Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2012, Síða 11
Leynd yfir fjármögnun
frjáLshyggjuátaks
Fréttir 11Helgarblað 3.–7. ágúst 2012
É
g hef ekki upplýsingar um
það,“ segir Ásta Möller, fyrr-
verandi þingkona Sjálfstæð-
isflokksins og forstöðumaður
Stofnunar stjórnsýslufræða
og stjórnmála, aðspurð hvern-
ig fyrirlestraraðir sem stofnunin
hefur skipulagt eru fjármagnaðar.
Rannsóknarsetur um nýsköpun
og hagvöxt (RNH), sem áður hét
Stofnun Jóns Þorlákssonar, skipu-
leggur nú þrjár fyrirlestraraðir í
samstarfi við fyrrnefnda stofnun
og verður 11 erlendum fyrirlesur-
um boðið til landsins til að fjalla
um ýmis mál frá sjónarhorni frjáls-
hyggju. Enginn þeirra sem kem-
ur að skipulagningu fyrirlestranna
vill gefa skýr svör um það hvernig
þeir eru fjármagnaðir. Þegar leitað
var til Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar, eins af forsprökkum
Rannsóknarsetursins sagði hann:
„Ég hef enga upplýsingaskyldu
gagn vart DV.“
„Gaman að starfa
með Hannesi“
Þegar Ásta er spurð hvort henni
finnist ekki rétt að gegnsæis sé
gætt hvað varðar fjármögnun
fyrir lestraraða í háskólanum seg-
ist hún ekki vilja tjá sig um það. Þá
segir hún að stofnunin starfi að-
eins með þeim sem leita eftir sam-
starfi við stofnunina.
„Okkur finnst gaman að
starfa með Hannesi eins og öðr-
um kennurum stjórnmálafræði-
deildar,“ segir Ásta. Aðeins vinna
tveir starfsmenn hjá stofnuninni,
þær Ásta og Hrefna Ástmarsdótt-
ir, verk efna stjóri. Báðar hafa þær
gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Ásta sat á þingi
fyrir flokkinn í 4 ár en Hrefna hef-
ur tekið þátt í starfi ungliðahreyf-
ingarinnar. Meðal annars sat hún
í ritnefnd vefsíðu ungra sjálfstæð-
ismanna, Frelsi.is. Ásta var ráð-
in forstöðumaður stofnunarinnar
árið 2010 og var ráðningin gagn-
rýnd harkalega á innanhússpóst-
vef skólans. Var efast um fag-
legan grunn hennar til að sinna
rannsóknum og stjórnmálatengsl
hennar gagnrýnd.
Frjálshyggjusetur
sjálfstæðismanna
Eins og fram kom í DV fyrr í
mánuðinum er stjórn og rann-
sóknarráð RNH þéttskipað karl-
mönnum úr Sjálfstæðisflokkn-
um. Í stjórninni sitja Jónmundur
Guðmarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, Gísli Hauks-
son, framkvæmdastjóri Gamma
og Jónas Björn Sigurgeirsson.
Jónas er einnig framkvæmdastjóri
Almenna bókafélagsins sem er
meðal annars í eigu Hannesar
Hólmsteins og Baldurs Guðlaugs-
sonar, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra. Í rannsóknarráði setursins
eru Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son stjórnmálafræðiprófessor,
Ragnar Árnason hagfræðiprófess-
or og Birgir Þór Runólfsson, dós-
ent í hagfræði sem er í hópi stærstu
skuldara Sparisjóðs Keflavíkur.
Fyrirlestraraðirnar sem Rann-
sóknarsetrið skipuleggur um þess-
ar mundir fjalla meðal annars um
Evrópusambandið, sjávarútvegs-
mál, skattamál og alræðisstjórn-
ir kommúnista. Nær allir fyrirles-
ararnir sem boðið er hingað til
landsins eiga það sameiginlegt að
aðhyllast róttæka hægristefnu.
Vilja fjárveitingar erlendis frá
„Þetta er fjármagnað af einstak-
lingum og fyrirtækjum,“ segir
Jónas Björn Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri RNH. „Vonandi
fáum við fé frá erlendum stofn-
unum en við eigum eftir að ganga
frá því.“ Hér á Jónas við þau er-
lendu samtök sem eiga í samstarfi
við Rannsóknarsetrið, banda-
rískar hugveitur á borð við Cato
Institute og Heritage Foundation
en einnig sambærilegar stofn-
anir frá Evrópu. Einn þeirra sem
boðað hefur komu sína til lands-
ins er hagfræðingur Cato Institu-
te, Daniel Mitchell. Ljóst er að
Rannsóknarsetrið á í töluverðu
samstarfi við Cato og Heritage en
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
fullyrti nýverið í samtali við DV
að stjórnendur þessara stofnana
væru allir vinir hans. „Ég mundi
stoltur þiggja fé af þeim og ekk-
ert skammast mín fyrir það,“ sagði
Hannes enn fremur.
