Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Side 36

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Side 36
Tímarit Máls og menningar er af menningu. Ráðamenn útvarps þurftu að finna efni til að fylla uppí dagskrána og efnisval þeirra sýnir að þeir vildu mennta þjóðina með því besta sem völ er á. Smekkur ráðamanna réð því hvað væri það besta og það besta var sú menning sem boðið var uppá í öðrum stórborgum hins vest- ræna heims. Vöxtur borga hefur borgarmenningu í för með sér, tónleika, myndlistar- sýningar og hvað eina sem er einungis til vegna þess að markaður og peningar eru fyrir hendi. Hvað íslensk menning var og er var ekki lengur stjórnað frá landsbyggðinni heldur frá borginni. Það sem síðan var útvarpað er hægt að kalla hámenningu, hitt getum við kallað lágmenningu og fer ekki miklum sögum af henni fyrr en löngu seinna. En þótt borgarmenningin réði var vandi útvarps að gera landsbyggðinni ekki lægra undir höfði en borg- inni. A meðan einhvers konar byggðastefna er við lýði er varla hægt að sakast við fólk fyrir að búa úti á landi. Or vöxtur þéttbýlis breikkaði eitthvert ósýnilegt bil milli borgar og sveitar. Það er álitið nokkuð frumstætt að búa útá landi og sjást þau viðhorf greinilega í næstum því hverju áramótaskaupi sjónvarpsins þar sem gert er grín að einhverjum afdala jóum. Og toppurinn á þessu var hinn stórkostlegi atburður þegar Ómar Ragnarsson fann Gísla heitinn í Uppsölum. Hann var fortíðin og sveitamennskan uppmáluð, en því var snarlega kippt í lag með því að gefa honum eitt stykki litsjónvarpstæki. Já, nú gat Gísli svo sannar- lega notið lífsins. Islendingar voru búnir að halda sínum sérkennum sem þjóð í margar aldir. Þó var það ekki létt á stundum. En uppgangur borgarinnar gerði það að verkum að þjóðin gat klofnað í tvær fylkingar, borg og sveit. Það varð hlutverk útvarpsins að útvarpa einhverju sem þjóðin gæti samsamað sig um, að útvarpa einni tegund menningar, íslenskri, sem myndi sameina þessar tvær fylkingar. Og þessi menning er/var borgarmenning með léttu ívafi af gamalli íslenskri arfleifð. Það þarf bara að líta á dagskrá ríkisútvarpsins til dæmis frá 1941 til að sjá ofangreindar hugmyndir í verki. Notkun ríkisútvarpsins á klassískri tónlist er dæmi um áhrif borgarmenningar. Islendingar byrjuðu að hlusta á klass- íska tónlist með tilkomu borgarinnar. Og einhverra hluta vegna tók útvarp- ið ástfóstri við Symfóníuhljómsveit íslands. Hún hefur haldist á spenanum fram á daginn í dag. Greinilegt er að einhverstaðar var tekin ákvörðun um að klassísk tónlist gerði sál landans gott. Nútímaþægindi borgarinnar skyldu yfir allt landið ganga. Islensk menning var orðin sú menning sem reynsluheimur borgarinnar bauð uppá. Samansull af öllu því helsta sem boðið var uppá í öðrum höfuðborgum hins vestræna heims. Fæðing borgarmenningar og flutningur hennar inná öldur ljósvakans 24
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.