Vísbending


Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 16

Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 16
16 Hinn mjói fjörður Yst í Mjóafirði norðanverðum þar sem Austfirðir teygja sig hvað lengst í austur er lítið þorp sem er ekki orðið að eyðiþorpi en berst þvermóðskulega gegn þeim örlögum sínum sem þó virðast nokkuð ljós. Þetta er Brekkuþorp. Þar hefur verið þéttbýli frá seinni hluta 19. aldar og þegar vegur þorpsins var hvað mestur voru þar 24 íbúðarhús og íbúar þorpsins um 150. Þar hóf Konráð Hjálmarsson atvinnurekstur sinn sem hann flutti síðar til Norðfjarðar og náði miklu flugi. Flestir voru íbúar í Mjóafirði öllum um 420 talsins árið 1902 og hefur án efa mátt rekja þá tölu til umsvifa norskra hvalveiðimanna sem hér hafa áður verið nefndir. Lengi vel hélt byggðin í Mjóafirði og Brekkuþorpi velli, en samgöngur á landi eru erfiðar og reiða menn sig á samgöngur á sjó við Norðfjörð. Þegar þetta er ritað er ekki nákvæmlega vitað hve margir hafa fasta búsetu í Brekkuþorpi en 1999 voru þeir 27 og árið 2012 var pósthúsinu lokað. Mun Brekkuþorp hljóta sömu örlög og Hesteyri eða Djúpavík eða mun það rísa úr öskustó fólksfækkunar og samdráttar og taka til flugs á ný? Síldarþorpin þöglu Á Ströndum er að finna nokkra staði sem kalla má eyðiþorp. Segja má að þar séu eftirhreytur þess mikla síldarævintýris sem varð til meðan Íslendingar og Norðmenn voru að ganga milli bols og höfuðs á norsk–íslenska síldarstofninum. Því ævintýri lauk árin 1966-68. Svipað ævintýri gekk yfir Ísland í kringum aldamótin 1900, en í lok nítjándu aldarinnar varð mikill uppgangur í hvalveiðum Norðmanna. Þeir reistu stöðvar til þess að skera og bræða hval á mörgum stöðum á Íslandi. Þegar hefur verið minnst á eina þeirra sem var á Hesteyri en stöðvar voru einnig á Meleyri í Veiðileysufirði, Sólbakka við Önundarfjörð, Suðureyri í Tálknafirði, Askeyri í Mjóafirði austur og í Hellisfirði svo fáeinir staðir séu nefndir. Margar hvalstöðvanna voru aðeins starfræktar í fáein ár og náðu því ekki að hafa teljandi áhrif á byggðaþróun, en öðru máli gegndi um síldina. upphafi 20. aldar og íbúafjöldinn náði hámarki um 1940 þegar 120 manns bjuggu í eynni. Þeir lifðu af sjósókn, höfðu margir dálitlar landnytjar að auki og voru sjálfum sér nógir með mikið af matföngum með þeim hætti, þ.e. áttu kýr, kindur og hænsni. Hinn miskunnarlausi nútími, sem gekk í garð með hersetu og stríði, kom róti á þessa jaðarbyggð og fólki fækkaði jafnt og þétt, sérstaklega eftir 1950. Árið 1967 tóku síðustu 26 íbúarnir sig saman og fluttu í einu lagi yfir flóann til Húsavíkur. Eftir standa íbúðarhús, kirkja, samkomuhús og fáeinir vinnuskúrar. Afkomendur halda húsunum við, en tímans tönn nagar þau eins og annað og verður talsvert ágengt. Á þessum sömu árum varð ámóta þróun í öðrum eyjasamfélögum t.d. á Breiðafirði. Hinar óteljandi eyjar fjarðarins fóru í eyði ein af annarri og um líkt leyti og dyrum var lokað í síðasta sinn í Flatey á Skjálfanda var nafna hennar á Breiðafirði orðin að eyðiþorpi. Í dölum og fjörðum við Skjálfanda sem höfðu mest samskipti við Flatey eins og Flateyjardal, Hvalvatnsfirði og Þorgeirsfirði var áður þéttsetin og blómleg byggð sem naut nálægðar við gjöful fiskimið. Mjög hratt fjaraði undan því sveitasamfélagi og 1944 fóru síðustu bæir í Fjörðum í eyði og kann vel að vera að það hafi haft einhver áhrif á Flateyinga. Árið 1953 fluttu svo síðustu íbúarnir burt af Flateyjardal. Vel má vera umhugsunarefni að meðan eyjar tiltölulega nálægt landi voru að tæmast af fólki hélt samfélagið í Grímsey ávallt velli. Þar er enn byggð sem virðist standa traustum fótum þrátt fyrir einangrun og ýmsar skorður frá náttúrunnar hendi. Samt mætti ætla að þau öfl sem við teljum að hafi eytt byggðum í eyjum og á annesjum hafi getað náð einnig norður að heimskautsbaug. Um það leyti sem Flatey á Skjálfanda fór í eyði var kominn vegur um eyna, vatnsleiðsla komin í öll hús, rafmagn frá dísilstöðvum, gott fjarskiptasamband og ljósmóðir búsett í eynni. Í Flatey eru merkilegar fornminjar sem heita Arnargerði en þar er talið að Stjörnu-Oddi hafi unnið að rannsóknum sínum á gangi himintungla í kringum árið 1100. Þá var Flatey ekki afskekkt sjávarpláss heldur í miðju vísindarannsókna á Íslandi. Hvalveiðistöðinni Heklu á Hesteyri frá 1894 var breytt í síldveiðistöð Kveldúlfs. Mynd: Hjálmar R. Bárðarson 1939.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.