Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 102

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 102
100 Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008 færni, stjórnunarfærni og sjálfsstjórn. Niðurstöður fræðilegrar greiningar benda til þess að styðja þurfi kennaranema við að ná hæfni í að beita eigin þekkingu og viðhorfum í starfi og í að beita félagslegum náms- og starfsaðferðum svo að þeir menntist í átökum sínum við það öryggisleysi sem einkennir kennarastarf í nútímasamfélagi. Að lokum: Hvers konar starfshæfni? Ljóst er að notkun hæfnihugtaksins hefur bæði kosti og galla. Gallarnir felast m.a. í því að tilhneiging er til að tengja hugtakið frammistöðu og sýnilegum árangri og nota þar með of þröngar skilgreiningar. Einnig geta skilgreiningar verið svo breiðar að þær verði óljósar og þar með ónothæfar. Hættur eða ókostir við notkun hugtaksins verða ekki tíundaðir frekar í grein þessari. Kosti þess að bæta hæfnihugtakinu við fagmennskuhugtakið í markmiðssetningum í kennaranámi tel ég þá að hæfni vísar til athafna eða til þess sem kennarar eiga að geta gert í starfi. Nám merkir að getan til að takast á við viðfangsefni af ýmsu tagi, huglæg og verkleg, eflist. Markmið kennaranáms á Íslandi er að hafa áhrif á margþætta þekkingu, viðhorf og hæfni kennaranema (Menntamálaráðuneytið, 2007). Með hæfnihugtakinu er þá vísað til þess að neminn þarf að geta beitt þekkingu og viðhorfum í athöfnum án þess að slakað sé á kröfum um fagmennsku. Samkvæmt þeim fræðimönnum sem hér hefur verið vitnað til – og tengja fagmennsku við starfshæfnihugtakið – felst fagleg starfshæfni kennara annars vegar í hæfni til athafna og hins vegar í þekkingu og skilningi á fræðasviði kennarastarfsins sem byggist á siðfræði ekki síður en þekkingarfræði. Aukin starfshæfni er talin felast í því að kennarar eða kennaranemar geti brugðist æ fagmannlegar við í starfinu (Edwards og D’Arcy, 2004). Sjálfur þekkingargrunnurinn þarf að sjálfsögðu sífellt að vera í endurskoðun, enda tengist hann óhjákvæmilega menningarlegri umgjörð skólastarfs sem breytist stöðugt. Einnig þarf að ræða inntak fagmennskuhugtaksins. Hvað varðar hugmyndir um það hvernig nám kennaranema fer fram, þ.e. hvernig starfshæfni þeirra breytist, tel ég óhjákvæmilegt að taka mið af félagslegri sýn á námshugtakið. Hvorki nægir að beina athyglinni að frammistöðu einstaklinga né að því sem gerist innra með þeim. Nám einstaklinga tengist alltaf stærri heild sem einnig þróast og breytist. Beina þarf athyglinni að samvirkni þessara ferla. Huga þarf að þeirri ögrun og stuðningi sem felst í námssamfélögum og faglegri leiðsögn á vettvangi og jafnframt að því félagslega samhengi og menningu sem kennarastarf í nútímasamfélagi tilheyrir. Sífellt þarf að leita svara við spurningunni: Hvers konar starfshæfni þurfum við að efla meðal kennaranema til að þeir ráði sem best við flókin og síbreytileg viðfangsefni kennara í nútímasamfélagi? Niðurstöður mínar og annarra rannsakenda benda til þess að kennaranemar og kennarar telji sig þurfa að ná tökum á persónulegri hæfni ekki síður en faglegri og hagnýtri hæfni sem tengist kennarastarfinu. Mörgum spurningum um það með hvaða hætti best sé að stuðla að slíkri hæfni er ósvarað. Jafnframt er nauðsynlegt að huga að því hvernig styðja megi kennaranema í því að hefja sig frá nálægð við eigin persónu til faglegrar víðsýni, frá öryggisleysi einstaklingsins yfir í það að geta nýtt sér stuðning annarra í krefjandi starfi. Abstract The aim of teacher education: Competence and professionalism The objective of the article is to give insight into the development and use of the concept of competence in connection with teacher education in the last 50-60 years. In addition to providing a historical overview, the article sheds light on how the concept of competence is related to a paradigm which emphasizes reflection and professionalism, the concept of learning, and changes in the teacher role in Ragnhildur Bjarnadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.