dagana á
fullri ferð í undirbúningi Aldrei fór
ég suður - tónlistarhátíðar alþýð-
unnar. Hátíðin er
hugarfóstur Mugi-
sons og Mugga föð-
ur hans og verður
haldin í þriðja skipti
15. apríl. Dagskráin
hefur smám saman
tekið á sig mynd og meðal stað-
festra atriða em Benni Hemm
Hemm, Rass, Mr. Silla og Hermi-
gervill. í dag bjóða ísfirðingar síðan
fréttamönnum í flugferð til sín á
blaðamannafund þar sem hulunni
verður svipt af herlegheitunum...
• Sakamálaþættimir Allir litir hafs-
ins em kaldir eftir önnu Th. Rögn-
valdsdóttur em nú
komnir í bfóútgáfu á
boðveitur Símans.
Bíóútgáfan var alltaf
fyrirhuguð og klippt
að nýju samhliða
vinnslu fyrir Sjón-
varpið. Þeir sem
hafa tengst ágætri heimabíóveitu
Símans vita að þar er margt gott í
boði en eftirsóttasta mynd þeirra til
þessa var einmitt íslensk: Strákamir
okkar eftir Róbert Douglas...
• Þótt lítið fari fyrir þeim vinna
Gunnar Karlsson og félagar í Caoz
teiknimyndagerð
hörðum höndum
þessa dagana. Nú í
vor gefst íslending-
um loks tækifæri á
að sjá önnu og
skapsveiflurnar,
stuttmyndina sem
Terryjones, Björk, DamonAlbam
og fleiri tala inn á. Þá undirbýr fyrir-
tækið 26 þátta röð eftir sömu sögu
Sjón, sem selja á út um allan heim.
Flestir hljóta þó að vera spenntastir
að sjá hvemig stórmyndin Thor
gengur en ef marka má sýnishorn á
caoz.is er von á góðu...
Svartar skýrslur skandinavískra Q ármálafyrirtækj a hafa komið fram í stórum stíl og
valdið talsverðu uppnámi í íslensku efnahagslífi. Þeim mun neyðarlegra var þegar
viku áður en opinbera átti mikla auglýsingaherferð sem Hvíta húsið hafði unnið fyr-
ir Glitni kom í ljós að auglýsingarnar voru sláandi líkar auglýsingum norska bank-
ans Fokus Bank.
Glitnisherferð eins og
norsk bankaauglýsinn
„Þetta er algjör tilviljun. Jú, þetta eru sláandi líkindi. Sjokk? Jú. Það
má segja það. Þetta er afar óheppileg úlviljun," segir Sverrir Bjöms-
son framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hvíta hússins.
Starfsmönnum Hvíta hússins brá
illilega í brún þegar í sömu vikunni
og þeir hugðust hefja auglýsingaher-
ferð sem þeir höfðu verið mánuði að
undirbúa fyrir Glitni komu fram
auglýsingar frá norska bankanum
Fokus Bank. Þar er byggt á sömu
hugmyndinni með að setja línurit í
andlit manna. Hækkandi vextir.
Sömu skiiaboðin um allan heim,
Línan á grafinu vísar vitanlega upp.
Og passar við reynslunnar hrukkur
eða hárlínur mannanna.
„Það varenginn tími
tií að breyta þessu.
Þama liggur margra
mánaða undirbún-
ingsvinna til grund-
vallar."
Óheppleg tilviljun
Enginn tími til breytinga
Sverrir segir Glitni með starfsemi
í Noregi og því hafi norskir auglýs-
ingamenn komið að herferðinni. Og
þeir hafi gert viðvart strax þegar aug-
lýsingar Fokus Bank birtust - sem
var fáeinum dögum áður en hefja
átti auglýsingaherferðina. Þannig að
starfsmönnum Hvíta hússins var
kunnugt um þetta
og áttu ekki sæla
daga þegar verið
var að ákveða
hvað skyldi til
bragðs taka.
„Það var enginn
tími til að breyta
þessu. Þarna liggur
margra mánaða und-
irbúningsvinna til
grundvallar," segir
Sverrir.
Þó tókst að
breyta þeim auglýs-
ingum sem ætlaðar
eru hinum
norska mark-
aði. En ekki er
eins umfangsmikil
auglýsingaherferð
fyrirhuguð þar og
hér á landi.
