Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Síða 24

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Síða 24
Tímarit Má/s og menningar Eldflaugarnar eiga að ferðast hvíldarlaust úr einum skotturni i annan þannig að andstæðingurinn eigi aldrei að vita hvar á svæðinu flaugin sé niðurkomin. Ein MX-flaug með 10 kjarnaoddum mun búa yfir meiri sprengimætti en allar þær sprengjur sem notaðar voru í annarri heimsstyrjöld og Kóreustríðinu samanlögðum.9 SIPRI hefur áætlað að um áramótin 1980 hafi Bandaríkjamenn átt u. þ. b. 9-200 langdræga kjarnaodda, þ. e. kjarnaodda á langdrægum eldflaugum, langdræg- um orrustuflugvélum og kafbátum. Sovétríkin eigi u. þ. b. 6.000. I viðbót eru um 40—50.000 meðaldrægir kjarnaoddar. Þeir eru ekki eins færir um að hæfa hernaðarlega mikilvæg skotmörk á landsvæði andstæðingsins. Magn varabirgða risaveldanna er ekki þekkt. Um leið og birgðir kjarnorkuvopna aukast verður hver einstakur kjarnaoddur fullkomnari og hittnari. Nýir tölvustýrðir kjarnaoddar munu gera Minuteman III-flaugina enn hittnari en áður, en hún er fyrir fullkomnasta langdræga eldflaug Bandaríkjamanna. Hún dregur allt upp i 12—13.000 kílómetra (7000 sjómílur) og mun geta hæft skotmark sitt innan 200 metra geisla. Hin áætlaða MX-flaug með 10 óháðum, sjálfstýrðum oddum mun geta hæft öll skotmörk sín með aðeins nokkurra tuga metra frávikum. Frávik Stýriflauganna verða aðeins u. þ. b. 25 metrar. Með þessum tæknilegu „umbótum" munu Bandaríkin í náinni framtíð hafa möguleika til forskotsárásar á Sovétríkin. Þar með gæti verið komið upp alvarlegt ójafnvægi í vígbúnaðarkapphlaupi risaveldanna, Bandaríkjamönnum í hag. Jafnvel þótt miðunarnákvæmni sovéskra langdrægra eldflauga sé líka ógnvekjandi, frávik 400—600 metrar, mun það taka Sovétmenn nokkur ár að gera flaugar sínar jafn hittnar og þær bandarísku eru. Geta Sovétmenn horft á slíkt með hendur í skauti? Afleiðingarnar gætu orðið ískyggilegar. Að minnsta kosti mun þetta hafa í för með sér stóraukið vígbúnaðarkapphlaup.10 Ný kjarnorkuvopnastefna Kjarnorkuvopnastefna Bandaríkjanna varð eitt meginatriði kosningabarátt- unnar eftir að tilkynnt hafði verið að Carter hefði ákveðið „nýjar“ stjórnreglur um notkun kjarnorkuvopna. Upplýsingar voru látnar berast til dagblaða um svonefnd fyrirmæli nr. 59. Meðan á kosningabaráttunni stóð hafði mótfram- bjóðandinn, Reagan, ráðist harkalega á Carter fyrir að vera „linur“ gagnvart Sovétríkjunum. Hinar „nýju stjórnreglur" fyrirmæla nr. 59 eru svar við slíkum áburði. Af þeim má ráða að Bandaríkin séu tekin að víkja frá meginreglu 270
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.