Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Qupperneq 4
4
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85/FYLGIRIT 38
Ágrip
Inngangur: Tilkoma nútíma geðlyfja á sjötta
áratugnum gjörbreytti meðferðarmöguleikum
og batahorfum geðsjúkra. A síðasta aldarfjór-
ðungi hefur sala geðlyfja sveiflast upp og nið-
ur, en síðan 1989 hefur hún aukist stöðugt, að-
allega vegna tilkomu nýrra geðdeyfðarlyfja,
SSRI lyfjanna (selective serotonin reuptake in-
hibitors). Þau eru dýr svo að kostnaður vegna
geðdeyfðarlyfja hefur rúmlega ferfaldast á
meðan lyfjakostnaður í heild hefur aukist um
rúm 43%.
Tíðni þunglyndisraskana: Þunglyndisrask-
anir eru algengar og valda mikilli vanlíðan og
eru helsti áhættuþáttur sjálfsvíga. Nærri einn af
hverjum fimm landsmönnum mun veikjast af
slíkri röskun einhvern tímann á lífsleiðinni,
fleiri konur en karlar. A hverjum tíma þjást 5-
8% fullorðinn af þunglyndisröskun. Þær valda
miklum beinum og óbeinum kostnaði.
Kostnaður: Ætla má að beinn kostnaður
vegna þunglyndisraskana hafi ekki verið undir
2,5 milljörðum króna á síðasta ári, þar af 700
milljónir vegna geðdeyfðarlyfja.
Greining: Til að greina þunglyndisröskun
þurfa sjúklingar að uppfylla ákveðin skilmerki,
til dæmis samkvæmt sjúkdómaflokkun Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar. Sjúkdómarnir koma
oft í köstum, sem hægt er að fyrirbyggja með
viðeigandi meðferð. Hluti sjúkdómstilvikanna
verða langvinn.
Depurð sem er aðaleinkenni þunglyndisrask-
ana er einnig algengt einkenni í öðrum sjúk-
dómum. Sjúklingar eru oft með fleiri en eina
sjúkdómsgreiningu samtímis.
Meðferð: Geðdeyfðarlyf eru algengasta og
virkasta meðferð við þunglyndisröskunum, en
ýmiss konar sértækri samtalsmeðferð er einnig
beitt af þeim sem til þess hafa kunnáttu og
reynslu. Rétt notkun og val lyfja krefst þekk-
ingar og reynslu.
Lyfjanotkun: Lyfin verka yfirleitt ekki fyrr
en eftir tvær til þrjár vikur og eins og flest lyf
sem gera gagn fylgja þeim aukaverkanir hjá
sumum sjúklingum. Þær kom oft fram á undan
verkun á þunglyndisröskunina. Þetta meðal
annars leiðir til þess að meðferðarheldnin er
ekki nema í kringum 50%.
SSRI lyfin eru auðveldari í skömmtun en
TCA lyfin (tricyclic antidepressives) og hefur
það ásamt mjög virkri markaðssetningu leitt til
hinnar gífurlega auknu sölu á þeim, svo að
sölumagnið er meira en svarar til algengis
þunglyndisraskana. SSRI lyfin eru viðbót við
eldri TCA lyfin. Enn nýrri (og dýrari) lyf hafa á
síðustu árum að nokkru komið í stað fyrstu
SSRI lyfjanna.
Lyfjaávísanir: Það lyfjamagn sem læknar
ávísa utan sjúkrahúsa hefur aukist í takt við
söluaukninguna. Avísanir heilsugæslulækna
sem voru mestar fyrir hafa aukist langmest.
Konur sem fá ávísun á geðdeyfðarlyf eru
tvisvar sinnum fleiri en karlar, og hlutfallslega
miklu fleira eldra fólk fær slíkar ávísanir, þrátt
fyrir að sjúkdómsalgengið sé lítt háð aldri.
Ætla má að þunglyndisraskanir hafi ekki verið
greindar nema hjá hluta þeirra sem fengu geð-
deyfðarlyf.
Umræða: Þrátt fyrir hina miklu notkun geð-
deyfðarlyfja hefur innlögnum vegna þunglynd-
israskana á geðdeild Landspítalans, viðtölum
hjá geðlæknum og örorkulífeyrisþegum vegna
þunglyndis- og kvíðaraskana ekki fækkað og
tíðni sjálfsvíga er óbreytt. Hins vegar batna
heilsutengd lífsgæði sjúklinga með þunglynd-
israskanir við sérhæfða meðferð.
Nauðsynlegt er að framkvæma ákveðnar far-
aldsfræðilegar rannsóknir til þess að kanna bet-
ur hvort og hvað árangri hin mikla lyfjanotkun
hafi skilað fyrir heildina og til þess að gera
meðferðina markvissari, einkum fyrir hina
yngri og þá mest veiku. Við skimrannsókn
1984 á úrtaki fólks á aldrinum 20-59 ára reynd-
ist algengi þunglyndis- og kvíðaraskana 16%.
Komi í ljós að algengi þessara raskana hafi
minnkað í kjölfar hinnar stórauknu notkunar
geðdeyfðarlyfja má telja að 700 milljónum
króna hafi verið vel varið á síðasta ári.