Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Síða 14
14
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85/FYLGIRIT 38
ekki leitað meðferðar og of margir sem það
hafa gert hafa ekki fengið fullnægjandi með-
ferð (27). Þetta má meðal annars sjá af því að
aðeins 0,9% fullorðinna í Reykjavík fengu
ávísun á geðdeyfðarlyf utan sjúkrahúsa árið
1984 fyrir að jafnaði aðeins 66 mg á dag af
amitriptýlíni (28). Heimilislæknar ávísuðu
jafnvel enn minna magni eða 56 mg á dag að
jafnaði, sem raunar er sama magn og heimilis-
læknar í Bretlandi ávísuðu (29). Vegna þess hve
depurð er algengt viðbragð við ýmsum áföllum
áttar fólk sig mjög oft ekki á, að depurðin getur
líka verið hluti af alvarlegu sjúkdómsástandi;
þunglyndisröskun, sem þarfnast sértækrar
meðferðar. Depurð er einnig algengt einkenni
við ýmsa aðra sjúkdóma eins og meðal annars
sést af því hve oft er gripið til geðdeyfðarlyfja
án þess að þunglyndisröskun hafi verið greind.
En of oft hafa hvorki læknar né sjúklingar áttað
sig á að í slíkum tilvikum getur depurðin verið
hluti af þunglyndisröskun sem sjúklingurinn
hefur samtímis öðrum sjúkdómum. Ónóg með-
ferð með TCA lyfjum virðist vera reynsla víðar
(30), en einn skilgreindur dagskammtur af ami-
triptýlíni er 75 mg sem raunar er ekki nema um
helmingur af því sem geðlæknar telja nauðsyn-
legt til að sjúklingar með geðlægð nái bata.
TCA lyfin þarf að auka hægt hjá sjúklingunum
og sum þarf að gefa í fleiri skömmtum á dag.
SSRI lyfin eru gefin einu sinni á dag og nægir
það í flestum tilfellum. Þannig er miklu auð-
veldara að ávísa og taka hæfilega skammta af
SSRI lyfjum heldur en TCA lyfjum. Því hefur
einnig verið haldið fram að þau hafi færri hlið-
arverkanir aðrar en mikinn kostnað.
Enn er óljóst hvort réttir sjúklingarnir fá
rétta meðferð í réttum skömmtum á réttum tíma
og í réttan tíma. Hafa nýju geðdeyfðarlyfin
komið í stað eldri lyfja? Er notkun lyfjanna
svipuð hér á landi og gerist á örðrum Norður-
löndum?
Sala geðdeyfðarlyfja nærri
ferfaldaðist á 10 árum
Sala geðdeyfðarlyfja hefur um langt skeið
verið heldur meiri á Islandi en hinum Norður-
löndunum. Hún óx smám saman á árunum
1981-1989 með tilkomu nýrra lyfja, sem að
vísu voru skyld eldri þríhringlaga geðdeyfðar-
lyfjunum (TCA). Árið 1989 var skráð fyrsta
geðdeyfðarlyfið af nýrri tegund, sem hamlar
sérhæft endurupptöku serótóníns í taugaendum
(SSRI lyf) og verkar þannig gegn þunglyndis-
röskunum. Þar með byrjaði sala geðdeyfðar-
lyfja að aukast á ný og hefur síðan aukist hröð-
um skrefum, einkum frá 1993, en síðan hefur
salan hátt í þrefaldast (mynd 2), en þre- og hálf-
faldast frá 1989 (1).
Árið 1996 bættist við enn nýtt lyf, venlafax-
ín, sem að verkun er skyldara eldri lyfjunum.
Þrátt fyrir hina stórauknu notkun SSRI lyfjanna
hefur notkun hinna eldri lyfja, TCA lyfjanna,
minnkað lítið og kostnaður þeirra vegna hefur
minnkað rúmlega tilsvarandi. Mynd 3 sýnir
glöggt hvernig sala SSRI lyfjanna hefur snar- um nýjum geðlyfjum hefur vaxið frá síðari
aukist frá miðju áru 1993 og hvernig sala á öðr- hluta árs 1996.
SDS* á 1000 íbúa á dag
60-i
■ SSRI lyf
□ Önnur lyf
t- c\j co ^ Ln,cD,r^ cO)CT,o,í-.cMicoj^-in.co. co
CO CO CO 00 COiCO,CO'CO|COia5,CT>iCT))CT>)CT>,CT>,CT> CT CT)
CT CT CT CT) CTiCT,CTCT)CTiCT,CTiCT)CT>CT)CTiCT CT CT
Ar
Mynd 2. Sala geðdeyfðarlyfja 1981-1998.
* Skilgreindur dagskammtur.