Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 107

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 107
Eru Islendingar kristnir? heimspeki, vísinda og bókmennta — er jafnt í almennum sem einstökum atriðum óskiljanleg nema í ljósi kristinnar kenningar og með sífelldri hliðsjón af henni. Engin kenning, enginn boðskapur hefur haft jafn rík áhrif og margþætt á hugsun og menningu Vesturlandabúa, og gildir hér einu um hvort menn hafa staðið innan kirkjunnar eða utan. Til þess að kynnast sjálfum okkur, sögu okkar og menningu, þurfum við þvi að kunna ýtarleg skil á hinni kristnu kenningu, enda hefur trúlega engin kenning verið jafn rækilega rannsökuð og hugleidd af fræðimönnum sem alþýðu manna. Þó eigum við Islendingar hér mikið óleyst verkefni fyrir höndum, ef við viljum skilja innviði og sögu eigin menningar og hugmyndaheims. Svo dæmi sé tekið þá er þáttur kristinnar kenningar í forn- bókmenntum okkar enn að mestu leyti órannsakaður. Ástæðan til þess virðist mér vera sú að þeir fræðimenn sem lagt hafa stund á þessar bókmenntir hafa ekki verið vel heima í kristnum fræðum eða áhugalausir um þau; ef til vill væri réttara að segja að þeir hafi ekki verið kristnir í raunverulegri merkingu þess orðs (eins og Steinn Steinar tók til orða). Ég held að þetta eigi t. a. m. við merkasta fræðimann okkar á þessu sviði, Sigurð Nordal. Af verkum hans verður ekki ráðið að hann hafi verið kristinn í eiginlegri merkingu þess orðs. Þar með er ekki sagt að hann hafi verið heiðinn, trúlaus eða einhverrar annarrar trúar. í stór- merkum útvarpserindum sínum, Líf og dauði, nálgast hann þó víða það sem kalla mætti „mannlegan heiðindóm“, enda sækir hann þar eitt og annað til forngrískra spekinga, ekki síst Sókratesar. Hvað merkir að vera kristinn maður í raunverulegri merkingu þess orðs? Svari nú hver fyrir sig! Sjálfur tel ég eðlilegast að líta svo á að sá einn sé réttilega kallaður kristinn maður sem tekur mið af fordæmi Jesú Krists og skoðar lífið og tilveruna sífellt í ljósi helgisögunnar um hann. Eg held að þetta hljóti að teljast hinn eiginlegi eða raunverulegi skilningur orðsins. En þá sjáum við í hendi okkar hversu hæpið það er að svara spurningunni: eru íslendingar kristnir? alfarið játandi. Hversu mörg okkar leitast af einlægum vilja við að hugsa og breyta í ljósi þeirrar kenningar að Kristur sé „vegurinn, sannleikurinn og lífið“? Ef ég miða einungis við takmarkaða reynslu mína, þá eru sárafáir af þeim íslendingum sem ég hef kynnst kristnir í þessum skilningi. Stafar þetta þó ekki af því að ég forðist félagsskap kristinna manna, nema síður væri, enda átti ég því láni að fagna að nema í kaþólskum háskóla um árabil. Hér er þó að einu að hyggja sem ef til vill breytir nokkru um þá niðurstöðu að Islendingar séu illa eða lítið kristnir. Margir líta á trú sína sem einkamál, jafnvel sem feimnismál. Af lauslegum kynnum við þá verður í reynd ekkert ráðið um trúarsannfæringu þeirra. Hér kemur og til að við erum sjaldan knúin — hvorki 353
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.