Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Síða 22
22
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85/FYLGIRIT 38
Mynd 11. Heilsutengd lífsgœði þunglyndra í upphafi meðferðar og eftirþrjá mánuði (41).
Meðaleinkunn lífsgœða hjá fullorðnum Islendingum er 50.
* p<0,05; ** p<0,01.
ið rannsökuð og reyndust miklum mun lakari en
almennt gerist hjá fólki á sama aldri og raunar
lakari á mörgum þáttum en lífsgæði annarra
sjúklinga (41). Þremur mánuðum síðar kom í
ljós að lífsgæði sjúklinganna höfðu batnað, en
samt vantaði verulega á að þau næðu meðaltali
fólks almennt (mynd 11). Þessi niðurstaða kallar
að sjálfsögðu á betri og virkari meðferð. Tilsvar-
andi rannsókn er nauðsynlegt að gera á heilsu-
tengdum lífsgæðum sjúklinga, sem fá meðferð
með geðdeyfðarlyfjum í heilsugæslunni.
Auglýsingar og kynningar á lyfjum
Upplýsingar frá lyfjaiðnaðinum í formi aug-
lýsinga og kynninga eru venjulega aðgengileg-
ar eftir öllum samskiptaleiðum, munnlegum,
skriflegum og rafrænum. Miklum peningum er
varið í áróður fyrir nýjum lyfjum enda eru upp-
lýsingar frá lyfjaiðnaðinum aðgengilegar og
aðlaðandi og auðvelt er að melta þær og skilja.
Hins vegar er í þessum áróðri, af viðskipta-
ástæðum, oftast einungis lögð áhersla á já-
kvæða hlið viðkomandi lyfs en horft fram hjá
eða lítill gaumur gefinn neikvæðum hliðum.
Þetta kemur að sjálfsögðu ekki á óvart, þar sem
aðalmarkmið lyfjafyrirtækis með auglýsingum
og kynningum á lyfi er að selja eins mikið og
mögulegt er á eins háu verði og mögulegt er.
Algengast er að beita svokallaðri „multi-
track“ aðferð við kynningar á nýjum lyfjum.
Þetta þýðir að upplýsingum er komið á fram-
færi eftir mismunandi leiðum. Notast er við
lyfjakynna og ráðstefnur og ráðstefnuferðir eru
skipulagðar og kostaðar, kynningar og auglýs-
ingar birtar í tímaritum, gjafir og viðurkenning-
ar gefnar og notast við póstsendingar með upp-
lýsingum og áróðri. Frá sjónarhóli lyfjaiðn-
aðarins næst hvað bestur árangur með lyfja-
kynnum og mun betri en með póstsendingum
einum og sér. Iðulega fer yfir 50% af þeim fjár-
munum sem eytt er til kynningarstarfs til að
greiða lyfjakynnum, sem í sumum löndum geta
verið starfandi læknar og lyfjafræðingar á
sjúkrahúsum, heilsugæslustöðum og í apótek-
um eða í fullu starfi sem lyfjakynnar.
Athugun gefur leitt í ljós að um 12 milljörð-
um dollara sé eytt í auglýsingar og kynningar á