Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 86
Tímarit Máls og menningar getur nú hver maður verið „skapandi", ef hann eignast fé fyrir myndvörpu, hefur aðgang að ljósritunarvél eða hugurinn gengur örlítið úr skorðum, þvi nefndur fær þá að stunda smáa handmennt á hinum ýmsu og rólegu geðdeild- um. Við slíkar deildir starfar nú sægur af misheppnuðum listamönnum undir starfsheitinu kennarar. Geðlæknar nútímans vita að listhneigð, sem áður var álitin geggjun og listamenn brjálaðir, er æðsta tegund af andlegri heilbrigði. Þess vegna hefur heilbrigður, misheppnaður miðlungsmaður heillarík áhrif á fólk sem er misheppnað og hefur verið tæmt, enda þekkir miðlungsmaðurinn af eigin raun hvað það er að vera misheppnaður án þess hugurinn hafi brostið alvarlega, og hann hefur þess vegna greiðan og læknandi aðgang að sálarlífi hins sjúkra. I heimi þar sem notagildið er allsherjar viðmiðun er hampað þeirri hand- menntalist sem opnar taugaveikluðum leið til sjálfstjáningar og þess að hljóta örlitla útrás. En við slíkt þjóðfélagsástand er listinni meinað að ná slíkri hæð að hinir biluðu fái minnimáttarkennd, því þá þurfa þeir aftur á nýrri, rándýrri listlækningu að halda. ísland er á hraðri leið með að fylla flokk þjóða Skandin- avíu, þar sem jafnaðarmannahugsjónin hefur komist á það endastig að gera alla jafn taugaveiklaða miðlungsmenn, undir vægu eftirliti ríkis og geðverndar. Úr þessum hræðilega andlega mel í lok aldarinnar hafa sprottið hugtökin karla- og kvennabókmenntir, einkum meðal menntaðra kvenna sem villst hafa úr borgarastétt inn í raðir vinstrimanna, og hafa þær hreiðrað þar um sig af svo borgaralegri hagsýni, oft í hálfmisheppnuðum hjónaböndum, að þær verða hvorki miklar né misheppnaðar, heldur nærast þær og fitna á meðalmennsk- unni, sem sér þeim fremur fyrir stöðugu ergelsi en uppreisn. Slíkt hefur lengi verið keppikefli borgarans, einkum í löndum þar sem menningin er á nýlendu- stigi og þjóðin undir hæli stórþjóðar. Fljótt á litið virðist flokkunin í karla- og kvennabókmenntir hafa yfir sér ofur sakleysislegt yfirbragð. Þó er óþarft að rýna lengi til að reka augun í sölu- sjónarmiðið sem er hér á ferðinni. Rithöfundar, konur og karlar, fetta ekki fingur út í flokkunina, vegna vonar um að bækur þeirra verði dregnar í dilk annars hvors flokksins og það tryggi sölu. Réttlætiskröfur listamanna nútímans eru varla aðrar eða merkilegri en þær, að þeim sé tryggð hæfileg greiðsla fyrir verk sín. Ef þetta “rit-, tón- eða myndverkafólk“ (sem það kýs oft að kalla sig, því einnig smjaðrar það fyrir alþýðunni) minnist á mannsæmandi líf, þá á það fráleitt við hið andlega, heldur hitt: hvað það hljóti mikið í launaumslagið. Bókmenntir og listir hafa smám saman glatað sinni fornu sérstöðu, þeirri að vera á vissan hátt uppreisn andans, andóf gegn leit eftir veraldlegum gæðum, og leit þjóða og einstaklingsins að frjálsræði, siguróp hans gegn hvers kyns bind- 332
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.