Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85/FYLGIRIT 38
17
Hverjir ávísa geðlyfjum?
Lyfseðlakannanir
En hvaða áhrif hafa SSRI lyfin og önnur ný
geðdeyfðarlyf haft? Hafa þau komið í stað
gömlu geðdeyfðarlyfjanna? Hefur notendum
lyfjanna fjölgað? Hefur kynja- og aldursskipt-
ing þeirra breyst? Hverjir ávísa mismunandi
aldurshópum þessum lyfjum og hefur dreifing
ávísananna milli sérgreina lækna breyst?
Gögn
Til þess að leita svara við þessum spurning-
um voru allir lyfseðlar, sem Reykvíkingar fengu
fyrir geðdeyfðarlyfjum í marsmánuði 1984 og
1993 og fengu afgreidda í einhverju apótek-
anna í Reykjavík, rannsakaðir að fengnum við-
eigandi leyfum. A fyrra tímabilinu fengu 652
sjúklingar 15 ára og eldri ávísað slíkum lyfjum,
en 1132 á því síðara. Nú hefur Tryggingastofn-
un ríkisins góðfúslega látið í té upplýsingar um
aldurs- og kynjaskiptingu þeirra sem fengu
geðdeyfðarlyf úr fimm apótekum í Reykjavík
og nágrenni í janúar 1999 ásamt upplýsingum
um hvaða læknahópar hafi ávísað lyfjunum
(31). Samtals voru innleystar ávísanir fyrir
52.575 skilgreindum dagskömmtum handa
sjúklingum 15 ára og eldri, sem gera má ráð
fyrir að sé handa um 1750 sjúklingum. Gögnin
frá 1984 og 1993 voru notuð til að reikna al-
gengi geðlyfjanotkunar eftir aldri og kyni, en
gögnin frá 1999 til að skoða aldurs- og kynja-
skiptingu eftir sérgrein lækna sem ávísa lyfjun-
um til samanburðar við fyrri rannsóknirnar.
Niðurstöður þessara athugana á lyfseðlum hafa
verið skoðaðar í samhengi við þróun sölu geð-
deyfðarlyfja frá 1981 mældri í fjölda skil-
greindra dagskammta (SDS) á hverja 1000
íbúa á dag.
Niðurstöður
í mars 1984 fengu 0,7% karla og 1,2%
kvenna í Reykjavík geðdeyfðarlyf utan sjúkra-
húsa, en í sama nánuði 1993 fengu 1% karla og
2% kvenna 15 ára og eldri slík lyf. Það ár nam
sala geðdeyfðarlyfja í heild 25,7 SDS á 1000
íbúa á dag 15 ára og eldri. Algengi lyfjanotkun-
arinnar var 0,2-0,4% hjá þeim sem voru undir
35 ára aldri en óx hratt eftir það, einkum hjá
konum og náði 3,5% á árinu 1993 hjá konum
sem voru 65 ára og eldri. Algengið var meira
%
100-T
90-
1984 1993 1999
■ Geðlæknar □ Lyflæknar
■ Heilsugæslulæknar ■ Aðrir
Mynd 6. Dreifmg sjúklinga semfengu geðdeyfðarlyf í einn mán-
uð 1984, 1993 og 1999 eftir sérgreinum lœkna.
hjá konum en körlum á öllum aldri, en minnst-
ur munur í yngstu aldurshópunum (32).
Hverjir ávísa geðdeyfðarlyfjum?
Sá hópur sem fær lyfin frá geðlæknum hefur
farið hlutfallslega minnkandi frá 1984. Þá
fengu 38% sjúklinganna lyfin frá geðlæknum,
1984 var hlutfallið komið í 30% og í janúar
1999 var það komið niður í tæp 20%. Hlutur
heilsugæslulækna af ávísununum óx úr 41% á
árinu 1984 í 60% 1999. Hlutur lyflækna er
svipaður 1999 og hann var 1984. Af þessu sést
að ávísanir heilsugæslulækna skýra mest af
magnaukningunni sem orðið hefur í ávísun
geðdeyfðarlyfja (mynd 6).
Hverjir fá geðdeyfðarlyf?
Hlutfall þeirra sjúklinga sem fá geðdeyfðar-
lyf hjá geðlæknum minnkar með hækkandi
aldri og eftir því sem fleiri fá lyfin verður þetta
meira áberandi eins og sést af myndum 7 og 8.
Á árunum 1989 og 1993 fengu 40-50% sjúk-
linga á aldrinum 15-34 ára lyfin frá geðlæknum
en ekki nema 10% þeirra sem voru yfir 75 ára
aldri (mynd 7). Á þessu ári (1999) fær þriðj-
ungur þeirra sem eru undir 45 ára aldri lyfin frá