Þetta skrifast því á reikning
óhepplegrar tilviljunar. Sverrir segir
stundum koma upp í auglýsinga-
bransanum samliggjandi hugmynd-
ir. Og að þessu sinni var þetta sérlega
meinlegt því þetta gerðist í sömu vik-
unni. Hann segir jafnframt að stund-
um seilist menn lángt í að draga upp
líkindi. Og þá er stundum tcdað um
auglýsingar sem hafa verið lengi í
gangi. Og menn standi þá
ávallt í þeirri trú að
það sem erlent sé
hafi komið á und-
Enginn lúður
fyrir Glitni
Sverrir kom
til lands-
ins,
an.
Sverrir Björnsson Starfs-
mönnum Hvlta hússins brá
talsvert þegar þeir sáu
norsku auglýsingarnar.
Boligkreclitt fra
3,53%
effektiv rente
Norski bankinn Var
aðeins á undan Glitni
sem varð að breyta aug-
lýsingum sínum ÍNoregi.
MYTT NAFN
MÝ T'ÆKIFÆfí i
'yrlrt.tíki iv x’iv.'.r
a.y' f rl!ftC;dlúvt Uiuiil oifui
▲
Abenieen
Glitnir Hérliggja hrukk-
urnar á enni til grund-
vallar línuritinu. Meinleg
Ifkindi við Fokus Bank.
Fokus Bank Hér er línu-
ritið við augnhrukkur og
einmitt frá Noregi, í gær. Og Sverrir
reynir ekki að halda því ffarn að aug-
lýsingar Hvíta hússins hafi verið
undan þeim norsku þó freistandi sé.
„Ég sá þessar auglýsingar einmitt
þarna úti í Noregi. Við tökum þetta
lengra og teygjum yfir á fjöll og
byggingar. Línuritin eru einskorðuð
við andlit í Noregi."
Margir vilja halda fram að sam-
keppnisaðilar í Skandinavíu séu nú
að koma höggi á íslenska keppi-
nauta sína í bankamálum með
svörtum skýrslum. í ljósi þess telst
þetta meinlegra slys en annars. Og
vafasamt telst að Hvíta húsið fái
Bjarni Ármannsson
Bankastjóri Glitnis berst
nú við skandinaviska
keppnauta á ýmsum
vígstöðvum.
lúður hjá IMARK fyrir
þessa herferð þó
mjög mikil vinna
liggi að baki.
jakob@dv.is
505 nýjar myndavélar og 1200 nýir lögreglumenn
Hert öryggisgæsla á götum New York
Lögreglan í New York-borg
hyggst koma fyrir 505 eftirlits-
myndavélum í borginni á næstu
mánuðum. Ekki verður gefið upp
hvar myndavélarnar verða nákvæm-
lega. Þó verður þeim komið upp á
svæðum þar sem glæpatíðni er há
og við byggingar sem gætu verið lík-
leg skotmörk hryðjuverkamanna.
Þær verða fyrst settar upp í Brook-
lyn, í tilraunaskyni, en síðan verður
þeim dreift um borgina.
Einnig verður lögreglumönnum
fjölgað. 1200 nýir lögreglumenn
verða ráðnir til þess að hafa eftirlit
með götum borgarinnar. Einnig eru
hugmyndir um að girða Manhattan
af með svokölluðum stálhring, svip-
uðum þeim sem er í Lundúnum. Þar
í borg eru myndavélar við 16 inn-
komuleiðir að miðsvæði borgarinn-
ar.
Teknar eru myndir af öllum bfl-
New Vork Lögreglan iNew
York fær veglegan liðsstyrk
1200 manna á næstunni
númerum og andlitum bílstjóra.
Myndirnar eru síðan skannaðar inn
í gagnagrunn og athugað hvort þar
sé á ferðinni hættulegur einstakling-
ur. Á síðasta ári voru 37 milljón bfl-
númer skönnuð inn í kerfið og leiddi
það til 550 handtakna.
Stóri bróöir Fylgist með en 505 ör-
yggismyndavétar bætast i hóp
þeirra hundraða sem eru þar fyrir.
Nýnasistar
í sportfötum
Yfirmenn þýska fyrirtækisins
Quelle, sem sérhæfir sig í að selja
fatnað í gegnum pöntunarlista,
hyggjast hætta að selja breska Lons-
dale-sportfatnaðinn. Ástæðan fyrir
því er sú að Lonsdale-vörumar em
vinsælar meðal nýnasista, vegna
þess að stafhimir NDSDA koma
fram f merld fyrirtæksins, en
skammstöfun nasistaflokks Adolfs
Hitler var NDSDAP. Lonsdale-fatn-
aðurinn hefur þó ekkert að gera með
nasistaflokkinn og hefur fyrirtækið
meðal annars lagt íjármagn í baráttu
samkynhneigðra og til þess að bæta
stöðu innflytjenda á Englandi.