Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 12

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 12
Tímarit Alá/s og menningar forma, sem við búum við.“ Hann segist vilja benda hinum unga presti á það, „að ræða sem þessi stefnir til menningarspjalla og er siðlaus í innsta eðli sínu, þrátt fyrir öll sín kristilegheit, og í krafti síns kristilega boð- skapar.“ I lok þessarar uppbyggilegu hirtingar vikur Gunnar að um- mælum klerks um Niemúller hinn þýska kennimann er lengi sat í fangabúðum nasista og segir: „Hetja í fangakufli er miklu líklegri til áhrifa í baráttunni fyrir menningu heimsins en mannleysa í messuklæðum.“ Fyrir þessum unga guðsmanni átti þó ýmislegt eftir að liggja, m. a. það að verða biskup yfir landi og lýð, og hefur hann nú fyrir skömmu verið kvaddur með miklu lofi, sem sumum þykir of en öðrum van eins og gerist. Þegar ég rifja upp þessi bráðum 40 ára gömlu orð Gunnars Bene- diktssonar verða mér ljósari verðleikar hans sem sanntrúaðs manns en nokkru sinni fyrr. Hann brann af heilagri reiði, vandlæting hans var djúp og einlæg og í ætt við þá snillinga Gamla testamentisins sem ég áðan nefndi. „Hvað skulu mér yðar mörgu sláturfórnir?" . . . „Sál mín hatar tunglkomur yðar og hátíðir, þær eru orðnar mér byrði, ég er þreyttur orðinn að bera þær. . . . Hjálpið þeim sem fyrir ofríki verður, rekið réttar hins munaðarlausa ...“ svo mælir Jesaja fyrir munn Jahve. Og Amos mælir á sömu lund fyrir munn réttlætisins: „Þeir (þ. e. ísraelsmenn) selja saklausan manninn fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, þeir fíkjast í moldarkornin á höfði hinna snauðu og hrinda aumingjunum i ógæfu ..." I ætt við þessa menn var Gunnar Benediktsson öðrum fremur á okkar tíð. Og þótt hann sæti í norðlenskum afdal prestskaparár sín varð Saurbær honum Hliðskjálf þaðan sem hann sá um veröld alla. Guð hans var Guð réttlætisins öllu öðru fremur. Sumum kann að sýnast þessi réttlætiskennd hafi verið ofvaxin með vini okkar — en hið sama virtist líka samtíð hinna gömlu spámanna í ísrael. Og án efa fannst mörgum hann gera lífið og mannlegt samfélag of einfalt í sniðum og þó einkum sjúkleik þess of auðsæjan og lækningu hans einfalda. En þannig er jafnan um hugsjónamenn. Þeim er fátt hvimleiðara en stjáklandi efnishyggja. Sá sannleikur sem þeir hafa höndlað verður þeim allra meina bót. Einn bjartan sumardag árið 1957 stendur Gunnar Benediktsson á dyra- hellunni í Bjarnanesi, þar sem ég var þá prestur. Hann var kominn vestan af Mýrum í Hornafirði, hafði verið að vitja æskustöðvanna. Þessi kær- 258
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.