Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Page 124
Umsagnir um bækur SÝNISBÓK ELÍASAR Elías Mar Það var nú þá Letur 1985 Þetta smásagnasafn Elíasar Marar hefur að geyma fimmtán sögur hans, hin elsta rekur upphaf sitt til ársins 1949 og hin síðasta er smásagan Bið sem var samin árið 1984 og birtist í fyrsta hefti Tímarits Máls og menningar 1985. Hér eru með öðrum orðum sögur sem eiga rætur sínar í þeim tíma þegar Elías var búinn að skrifa Vögguvísu og flestar eru sög- urnar skrifaðar á árunum 1954 til 1959, milli binda Sóleyjarsögu. Nokkrar sög- urnar eru frá árunum 1960 til 1981, auk hinnar nýjustu sem fyrr var nefnd. Margur hefur velt vöngum yfir því hvers vegna Elías Mar hætti að birta skáldskap um alllanga hríð eftir útkomu síðara bindis Sóleyjarsögu og ýmsar kenningar verið á lofti um það. Þessi bók leysir ekki þá gátu, en hér geta menn hins vegar gengið að sýnishornum af verkum hans á þessum þöglu árum. Og bókin staðfestir það sem ýmsa grunaði; Elías hélt áfram að skrifa þótt hann léti vera að birta það. Eins og gefur að skilja eru sögurnar bæði ólíkar og misgóðar, því áratugir líða á milli þeirra og bera þær glöggt vitni hræringa í stíllegum, frásagnar- legum og hugmyndalegum efnum hjá höfundi. A hinn bóginn má í þeim öllum finna ýmis þau einkenni sem sterkastan svip setja á skrif Elíasar; nákvæmar mannlýsingar, traust tilfinning fyrir blæ- brigðum íslensks máls og að sjónarhorn sögumanns er iðulega í fjarlægð; jafnvel þótt sagt sé frá í fyrstu persónu, þá er sögumaður jafnan fjarlægur í tíma. Það vekur einnig athygli hversu vel Elíasi lætur að setja sig í spor ungra drengja, og hef ég þá nýbirta sögu hans í síðasta hefti Tímarits Máls og menningar, Leynibókina, einnig í huga. Sögurnar eru af mörgu tagi og of langt mál yrði að gera þeim öllum rækileg skil: pólitískar ádeilusögur, sögur af sér- stæðu fólki, hefðbundnar mannlegar ádeilusögur, sögur um dauðann og list- ina, svo eitthvað sé upp talið. Elías er hér einnig með tvær sögur sem snúast umhverfis svipaða hugsun um tímann. Eggjám og In duld jubilo. Þar er sýnt hvernig atvik kallast á í ólíkum tíma og umhverfi, sem leiðir til hugsana á borð við þær að tíminn og maðurinn séu eitt og verði ekki sundur skildir. Það er líklega eitt af sterkari höfundareinkenn- um Elíasar Marar, sem minnst var á, að hann skrifar úr fjarlægð, horfir á atvik fyrri tíma rækilega staðsettur í sínum tíma miklu seinna. Þetta verður stund- um til þess að þær sögur hans fá á sig dálítið annálakenndan svip, bera þess 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.