Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 83

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 83
81 Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008 Aðferð Þátttakendur Í heildarúrtakinu úr Reykjavík og af landsbyggðinni voru 147 leikskólakennarar. Svör bárust frá 130 einstaklingum sem er rúmlega 88% svörun. Af þeim 130 sem svöruðu listanum voru 62 (47,7%) af höfuðborgar- svæðinu og 68 (53,3%) af landsbyggðinni. Af þeim sem svöruðu spurningum um starfsaldur hafði tæpur helmingur eða 63 (49,2%) starfað 10 ár eða skemur sem leikskólakennari og 65 (50,8%) höfðu starfað lengur en 10 ár. Menntun leikskólakennaranna var eftirfarandi: Meirihlutinn eða 72 (55,4%) hafði lokið prófi frá Fósturskóla Íslands en 46 (35,7%) voru með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands. Aðrir höfðu hlotið menntun sína erlendis og í öðrum skólum. Af þeim sem höfðu starfað 10 ár eða skemur voru 64,5% með B.Ed. gráðu frá Kennara háskóla Íslands og 12,7% með próf frá Fósturskóla Íslands. Í hópnum með lengri starfsaldur en 10 ár voru 95,5% með próf frá Fósturskóla Íslands. Spurningalisti Rannsóknin hófst vorið 2006 er tekin voru hálfopin viðtöl við þrettán starfandi leikskólakennara í Reykjavík um samstarf þeirra við foreldra. Hvert viðtal tók um það bil eina klukkustund. Viðtölin voru hljóðrituð og greind. Að greiningu lokinni voru skoðaðir sérstaklega þeir þættir sem lutu að ráðgjöf og stuðningi við foreldra. Helstu þættir sem þá komu fram voru eftirfarandi: 1) Ráðgjöf við foreldra er umtalsverð í starfi leikskólakennara og má skipta henni í þrjú meginsvið, þ.e. um aga, þroska og uppeldi almennt. 2) Leikskólakennarar telja foreldra eiga í auknum erfiðleikum með aga á börnum og að tímaskortur sé meiri hjá foreldrum en áður. 3) Leikskólakennararnir höfðu trú á eigin fagþekkingu til að veita ráðgjöf en gerðu sér jafnframt grein fyrir því að þeir þyrftu að setja sér mörk. Á grundvelli þessara þátta var saminn spurningalisti þar sem kannaðir voru nánar þeir þættir sem komu fram í greiningu viðtalanna. Viðtölin voru þannig nýtt sem forrannsókn, en það töldu höfundar nauðsynlegt þar sem lítið var til um rannsóknir á þessu sviði hér á landi. Spurningalistinn samanstóð af 37 atriðum. Spurningarnar voru lokaðar og með mismörgum svarmöguleikum. Byrjað var á að kanna umfang ráðgjafar með því að spyrja hvort þátttakendur teldu ráðgjöf til foreldra vera hluta af starfi sínu, hvort þeir teldu ráðgjöf hafa aukist á síðustu árum og þá hvers vegna. Spurt var um algengi ráðgjafar, hversu oft leikskólakennararnir teldu foreldra leita ráðgjafar á sviði uppeldis, aga og þroska og einnig hversu oft kennararnir og leikskólinn hefðu frumkvæði að ráðgjöf á þessum sviðum. Spurt var hvort leitað væri eftir ráðgjöf í öðrum málum en þeim sem snertu börnin, hvort þátttakendur álitu það hluta af starfi sínu að ráðleggja foreldrum um persónuleg mál og hvort þeir teldu sig þurfa að setja sér mörk í þeim efnum. Til að kanna viðhorf þátttakenda til fagþekkingar sinnar voru þeir spurðir hvort þeir litu á sig sem sérfræðinga á sviði uppeldis og menntunar ungra barna, hvort þeir teldu foreldra vera sama sinnis og hvort þeir teldu fólk hafa meiri trú á fagþekkingu leikskólakennara nú en áður. Þátttakendur voru spurðir um viðhorf til agavandamála og tímaskorts hjá foreldrum, hvort þeir teldu agavandamál hafa aukist og hvort þeir teldu foreldra eiga erfiðara með að setja börnum sínum mörk en áður. Þá var spurt hvort leikskólakennarar fyndu fyrir auknum tímaskorti foreldra og hvort þeir teldu foreldra hafa of lítinn tíma til samskipta við leikskólakennara. Auk þessa voru bakgrunnsbreyturnar aldur, starfsaldur og menntun þátttakenda kannaðar. Framkvæmd Spurningalistinn var lagður fyrir í tveimur áföngum. Vorið 2006 var hann lagður fyrir 63 leikskólakennara í Reykjavík. Leikskólarnir voru valdir af lista yfir leikskóla Reykjavíkur sem voru skráðir í stafrófsröð á heimasíðu Þáttur ráðgjafar í samstarfi leikskólakennara og foreldra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.