Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 105
Eru Ulendingar kristnir? áður fyrr voru taldir óalandi og óferjandi í kristnu samfélagi og því gert að lifa á heiðum úti. Sannleikurinn er sá að við komumst með engum hætti fram hjá spurningunni hvað það sé að vera kristinn — svo lengi sem við litum á okkur sjálf sem eina heild, þ. e. a. s. sem Islendinga, en ekki sem sundurlausa hjörð einstaklinga án nokkurrar sameiginlegrar menningar, siða og hefða. Sú stað- reynd að okkur er tamt að líta á trúna sem einkamál og sýna visst frjálslyndi í trúarlegum efnum gerir viðfangsefni okkar enn mikilvægara og brýnna því að það er trúin, trúarviljinn, sem að endingu sker úr um það sem máli skiptir. Hvað er það sem skiptir raunverulegu máli fyrir Islendinga sem eina heild, eina þjóð? Þeirri spurningu vil ég svara með þremur orðum: sjálfstceóið, efna- bagurinn, trúin. Þessar þrjár víddir þjóðfélagsins — hin stjórnmálalega, hin efnahagslega og hin trúarlega — eru meginstoðir hverrar menningar og bresti í einni þeirra þá hriktir í hinum tveimur. Af þessum þremur stoðum höfum við að undanförnu lagt langminnsta rækt við trúna, hina andlegu vídd: sjálfstæð- isbaráttan sameinaði okkur uns lýðveldið var orðið staðreynd, síðan þá hafa efnahagsmálin átt — mér liggur við að segja — hug okkar allan; hin andlega eða trúarlega stoð menningar okkar hefur hins vegar verið vanrækt og vanmetin — jafnvel talin aukaatriði eða yfirborðsfyrirbæri með tilliti til hinna tveggja meg- inþátta menningarinnar. Ég óttast að við gerum okkur ekki enn nægilega grein fyrir því hvað af þessu getur hlotist. „Við erum og verðum það, sem við hugsum“, segir Sigurður Nordal á einum stað. Mikilvægi hinnar trúarlegu viddar í tilveru okkar verður best séð með einföldum samanburði við hinar tvær víddirnar, hina stjórnmálalegu og hina efnahagslegu. Það er auðvelt að hugsa sér að við glötum sjálfstæði okkar og missum öll tök á efnahagsmálum okkar — en verðum eftir sem áður íslendingar og viljum endurheimta sjálfstæðið og endurreisa efnahaginn. En það er ógjörningur að hugsa sér að við hættum að hugsa sem íslendingar og verðum íslendingar eftir sem áður. Og hvað við hugsum og hvernig við hugsum sem Islendingar, hverju við trúum og hvað við teljum mestu skipta — í því er fólgin hin trúarlega vídd sem allt veltur á að endingu. Stjórnmál og efnahagsmál eru með öðrum orðum skammtímamál í eðli sínu, en trúmálin langtímamál, ef svo mætti komast að orði. Með þessu er ég síður en svo að draga úr augljósu mikilvægi stjórnmála eða efnahagsmála, þaðan af síður að spá því að við missum þau innan skamms úr höndum okkar. Ég er einungis að benda á þá staðreynd að það hverju við ráðum og það hvað við eigum er ekki það sem setur lífi okkar lokamark, heldur hitt hverju við trúum, þ. e. a. s. hverjir við erum, hvers konar menn við viljum vera og hvaða tilgang við viljum sjá að verki í lífi okkar. Við kunnum að vakna einn 351
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.