Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 2

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 2
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 70 Vísindi á vordögum á Landspítala 2012 Landspítalinn hefur þá sérstöðu að vera eina háskólasjúkrahús landsins eins og kveðið er á um í Lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2007. Þar er háskólahlutverk spítalans skýrt tilgreint, þ.e. að annast starfsnám háskólanema og framhaldsskólanema í heilbrigðisgreinum í grunn- og framhaldsnámi, stunda vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, veita há- skólamenntuðum starfsmönnum sérmenntun í heilbrigðisgreinum, gera fagfólki kleift að sinna fræðastörfum við Háskóla íslands eða aðra háskóla og veita háskólafólki aðstöðu til að sinna rannsóknum sem og öðrum störfum við sjúkrahúsið. Þar að auki ber spítalanum að veita heil- brigðisþjónustu sem á hverjum tíma samræmist skyldu slíks sjúkrahúss og reka blóðbanka. Starfsemi spítalans fellur ágætlega að þessum lagaramma. Landspítali er meðal virkustu menntastofnana landsins. Þar fer fram fjölbreytt kennsla og starfsþjálfun nemenda í heilbrigðisvísindum. Á árinu 2011 stunduðu rúmlega 1330 nemendur nám og þjálfun á spítalanum í lengri eða skemmri tíma. Þá stunda starfsmenn Landspítala, sem margir eru jafnframt háskólastarfsmeim, öfluga vísindastarfsemi en afrakstur þess starfs sést vel á uppskeruhátíðinni, sem nú gengur í garð. í ólgusjó rekstrar- og hagræðingarkrafna undanfarinna ára var lagt upp með það að vemda kennslu og vísindi. Þannig var hugsað til fram- tíðar sem og þeirra áhrifa sem virkt rannsóknastarf hefur á gæði gagn- reyndrar þjónustu við sjúklinga. Auðvitað líður samt háskólastarfsemin fyrir fækkun starfsmanna og aukið álag. Eins og sjá má á uppskeruhátíðinni - Vísindi á vordögum - hefur tekist nokkuð að halda í horfinu er varðar birtingu greina, en auknir erfið- leikar í öflun utanaðkomandi styrkja gætu bent til þess að búast megi við því að síðkominna áhrifa fari að gæta. Slík staða er hins vegar fljót að breytast með innkomu fárra en stórra styrkja sem kunna að vera f farvatninu. Gögn frá Thompson Scientific sýna að fjöldi skráðra greina frá íslandi (allar fræðigreinar) hafi lækkað um 15% á árinu 2011 en hin Norðurlöndin halda áfram að bæta við sig. Þó ber þess að gæta að alltaf eru einhverjar sveiflur milli ára. Stjórnendur Landspítala hafa undir forystu Bjöms Zoéga forstjóra staðið að ýmsum framfaramálum á árinu til að vernda og efla kennslu og vísindastarf spítalans. Þann 1. desember voru veittir í annað skipti Hvatningarstyrkir, þrír styrkir að upphæð 3 m.kr. hver. Þremur vikum seinna vom svo í fyrsta sinn veittir 1 m.kr. styrkir til 10 ungra vísindamanna á Landspítala. Með þessum styrkjum hefur orðið tæplega 40% aukning á styrkjafé til Vísindasjóðs sem úthlutað hefur verið á samkeppnisgrundvelli. Þannig hefur á erfiðum tímum tekist að hlúa að vísindastarfi innan Landspítala í samræmi við markmið spítalans og stefnu Vísindaráðs Landspítalans. Árið 2011 var fyrsta heila starfsár Klínísks rannsóknaseturs LSH og HÍ. Mikil eftirspurn hefur verið eftir samvinnu og aðstoð starfsfólks set- ursins og ljóst er að greinileg þörf hefur verið fyrir bætta þjónustu og þátttöku í skipulagningu, samningagerð og framkvæmd lyfjarannsókna. Þátttaka í European Clinical Research Infrastmcture Network (ECRIN) hófst á árinu 2011. Frá EU fékkst 12 m.kr. styrkur til að byggja upp innviði fyrir klínískar rannsóknir við spítalann með það fyrir augum að ísland geti tekið fullan þátt Evrópusamstarfi sem stefnir að því að gera Evrópu að stærra rannsóknarsvæði. Sams konar samvinna er síðan í undirbúningi á Norðurlöndum (NORDICRIN). Unnið hefur verið að því að taka í notkun nýjan alþjóðlegan hugbún- að, Redcap, til að auðvelda aðgengi og utanumhald að gagnagmnnum til vísindarannsókna. En fleira jákvætt er samtímis að gerast. Á árinu 2011 náði Háskóli íslands þeim merka árangri að vera talinn í hópi 300 bestu háskóla heims, en í samanburðarhópnum em um 17.000 háskólar. Framlag Landspítalans til þess árangurs er umtalsverður. í skýrslu Norden/NordForsk fyrir Norrænu ráðherranefndina (Comparing Research at Nordic Universities using Biometric Indicators) sem birtist í maí 2011 kemur fram að spítalinn er efstur norrænna há- skólaspítala á tilvitnanastuðli (1.38 m.v. 1.0 sem alþjóðlegt meðaltal). Þar nýtur Landspítali vissulega samstarfsaðila, s.s. HÍ, ÍE og Hjartvemd, en framlag starfmanna spítalans til vísindaafraksturs þessara stofnana er jafnframt umtalsvert. Árlega nýtur Landspítalinn velvildar fjölda aðila sem láta fé af hendi rakna til starfsemi hans, tækjakaupa og rannsóknastyrkja. Á síðustu missemm hefur verið farið inn á nýjar brautir þar sem Styrktar- og lfloiarsjóður Oddfellow,hefur styrkt myndarlega starfsfólk í klínískum lyfjarannsóknum á illkynja sjúkdómum og Hjartaheill gefið sérstaka dúkku til þjálfunar og kennslu í endurlífgun. Þótt þessi framlög tilheyri vísindum og kennslu koma þau ekki síður að þjónustu við sjúklinga með því að flýta aðgegni á nýjum lyfjum og þjálfa fæmi starfsfólks í bráðatilvikum. Þá er verið að taka fyrstu skrefin í átt að skipulögðu nýsköpunar- starfi sem byggja mun á frjóu vísinda-, mennta- og gæðastarfi og hag- nýtingu þess mannauðs sem spítalinn hefur yfir að ráða, vísindamanna, kennara, nemenda og alls starfsfólks spítalans. í nóvember auglýsti Tækniþróunarsjóður styrki til nýsköpunarfyrirtækja í samvimiu við opinbera samstarfsaðila á sviði heilbrigðismála, menntunar og orku- mála. 21 umsókn barst, þar af 9 á heilbrigðissviði og átti Landspítali aðild að 8 þeirra. Fimm fengu styrk og var Landspítali aðili að þeim öllum. Á árinu verður „háskólahlutverkið" eitt af 6 lykilverkefnum spítal- ans. Það er nauðsynlegt að vel takist til svo Landspítali geti áfram staðið keikur undir nafni sem háskólaspítali. Kristján Erlendsson læknir Framkvæmdastjóri vísinda-, mennta- og nýsköpunarsviðs Landspítala 2 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.