Þjóðlíf - 01.11.1986, Side 4
EFNISYFIRUT
FORSÍÐAN 22
Forsíðuefnið fjallar um mál, sem hingað til hefur legið I algjöru
þagnargildi meðal íslendinga - en hefur ætíð verið til. Sifjaspell
eru tíðari en nokkurn grunar, svo og önnur kynferðisleg misnotkun
á börnum og unglingum. Hór er fjallað ítarlega um þetta tabú eða
bannorð og rætt við 27 ára konu, sem var nauðgað af stjúpföður
sínum er hún var 14 ára gömul.
VIÐTALIÐ 8
Þröstur Ólafsson er umsvifamikill athafnamaður í íslensku við-
skiptalífi auk þess að vera framkvæmdastjóri eins stærsta verka-
lýðsfélags landsins. Hann er einnig í forystusveit Alþýðubanda-
lagsins og hefur oft verið nefndur sem arftaki annars sætis á lista
flokksins í Reykjavík. Hann hefur sætt mikilli gagnrýni á umliðnum
árum fyrir störf sín, en enginn efast um viðskiptahæfileika hans.
Hvað segir hann sjálfur um málið?
MYNDLIST 14
Slgur&ur Þórlr Slgurðsson opnaði einkasýningu á verkum sínum
þann 8. nóvember í nýju galleríi í Reykjavík.
FJÖLMIÐLAR 16
Ólafur Hauksson er best þekktur sem ritstjóri tímaritsins Samú-
els. Hann hefur á undanförnum árum barist fyrir frelsi útvarps og
sjónvarps - og hefur nú séð þann draum sinn rætast. Hann var
einn stofnenda íslenska útvarpsfélagsins en sagði sig úr því vegna
óánægju með framkomu annarra.
EFNAHAGSMÁL 19
Að undanförnu hefur rækilega verið tíundað í fjölmiðlum, að ís-
lendingar búi nú við mikið gó&æri, jafnvel meira en oft áður í sögu
þjóðarinnar. Birgir Árnason, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun,
fjallar um málið.
FATNAÐUR 34
Slgrún Guðmundsdóttir mun frá og með næsta blaði fjalla um
fatnað, kynna efni og liti, strauma og stefnur, og gefa nytsamar
ábendingar. Hún skrifaði bókina Föt fyrir alla, sem notið hefur
mikilla vinsælda, og nú er að koma út eftir hana bók um fatnað á
börn. ÞJÓÐLÍF kynnir Sigrúnu í þessu tölublaði.
FRÉTTIR
Sagt frá Þórunnl Sigurðardóttur og nýju leikriti hennar, Jóhönnu
Harðardóttur á Bylgjunni og mörgu fleiru.
TÓNLIST 39
Ung bandarísk söngkona hefur slegið í gegn í heimalandi sínu og í
Evrópu á undanförnum mánuðum. Andrea Jónsdóttir segir frá
blökkukonunni Whitney Houston.
HÖNNUN 41
Unnur Úlfarsdóttir fjallar um Bauhaus-hönnunina margfrægu,
en sú hönnunarstefna átti sitt blómaskeið í Þýskalandi á þriðja
áratug aldarinnar og lifir enn góðu lífi meðal okkar í dag.
FÉLAGSMÁL 48
Eru skákmenn skrýtnir? Svo spyrja sálfræðingar og komast aö
þeirri niðurstöðu, að þeir séu a.m.k. um margt ólíkir okkur hinum,
en við seljum þetta ekki dýrar en keypt var! Rætt er við skák-
meistarann íslenska Friðrik Ólafsson.
VERKALÝÐSMÁL 52
Verkalýðshreyfingin er sennilega sú stofnun þjóðfélagsins, sem
mestri gagnrýni sætir. Svanur Kristjánsson ræðir um gagnrýnina
og málsvörn forystumanna verkalýðshreyfingarinnar.
MATARLÍF 58
Við kynnum apríkósu-rjómaostaköku og Tortoni-kaffi.
ALÞJÖDAMÁL 60
Dagur Þorleifsson fjallar um Palestínumenn, uppruna þeirra og
sögulega þróun þess landsvæðis sem jafnan er kennt við Palest-
ínu.
BÓKAMÁL 68
Jólin nálgast nú óðfluga og ekki seinna vænna að kynna hvað
verður á boðstólum á bókamarkaðnum í ár.
BARNALÍF 72
Við kynnum tvær teiknimyndasögur, sem framvegis verða fastir
gestir í blaðinu. Það eru þeir Bragi og Hundurinn, teiknimyndir
handa öllum aldursflokkum. Yngri börnin fá einnig eitthvað við sitt
hæfi.
TÍMARITIB ÞJÓÐLÍF 5. tbl. 2. árg.
Nóvember 1986. Útgefandi: Félags-
útgáfan h.f.. Laugavegi 18A, póst-
hólf 1752, 121 Reykjavík. Ritstjóri:
Auöur Styrkársdóttir. Fram-
kvæmdastjóri: Margrét Hálfdánar-
dóttir. Auglýsingastjóri: Ása Jó-
hannesdóttir. Hönnun og útlit:
Pröstur Haraldsson. Ljósmyndir:
4 ÞJÓÐLÍF
Porvaröur Árnason o.fl. Lit-
greiningar og filmuvinna:' Prent-
myndastofan h.f. Prentun og bók-
band: Prentsmiöjan Oddi h.f.
Útgáfustjórn: Árni Sigurjónsson,
Björn Jónasson, Ingibjörg G. Guö-
mundsdóttir, Reynir Ingibjartsson,
Skúli Thoroddsen (stjórnarformaö-
ur), Svanur Kristjánsson, Þröstur
Haraldsson. Varamenn: Ásdís Ing-
ólfsdóttir, Ólafur Ólafsson, Ómar
Haröarson.
TÍMARITIB ÞJÓÐLÍF kemur út sex
sinnum á ári. Verö í lausasölu kr.
239. Áskriftarverð þriggja tölublaöa
frá september: kr. 633.