Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 81

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 81
79 Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008 voru gerðar hérlendis og varða ráðgjöf til foreldra. Árið 2004 birtust niðurstöður umfangs- mikillar rannsóknar sem gerð var á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna og náði til foreldra ungra barna af öllu landinu (Gyða Haraldsdóttir, 2005). Rannsóknin sýndi mikla þörf foreldra fyrir ráðgjöf, ekki síst viðvíkjandi aga. Meirihluti þeirra (70%) vildi gjarnan eiga kost á ráðgjöf hjá leikskólakennurum eftir að börnin hefðu náð leikskólaaldri. Í rannsókn Birnu Maríu Svanbjörnsdóttur (2007), sem náði til úrtaks foreldra barna á aldrinum 4 –12 ára á Akureyri, voru foreldrar spurðir hvort þeir væru hlynntir stuðningi í einhverjum þætti foreldrahlutverksins. Niðurstöður sýndu að nær 70% þátttakenda voru hlynnt stuðningi í uppeldishlutverkinu. Þeir vildu einkum stuð- ning í formi fyrirlestra, námskeiða og persónulegrar ráðgjafar. Þörf foreldra fyrir stuðning við uppeldið er vafalaust af margvíslegum toga og ætla má að breyttir þjóðfélagshættir hafi þar haft afgerandi áhrif. Samstarf við foreldra Þar sem uppeldi barna fer fram bæði á heimilum og í skólum, og tíminn sem börnin dvelja í skólunum hefur lengst verulega, er æskilegt að kennarar og foreldrar þekki væntingar og uppeldislegar áherslur hver hjá öðrum og samræmi þær eftir því sem kostur er (Andersen og Rasmussen, 1996; Gestwicki, 2007; Rodd, 2006). Þótt samstarf kennara og foreldra sé mikilvægt með velferð barnsins í huga er margt sem getur haft áhrif á hversu vel tekst til. Rodd (2006) segir að leikskólakennarar hafi gjarnan litið á sig sem sérfræðinga um börn á leikskólaaldri og talið sig hafa menntun og færni til að bæta úr því sem skorti á í uppeldi foreldranna. Þeir hafi talið þörf á að bæta uppeldið. Það sjónarmið að líta á sig sem sérfræðinga í uppeldi ungra barna og foreldrum fremri á því sviði telur hún að hafi tafið fyrir umbótum í samstarfi leikskólakennara og foreldra. Samstarfið hafi því oft verið yfirborðskennt og meira í orði en á borði. Nú sé hins vegar lögð áhersla á að bæði foreldrar og leikskólakennarar búi yfir mikilvægri þekkingu, hvorir á sinn hátt, og að hvorir tveggju þurfi að leggja til málanna ef vel á að takast til við uppeldi barnanna. Leikskóla kennarar þurfi að mæta foreldrum á jafnræðisgrund velli, leita eftir þekkingu þeirra og bjóða fram sína sérþekkingu svo að foreldrar finni að þeir eigi greiðan aðgang að henni og geti valið og hafnað. Þá er líklegra að samstarfið geti orðið náið og að foreldrar eflist í uppeldishlutverkinu (Rodd, 2006; Swick, 2004). Þetta er í samræmi við það sem kemur fram hjá Nönnu Christiansen (2005) um faglegt hlutverk kennara í foreldrasamstarfi. Bæði Katz (1995) og Vander Ven (1988) telja sig hafa komist að því að samstarf leikskólakennara og foreldra fari eftir því hve mikla reynslu leikskólakennarinn hafi fengið sem leiðtogi í þess háttar samstarfi, að það fari eftir starfsþroska hans. Það sé ekki fyrr en hann hafi náð traustri faglegri vitund og styrk í starfi sem hann geti farið að bregðast af skilningi við þörfum og væntingum foreldra. Swick (2004) segir að til þess að geta brugðist við þeim sé mikilvægt að kynna sér hverjar þær séu. Hann bendir á að fagfólk þurfi að bregðast við þörfum foreldra á uppbyggjandi hátt, m.a. með því að veita þeim meiri fræðslu, efla samskiptin og gera þau markvissari. Þá þurfi leikskólakennarar að beina athyglinni enn frekar að fjölskyldunni í heild. Í Penn Green stofnuninni í Englandi, sem rekur bæði vöggustofu og leikskóla fyrir ung börn, hefur verið unnið skipulega að því að fá foreldra til beinnar þátttöku í starfi stofnunarinnar með það fyrir augum að efla þá í foreldrahlutverkinu. Þar er lögð áhersla á að nálgast foreldra út frá styrkleika þeirra, þekkingu og hæfni (Whalley, 1997; 2007). Foreldrar búa yfir mikilvægri þekkingu, ekki síður en kennarar, og víða má sjá að lögð er áhersla á þá staðreynd þegar fjallað er um samstarf foreldra og kennara (Knopf og Swick, 2008; Rodd, 2006; Turnbull, Turnbull, Erwin og Soodak, 2006). Almennt er viðurkennt að góð tengsl milli kennara og foreldra skipti máli fyrir Þáttur ráðgjafar í samstarfi leikskólakennara og foreldra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.