Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Qupperneq 45

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Qupperneq 45
Dœmisaga um hanska hafði gengið að eiga dóttur kaupmannsins sem átti Grindavík að mestu og öll pöntunarfélögin voru stofnuð gegn. Og kaupmaðurinn þoldi ekki að sá blettur félli á fjölskyldu hans að bróðir tengdasonar síns yrði rekinn frá kennslu af konu sem ætti hálfóskilgetin börn. í þessu máli gilti einu hvort kennarinn væri kommúnisti. Konan hætti að skipta við kaupmanninn. Hún gerðist handgengin pöntunarfélaginu. En kennarinn skákaði nú í skjólinu og færði sig upp á skaftið eftir því sem leið á veturinn. Hann byrjaði að lesa Verndarengl- ana eftir Jóhannes úr Kötlum yfir krökkunum, sem urðu að hlusta hvað sem mæðurnar sögðu vegna þess að presturinn kvað þau vera skólaskyld. Þannig var að kaninn brenndi talsvert af olíu, sem kom til hans í grænum brúsum. Tómu brúsunum var hlaðið í háa stafla fyrir innan víggirðinguna sem lá fram með slóðinni út að bryggju. Þegar bátarnir komu úr róðri og börnin færðu feðrum sínum mat í skúruðum fyrrver- andi málningardollum, þá gengu þau ævinlega fram hjá brúsastöflunum. Strákana dreymdi um að eignast allan brúsastaflann, svo hægt yrði að skera upp brúsana og smíða sér báta. Einhverra hluta vegna hugkvæmd- ist kananum ekki að gefa krökkunum brúsana sem hægt hefði verið að smíða úr herskipaflota og sökkva með grjótkasti og hrópa: Niður með nasistann Hitler. Upp með kanann. Og húrra! Svo var það einhverju sinni um vetur, í miklu roki og þeim ógurlega garra sem ævinlega er í Grindavík, að kennarinn sat við púltið og las endalaust Verndarenglana eftir Jóhannes úr Kötlum yfir krökkunum. Hann virtist vera sannfærður um að list Jóhannesar mundi leiða barns- hugann frá hernum, á vit gagnrýninnar hugsunar, einkum svo stelpurnar færu ekki í ástandið eftir fermingu. En um leið ögraði kennarinn for- eldrum barnanna með sífelldum lestri bókarinnar, öruggur um að hin volduga fjölskylda sem bróðir hans hafði kvænst inn í mundi verða ævinlega hans verndarengill. Nú las kennarinn óspart úr Verndarenglunum. Hann þurfti að brýna röddina svo hún yfirgnæfði lætin í veðrinu og hinn eilífa slátt spjaldsins í loftopinu á ofninum, sem ekkert hitnaði. Vindur var hvass og það hrikti í gluggum. I þannig veðrum verða sjómannsbörn syfjuð, einsog feður 291
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.