Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2006, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006
Menning DV
Björn og Benny Söng-
\ leikurþeirra um vestur-
fara verður settur upp I
Minneapolis I vor.
Reynsla sögunnar kenn-
ir okkur að hingað til hefur
engin stétt af frjálsum og
fúsum vilja hleypt annarri
stétt upp að hlið sér.
Uimjón: Wrnnn Hrefna Sigufjóhajóttir hrofnaidv.ls
Jósef Stalín.)
Bréfín hennar
Maríu
í erindi
sínu „Úr
minjasafni
föðurins'' á
Menningar-
torgi Háskól-
ans á Akur-
eyri í hádeginu í dag fjaliar Helga
Kress um ævi Maríu Stephensen
(1883-1907), laundóttur Þorvalds
Thoroddsen, náttúrufræðings og
síðar prófessors í Kaupmanna-
höfn, sem hann eignaðist með
vinnukonu á Möðruvöllum þegar
hann var þar kennari.
María ólst upp við gott atlæti
hjá fósturforeldrum á Akureyri og
fékk alla þá menntun sem um síð-
uslu aldamót stóð stúlkum til boða
á íslandi. Hún lagði einkum stund
á tóniist og tungumál og langaði til
að fullnuma sig í píanóleik erlend-
is. Þar mætti hún hins vegar fyrir-
stöðu, m.a. hjá föður sínum sem
bauðst til að styrkja hana til barna-
kennaranáms. Áður en úrslit feng-
ust í því níáli veiktist María af
berklum og lést á heilsuhæli í Dan-
mörku aðeins tuttugu og þriggja
ára að aldri. Hún lét eftir sig nokk-
uð af bréfum sem varðveist hafa í
bréfasafni Þorvalds í Konungsbók-
hlöðunni í Kaupmannahöfri, en
þar er einnig að finna bréf frá fóst-
urforeldrum Maríu, fjölskyldu Þor-
vaids sem og uppköst að mikil-
vægustu bréfum hans sjálfs til
Maríu og fósturforeldra hennar
(sem að öðru leyti virðast hafa
glatast).
Úr þessum efnivið og ekki síst
orðræðu bréfanna, má rekja ævi-
sögu Maríu frá skfrn til greftrunar,
viðbrögð við fæðingu hennar og
tilvist sem óskilgetins bams,
menntaþrá hennar og leit að sjálfs-
mynd, ást og umhyggju fósturfor-
eldranna og höfnun föðurins sem
hún dáði mjög og vildi allt til vinna
að gera tii geðs. Ævi Maríu og um-
hverfi gefa tilefni til ýmissa
kvennafræðilegra spurninga auk
þess sem komið verður inn á per-
sónuleg bréf sem heimildir og þau
siðfræðilegu vandamái sem felast í
birtingu slíkra bréfa.
Nýr en þó gamall söngleikur eftir þá Abba-bræður er í uppsiglingu vestan hafs
Vesturfararnir á svið
Þeir Abba-bræður eru enn í
sókn á söngleikjasviðinu: Mamma
mia hefur selt miða víða um heim
fyrir einn og hálfan milljarð dala
og nú eru þeir að leggja í frekari
útveg með nýjan „gamlan" söng-
leik, Kristinu. Á föstudag heldu
þeir kynningu á Broadway á söng-
leiknum sem frumsýndur var fyrir
rúmum áratug í Svíþjóð en fór
ekki víðar. Benny Andersson og
Björn Ulvaeus hafa lengi verið að
vinna í söngleikjum. Þeir sömdu
Chess á sínum tíma í London en á
Broadway floppaði verkið 1988.
Næsta verk þeirra á þessu sviði var
unnið í Svíþjóð frá grunni og leik-
ið í Málmey við miklar vinsældir
enda þjóðkunnugt í Svíþjóð. Það
kom út á þremur diskum og er
metnaðarfull tilraun til að takast á
við þetta erfiða form: söngleikinn.
