Vísbending


Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 29

Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 29
29 Eigin fangar Þegar ég sat í fjármálaráðuneytinu með evrópska fjárfestingarsjóðnum og hlustaði á íslenska embættismenn tala um flótta frekar en tækifæri, var ég ekki frá því að þarna hafi góðum möguleika á nauðsynlegri uppbyggingu á íslenskum framtaksfjármagnsmarkaði verið klúðrað. Í staðinn fyrir að tala um „flótta“ fyrirtækja hefðum við átt að selja „tækifærið Ísland“ og opna leiðir fyrir sjóðinn til þess að hefja fjárfestingar á Íslandi. Árangur Plain Vanilla að hafa búið til QuizUp, sem hefur vaxið hraðar en nokkur annar leikur í sögu Iphone leikja í heiminum, er bestu fréttir ársins fyrir íslenskt viðskiptalíf. Fyrirtækið skapar ekki einungis verðmæti, þekkingu og ný störf heldur virkar eins og vítamínsprauta fyrir aðra í fyrirtækjarekstri. Enginn vafi er á því, að flæði fjármagns og þekkingar frá fyrirtækinu mun hafa mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf á komandi árum, hvort sem Plain Vanilla verður verðmætt fyrirtæki eða ekki. Útganga á næstu misserum væri stórsigur en ekki tap eða flótti. Það er stór munur á því að vilja búa til aðstæður á Íslandi sem eiga að „fanga“ flóttafyrirtæki framtíðarinnar en að skapa umhverfi þar sem opið kerfi fjármagns-, þekkingar- og verðmætasköpunar er eins og viðskiptasmiðja nýrra vaxtarfyrirtækja. Ísland sem uppspretta tækifæra getur dregið að sér fjármagn og þekkingu og tryggir að fjármagn verði endurfjárfest á Íslandi. Með því að þjóðin gráti börn sem fljúga úr hreiðrinu og vilji halda þeim föngnum verða Íslendingar fórnarlömb eigin þröngsýni. sprotafyrirtækjanna, og komið á samböndum og samvinnu við marga aðila. Annar Íslendingur þar, Davíð Helgason, sem er stofnandi og framkvæmdastjóri Unity Software, hefur einnig stundað viðskipti í dalnum um árabil. Gunnar og Davíð áttu stóran þátt í því að hjálpa Plain Vanilla að fá fjármagn frá erlendum aðilum inn í fyrirtækið á sama tíma og íslenskir fjárfestar sýndu því lítinn áhuga. Án slíkrar fjárfestingar hefði ævintýrið um QuizUp sennilega seint orðið að veruleika. Eitt af því sem einkennir sögu Kísildalsins er hvernig fjármagn, sem hefur orðið til við sölu á fyrirtækjum þar, hefur verið endurfjárfest í dalnum sjálfum. Það sem skiptir þó jafnvel enn meira máli en snjóboltaáhrif þessa fjármagns, er að þeir frumkvöðlar sem fara í gegnum þetta ferli læra mikið á skömmum tíma og eru yfirleitt hæfari en áður til þess að stofna ný fyrirtæki. Jafnframt er algengt að þeir sem hafa verið lykilstarfsmenn fyrirtækjanna verði stofnendur nýrra fyrirtækja. Íslenskt dæmi um þetta er OZ sem Skúli Mogensen og Guðjón Már Guðjónsson stofnuðu saman, en margir starfsmenn þess fyrirtækis hafa leitt uppbyggingu annarra sprotafyrirtækja. Rannsóknir á svokölluðum klösum, þyrpingu fyrirtækja í svipaðri starfsemi, benda jafnframt til þess að þetta yfirflæði þekkingar frá einu fyrirtæki til annars leiki lykilhlutverk í uppbyggingu þeirra, m.a. í Kísildalnum. Hreyfing á fjármagni og þekkingu getur því lagt grunn að uppbyggingu viðskiptalífsins. V M yn d G ei r Ó la fs so n

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.