Tengsl við Koch-bræður
Cato Institute er bandarísk hug-
veita sem er að mestu leyti í eigu
svokallaðra Koch-bræðra, þeirra
Charles og David Koch. Þeir eru
helstu eigendur Koch Industries
sem er annað stærsta einkafyrir-
tæki Bandaríkjanna en Heritage
Foundation er einnig að stórum
hluta borið uppi af fjármagni frá
Koch-bræðrum. Þeir hafa gríðar-
leg ítök í bandarískum stjórn-
málum og styrkja ótal hugveitur
og hagsmunasamtök sem berj-
ast fyrir óheftu markaðskerfi og
gegn ríkisafskiptum og velferðar-
stofnunum. Cato Institute og He-
ritage Foundation þiggja fé frá
olíu-, vopna- og bílafyrirtækjum
en báðar hugveiturnar hafa barist
harkalega gegn ráðandi hugmynd-
um vísindasamfélagsins um lofts-
lagsbreytingar af manna völdum.
Þá hafa stofnanirnar mótmælt al-
þjóðlegum sáttmálum um tak-
markanir á útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda. Fyrirlesarinn sem
boðið var til landsins í síðustu viku
er meðal þeirra sem telja gróður-
húsaáhrifin stórlega ýkt.
Bjartsýni bankamaðurinn
Enn sem komið er hefur aðeins
einn fyrirlestur verið haldinn á
vegum RNH og Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála. Fyrir-
lesturinn flutti breski rithöfund-
urinn Matt Ridley þann 27. júlí
síðastliðinn en ekki hefur ver-
ið upplýst hvernig koma hans til
landsins var fjármögnuð. Matt
Ridley var stjórnarformaður
breska bankans Northern Rock
þegar hann varð gjaldþrota árið
2007, en Northern Rock var fyrsti
breski bankinn í 150 ár sem féll
undan bankaáhlaupi. Ridley var
tekinn í skýrslutöku hjá breska
þinginu þar sem hann varði við-
skiptahætti bankans. Jafnvirði
78 milljarða íslenskra króna féll
á breska skattgreiðendur vegna
Northern Rock en þremur árum
síðar kom út bók Ridleys um skyn-
sama bjartsýnismanninn (e. The
Rational Optimist: How Prosperity
Evolves). Breska blaðið The Guar-
dian hefur gert stólpagrín að bók
Ridley, ekki síst vegna viðskipta-
fortíðar hans, en ekki var minnst
á þátt Ridleys í falli Northern Rock
þegar fyrirlestur hans var kynntur
af RNH og Háskólanum.
Háskólinn og Rannsóknar-
skýrslan
Í rannsóknarskýrslu Alþingis
er fjallað um háskólasamfélag-
ið á útrásarárunum. Þar er með-
al annars varað við því að há-
skólastofnanir verði of háðar
fyrirtækjum og einstaklingum
um fjármagn, enda geti slíkt rask-
að hlutlægni innan háskólasam-
félagsins.
Enginn þeirra háskólaprófess-
ora sem DV ræddi við um fyrir-
lestraraðirnar vildi koma fram
undir nafni. Þeim bar þó saman
um að vinnulagið og tregðan til
að upplýsa um fjármögnun fyrir-
lestranna vekti ýmsar spurningar.
Tveir af viðmælendum DV sögð-
ust ekki líta á fyrirlesarana sem
boðaðir hafa verið til landsins sem
raunverulega fræðimenn. Jafn-
framt var sú skoðun látin í ljós að
óheppilegt væri fyrir Háskóla Ís-
lands að eiga í samstarfi við hug-
veitur á borð við Cato Institute og
Heritage Foundation. n
n Vilja styrki frá bandarískum stórfyrirtækjum n Óheppilegt fyrir Háskóla Íslands
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Ásta Möller Ásta er
forstöðumaður Stofnunar
stjórnsýslufræða og stjórn
mála og fyrrverandi þingkona
Sjálfstæðisflokksins. Ráðning
hennar sem forstöðumaður árið
2010 var harðlega gagnrýnd. „Ég mundi
stoltur
þiggja fé af
þeim og ekkert
skammast mín
fyrir það
Hannes Hólmsteinn
Hannes er einn helsti skipu
leggjandi fyrirlestraraðanna
en hann hefur lengi verið einn
helsti hugmyndafræðingur
Sjálfstæðisflokksins.
Matt Ridley Nýlega
hélt rithöfundurinn Matt
Ridley fyrirlestur í Háskóla
Íslands, en Ridley er einna
frægastur fyrir að hafa
setið sem stjórnarformaður
bankans Northern
Rock sem var fyrsti
breski bankinn
í 150 ár til að
falla undan
banka
áhlaupi.