Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Blaðsíða 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 9 Borce llievski, þjálfari KFÍ í körfubolta, var rændur þegar hann var gestur á Hótel Cabin. Þjófurinn tók allt sem Ilievski var með á leið heim til Makedóníu. í stað þess er hann fastur hér á landi og bíður eftir pappír- um. Ilievski grunar starfsmenn hótelsins um græsku því engin ummerki voru um innbrot. Hótelstjórinn hafnar alfarið ásökununum. Formaður KFÍ styður Ilievski í málinu. GRUNAR STARFSMANN UM ÞJOFNAÐ BENEOIKT BÓAS HINRIKSSON blaðamadur skrifar: benni@dv.is „Þetta var ekki alveg það sem ég átti von á hér á íslandi. Kannski á Balkanskaganum en ekki hér," seg- ir Borce Ilievski, körfuboltaþjálfari KFÍ, sem missti allt sitt í ráni á Hót- el Cabin. Ilievski skráði sig inn á hótel- ið 25. maí síðastliðinn. Samdæg- urs fór hann á Café París ásamt fé- laga sínum og vini Jovan Zdraveski, körfuboltamanni í Stjömunni. Þar stoppuðu þeir í klukkutíma. Þeg- ar Ilievski var síðan keyrður aftur á hótelið brá honum heldur betur í brún. Allt hans var horfið. Töskurn- ar, 50 dvd-diskar með kennsluefni um körfubolta, vídeómyndavél, sími og passinn. „Þegar ég kom inn sá ég að það var allt tómt. Það var ekkert þarna inni. Ég var með þrjár töskur, ferða- tölvu og eina litía tösku. Vegabréf- ið mitt og flugmiði heim var í ferða- tölvutöskunni. Ég átti að fara heim degi síðar." Kært til lögreglu Ilievski segist hafa látið starfs- menn í móttöku hótelsins vita um leið og hann upp- götvaði að allt var horf- ið. Hann er þó mjög ósáttur við vdðhorf starfsmanna hótels- ins í kjölfarið. „Strák- urinn sem var að vdnna var mjög dóna- legur. Borce llievski Þjálfari KFl - körfubolta var rændur þegar hann dvaldi á Hótel Cabin. & Hann vdldi ekkert hjálpa mér." Kær- asta Jovans, sem er íslensk, kom þá á staðinn og hún fann sama viðmót frá þessum starfsmanni. Málið var kært til lögreglu og skýrsla tekin. Þar kemur fram að gluggi hafi verið opinn á herberg- inu og þar hafi þjófurinn far- ið inn. Seinna um kvöldið fannst hins vegar taskan í öðru herbergi á hótel- inu. „Ég held að þjófur- inn hafi komið inn í herbergið með lykli. Það er mín skoðun útafþvívdð fundum töskuna öðru herbergi rétt hjá. Það var hins vegar ekkert: henni. Þarna hvarf allur minn fróð- leikur sem ég er búinn að sanka að mér." Pappírar Ilievskis koma til lands- ins ffá London í þessari vdku. Þá ætíar hann heim til Makedóníu og hitta fjölskyldu og vdni. „Ég ætla að hlaða batteríin fyrir næsta tímabil og eyða tíma með fjölskyldunni." Formaðurinn tekur í sama streng Formaður KFÍ, Ingólfur Þor- leifsson, tekur undir ásakanirnar á bloggi sínu. „Það sem okkur finnst undarlegast er að hótelið segist ekki geta gert neitt þrátt fyrir að allt bendi til að starfsmaður hafi far- ið inn á herbergin. Tjónið er metið af lögreglu á þrjú hundruð þúsund krónur og það eru miklir peningar," skrifar Ingólfur á bloggið sitt. Hann bætir við að íþróttahreyf- ingin sé stór og standi saman. „Það er á hreinu að hvorki ég né nokkur á okkar vegum mun gista á þessu hót- eli í framtíðinni. íþróttahreyfingin er stór fjölskylda og þessi skilaboð munu berast víða. Það er ljóst að hótelið á eftir að verða af mörgum 300.000 kallinum í framtíðinni." Jóna Schevdng, hótelstjóri Hót- el Cabin, vdldi ekki tjá sig um málið en neitaði þeim ásökunum algjör- lega að herbergið hefði verið opnað með lykli. VERSLUN Hamarshöfða 1. Sími 511 1122 Skoðið FAMI bæklinga á www.ri-verslun.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.