Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 60

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 60
Tímarit Aíá/s og menningar heimta aftur raunverulegan þjóðlegan sjálfsákvörðunarrétt, jafnvel þótt hann væri „finnlandíseraður“. Síðasti fulltrúi hans var Dubcek, og pólitísk örlög hans bundu endi á allar leyndar tálsýnir um möguleika þeirrar stefnu. Rikisbundin þjóðernisstefna, takmörkuð og sovét-háð, spannar allt frá kaldrifjuðum, út- hugsuðum gervimiðflótta fylgiríkja (birtist t. d. í samskiptum Austur-Þýska- lands og Sovétríkjanna á efnahagssviðinu) til leitar að tvísýnu jafnvægi milli óvinsamlegrar framkomu og jafnvel háværrar óþekktar annars vegar og hegð- unar sem „heldur sig innan markanna“ hins vegar (svo sem einsog í nýlegum samskiptum Rúmeníu og Sovétríkjanna). Hvað sem sérkennum hennar líður gerir ríkisbundin þjóðernisstefna sér engar hæpnar vonir um möguleika raun- verulegs sjálfræðis á tímum sovéskrar útþenslustefnu. Engu að síður er hún sovésku stjórninni þyrnir í auga og hún reynir þar af leiðandi að kæfa slíkar tilraunir i fæðingu (Feher rekur hér dæmi frá Póllandi). Feher bendir næst á nokkur mismunandi einkenni þessarar þjóðernisstefnu eftir löndum. Hvað sem þeim líður, segir hann, miðar þessi stefna ekki að pólitískum umbótum á sama hátt og „þjóðlegi kommúnisminn" áður. En það er ekki heldur um hreina sýndarmennsku að ræða þegar forsaga Rúmeníu er upphafin og fölsuð eða þegar farið er að tala um „austur-þýska“ menningu. Að dómi Fehers er öll þessi „efling þjóðaranda“, þar með talið íþróttaæðið fræga, dæmi um tilraunir til að breyta félagslegri óánægju í þjóðrembu, og er sem slík dæmigerð fyrir valdahóp i kreppu. Inn í þessa mynd af þjóðernisstefnu ríkis- stjórna Austur-Evrópu bætist stöðugur efnahagslegur ágreiningur þessara landa innbyrðis og við Sovétríkin. Það er spurningin um tengslin við vestræna efna- hagskerfið, um verð hráefna frá Sovétríkjunum, um framlag hinna einstöku landa til Varsjárbandalagsins og fleira í þeim dúr. Hann líkir því óstöðuga jafnvægi sem þarna ríkir við síðustu áratugi austurríska keisaradæmisins, en bendir þó á að Sovétríkin byggja á miklu öflugri þjóðarkjarna en Habsborgara- veldið forðum, þar sem er Rússland; þeir eiga því jafnan síðasta orðið. Feher segir að þess beri að gæta að þó að þróunin á áttunda áratugnum hafi almennt verið óhagstæð stjórnvöldum fyrir austan, og það svo að nú séu þau rúin öllu trausti, marki sá áratugur líka tímamót vegna þess að þá hafi Sovétríkin í fýrsta sinn þanið sig út fýrir þau mörk sem sett voru á Yalta- og Potsdam- fundunum. Meðal nýrra fylgiríkja þeirra eru nokkur lönd i Afríku og Miðaust- urlöndum, auk þess sem áhrif Sovétríkjanna hafa líka aukist í Suðaustur-Asíu, með þeim fyrirvara þó að margir hinna nýju bandamanna eru harla ótryggir. Á þessum áratug telur Feher að Sovétríkjunum hafi aukist sjálfstraust gagnvart Bandaríkjunum. Á hinn bóginn hafa Bandaríkin veikst vegna Víetnamstríðs- 306
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.