Kristina stendur miklu nær Vesal-
ingunum og öðrum sögulegum
verkum, einkum frá Frakklandi,
sem hafa raunar fæst náð inn á
engilsaxneska og norræna mark-
aðinn. Það eru vesturfarasögur
Viihelms Moberg sem eru grunn-
urinn að söngleiknum. Þær hafa
komið út hér á landi og eru raunar
þekktar af áhrifamikilli kvikmynd
og sjónvarpsþáttum frá 1971.
Nýja útgáfan hefur verið samin
upp. Herbert Kretzmer hét sá sem
var kallaður til að endursemja
Vesalingana eftir frumsýningu
þeirra í París á vegum Roberts
Hossein og hefur nú skrifað söng-
texta upp úr sænsku útgáfunni
sem Benny samdi upphaflega. Þá
var John Weidman, sem samdi
bókina að Pacific Overtures og
Assassins eftir Stephan Sondheim,
fenginn til að endurvinna handrit-
ið. Verkið er enn talið of langt, þrír
tímar eru erfiðir í söngleikjaformi.
Gestir húsanna á Broadway vilja
léttara efni. En þeir Andersson og
Ulvaeus eru hvergi bangnir, og
framleiða amerísku versjónina
sjálfir. Sviðsetningin byrjar göngu
sína í Minneapolis þar sem gamalt
samfélag af norrænum stofni er
Valur málar sjóara
Á morgun opnar naívistinn Val-
ur Sveinbjörnsson sýningu í Bog-
anum í Gerðubergi. Sýningin ber
yfirskriftina Margræðir heimar
Valur Sveinbjörnsson er jafn-
gamall íslenska lýðveldinu. Sextán
ára gamall hóf hann nám í vélvirkj-
un en jafnframt náminu stundaði
hann sjó.
Hann starfaði síðan sem vél-
virki á gömlu togurunum og einnig
á varðskipum þegar landhelgin var
í 50 mflum. Valur var alltaf síteikn-
andi þegar hann var yngri og var
.þess vegna 13 - 14 ára gamall
sendur á myndlistarnámskeið fyrir
börn og unglinga, sem í þá daga
voru haldin í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. Fékkst hann þar
við teikningu, málun og leirmót-
un. Hann kveðst einnig alltaf hafa
verið teiknandi á sjónum, mest fé-
laga sína sem þáðu gjarnan teikn-
ingarnar, þvi enga þeirra á hann
sjálfur i dag.
Valur tók aftur upp málun upp
úr fimmtugu, og hann málar aðal-
lega með akrýllitum og vatnslitum.
Oft eru þetta myndir af gömlum
félögum frá sjómannsárunum og á
Valur Sveinbjörnsson listamaður
Er að sögn naivisti og opnar sýningu
á morgun.
bakhlið myndarinnar skráir hann
gjarnan sögu eða sögubrot til skýr-
ingar. Einnig málar hann óhlut-
bundnar myndir. Ein myndanna á
sýningunni er að sögn ekki óáþekk
málverkum Cobra-málaranna, lit-
ríkt málverk sem Valur var 3 mán-
uði að fullvinna. Aðrar sýna skips-
félaga og skipstjóra sem hann
kynntist á sjónum og enn aðrar
spretta fram úr hugarfluginu sem á
sinn eigin tilverurétt. Sýningar-
stjóri er Harpa Björnsdóttir, en
sýningin stendur til 30. aprfl.
sterkt. Síðan er fyrirhuguð frum-
sýning á Broadway eftir ár.
pbb@dv.is
■HHRMMMMHM
FERMINGARDAGURINN MINN
Gestabók • Myndir • Skeyti
LÍTIÐ VIÐ I NÆSTUOG BIDJIÍDj
UM UM FERMINGARDAGINN J
MINN
JctTOing.irð.vnmnn mhm
kVi'.Abii - OTytvJMT
Skeyn
<4
4$^
MÚLALUNDUR $
FÆST Í ÖLLUM HELSTU BLÓMA-
OG BÓKAVERSLUNUM LANDSINS VINNUSTOFA SlBS • Hátúni 10c • Pósthólf 5137 • 125 Reykjávik