Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Qupperneq 79

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Qupperneq 79
Guðbergur Bergsson Hafa kvennabókmenntir sérstöðu? Ég veit ekki hvort bókmenntir eða listir yfir höfuð eru af ákveðnu kyni, en vissulega hafa þær sitt séstaka eðli, sem er hluti af mannsandanum. Orðin list og bókmennt eru að vísu kvenkynsorð, en orðum og útliti hluta og hugtaka reynist oft kynlega erfitt að tjá innihald sitt, það er: að tjá eðli mannsins og gerð. Sjálfum hefur mér oft fundist að bókmenntir samtímans séu harla andlega daufar, og að þær séu fremur kynlausar eða þá hvorugkyns í andanum en hitt, að þær séu annað hvort karl- eða kvenkyns. Og á það jafnt við bókmenntir skrifaðar af körlum og konum. Það að samtímabókmenntir séu auglýstar með hávaða annars hvors kynsins bendir til þess, að minni hyggju, að þær séu í eðli sinu svo kynsmáar og daufar að ástæða þyki að vekja athygli á eðli þeirra eða kyni, ef eitthvert er. Herskáastar hafa þær auglýsingar verið og umræður, sem varða svo nefndar kvennabók- menntir, en þær eru auglýstar undir kyntákni konunnar. Og það vörumerki á að tryggja gæðin, en ýtir í rauninni aðeins undir sölu. En ef farið er nógu langt undir faldinn, örlar þar varla á því sem auglýst er og lesandinn leitar að: kvennabókmenntum, heldur felst undir faldi efnisins dul- búinn gervilimur í ætt við leikfang. Þessar bækur eru því að meginhluta einslags fitlbókmenntir, skrifaðar til að kitla karlmanninn, með sama hugarfari og hefur kitlað hann frá upphafi. En konur halda áfram að drekka sitt böl, úr sama brunni og karlmaðurinn saup úr ánægjuna. Viðhorf bókmennta þessara eru af þeim sökum jafn ævaforn og viðhorf þau sem spruttu af sköpunarsögu kristinna manna. I nefndum kvennabókmenntum fer Eva aldrei fagnandi með bros á vör úr hinum heimilislega garði Paradísar. Hún gengur þaðan tíðum örg og oftast drukkin; og er það helsta nýmælið að hún er jafn gróf og drukkin og makinn. Fjarri er að örli á grískum viðhorfum, að konan stökkvi alsköpuð úr höfði Seifs, heimi óróahugsunar, eins og Aþena forðum. Gríska viðhorfið er bókmenntalega séð hið andlega viðhorf til sköpunarinnar. Hið líkamlega viðhorf til sköpunar, raunsæisviðhorfið, er það að konan hafi fæðst af rifbeini, og fjármaðurinn skín gegnum slíkt viðhorf, skoðun bóndans sem nagar feitt kjöt af rifbeini og ber þann unað saman við unað af holdi kvenna. Visindahyggja nútímans reynir að finna sannleikann um fæðingu og sköpun. 325
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.