Kópavogsblaðið - 01.12.2007, Page 22
22 Kópavogsblaðið DESEMBER 2007
Kvennakór Kópavogs -
á kafi í söng og bakstri!
Það hefur verið nóg að gera
hjá Kvennakór Kópavogs und-
anfarið, enda önninni senn að
ljúka og brátt kominn tími til
að kórkonur fari heim og baki,
hver fyrir sig, svona eins og
sautján mismuandi tegundir af
jólasmákökum.
Kórinn söng í fyrsta sinn á önn-
inni fyrir áheyrendur 25. nóvem-
ber sl. þegar tekin voru nokkur
lög á laufarbrauðsútskurðardegi
Foreldrafélags Digranesskóla.
Æfingar kórsins eru einmitt haldn-
ar, þriðjudag hvern, í sal Digranes-
skóla og því vel við hæfi að kór-
inn kæmi fram við þetta tækifæri.
Einnig vildu kórkonur um leið
þakka fyrir góða aðstöðu í skólan-
um í vetur. Þetta mun þó ekki vera
eina skiptið sem kórinn kemur
nálægt laufabrauðsútskurði fyrir
þessi jól því 1. desember sl. söng
Kvennakórinn í Gjábakka en þann
dag fór einmitt fram laufabrauðs-
útskurður og jólabasar ásamt
fleiri skemmtilegum uppákomum.
Kvennakórinn mun standa fyrir
kökubasar í Garðheimum næsta
laugardag en þar verða glæsilegar
eðaltertur á boðstólum frá því að
verslunin opnar og meðan birgðir
endast. Um kl. 15.30 mun kórinn
taka lagið fyrir þá sem þar verða
staddir.
Á þrettándanum, 6. janúar kl.
15.00, mun Kvennakór Kópavogs
ásamt Karlakór Kópavogs halda
tónleika í Hjallakirkju. Sungin
verða bæði íslensk og erlend lög.
Sungið við laufabrauðsútskurð í Digranesskóla.
������ �
� ���������
���������������
����������
������������������������������
2 dálkar = 9,9 *10
Frönsk rómantísk heimilisvara
frá Comptoir de Famille
Eineltisstefna Lindaskóla
í stöðugri endurskoðun
Lindaskóli hefur haft mótaða
eineltisstefnu nokkur síðustu ár
sem hefur síðan verið í aðlög-
un að skólastarfinu sjálfu. Á
sl.hausti var hún endurskoðuð
og síðan kynnt á kennarafundi
og samþykkt þar. Eineltisstefnan
var einnig kynnt í foreldra- og
nemendaráði.
En hvað er einelti? Það er nokk-
uð skilgreint í eineltisstefnu Linda-
skóla, en það telst einelti þegar
um ítrekað ofbeldi er að ræða
gagnvart sama eða sömu einstak-
lingum og getur það bæði verið
líkamlegt og andlegt. Gunnsteinn
Sigurðsson, skólastjóri, segir að
einelti sé mál sem þurfi að vera
í sífelldri endurskoðun því það
séu oft mjög erfið mál, og stund-
um geti einelti verið í gangi gagn-
vart einstaka nemanda svo árum
saman án þess að það uppgötvist.
Samheldni, samvinna og tjáskipti
nemenda, foreldra og starfsmanna
skólans sé þar helsta mótvægið.
Það sem einkennir einelti
• Einelti nær stundum yfir langt
tímabil og gerir líf þolandans mjög
erfitt.
• Einstakur atburður telst ekki
einelti.
• Ójafnvægi er í styrkleikasam-
bandi milli gerenda og þolenda.
Sá sem verður fyrir eineltinu ver
sig ekki alltaf sjálfur heldur lætur
það yfir sig ganga.
En fyrirbyggjandi aðgerðir eru
auðvitað það besta í þessu sam-
bandi. Lindaskóli hefur frá upp-
hafi lagt áherslu á góð samskipti
við foreldra t.d. með fréttabréfum,
bekkjarpóstum og fjölskylduhátíð
þannig að foreldrar finni sig vel-
komna í skólanum bæði þegar vel
gengur og eins ef eitthvað bjátar
á. Útivist er skipulögð og yngri
nemendur velja sér leiksvæði í
frímínútum. Hópefli er skipulagt
fyrir nemendur, bæði í gegnum
kennslu í lífsleikni og með skipu-
lögðum ferðum nemenda.
Í lífsleikni er lögð áhersla á að
nemendur læri góð samskipti. Öll-
um nemendum verður að vera
ljóst hvað einelti er og að einelti
er ekki liðið í Lindaskóla. Nemend-
ur eru hvattir til að láta vita ef
þeir vita af nemanda sem verður
fyrir einelti.
Foreldrar bera ábyrgð á
vinahópum
Bekkjarfundir eru haldnir reglu-
lega í öllum bekkjum skólans. Í
mörgum bekkjum hjá yngri nem-
endum eru starfandi vinahópar.
Foreldrar bera ábyrgð á fram-
kvæmd og skipulagi þeirra, en
umsjónakennari getur aðstoðað
þá við að koma hópunum af stað.
Fylgst er með líðan nemenda með
tengsla- og eineltiskönnunum sem
lagðar eru fyrir a.m.k. einu sinni á
ári en námsráðgjafi skólans hefur
umsjón með þeim.
Nýir nemendur fá sérstakar mót-
tökur hjá deildarstjóra við skóla-
byrjun. Þeir fá síðan viðtal við
námsráðgjafa nokkrum vikum eft-
ir skólabyrjun. Vinateymi er í öll-
um bekkjum og taka þá til dæmis
tveir nemendur í bekknum að sér
að kynna skólann og styðja nýjan
nemanda félagslega. Undirbúning-
ur er hjá umsjónarkennara og/eða
námsráðgjafa.
Í niðurlagi eineltisstefnu Linda-
skóla segir að nauðsynlegt sé að
allir þeir sem hafa grun um ein-
elti komi þeim upplýsingum til
umsjónarkennara svo hægt sé að
taka sem fyrst á málinu. Í öllum
tilfellum er námsráðgjafi til aðstoð-
ar í eineltismálum, á hvaða stigi
málsins sem er.
Aðventan í Digraneskirkju
Annar sunnudagur í aðventu, 9.
desember, messa og sunnudaga-
skóli kl. 11.00, prestur Magnús
Björn Björnsson. Stoppleikhúsið
kemur í sunnudagaskólann í kapel-
lu á neðri hæð og sýnir leikritið
“Jólin hennar Jóru”. Aðventustund
á vegum æskulýðsstarfsins Meme
kl. 20.00, ræðumaður: Erla Guðrún
Arnmundardóttir, æskulýðsfulltrúi
Háteigskirkju. Gospelhljómsveit
Meme sér um tónlistina. Kaffisala
til styrktar Mæðrastyrksnefndar
Kópavogs.
Þriðji sunnudagur í aðventu, 16.
desember, messa og sunnudaga-
skóli kl. 11.00, prestur sr. Yrsa Þórð-
ardóttir. Jólastund fjölskyldunnar
kl. 16.00. Þar munu Söngvinir, kór
aldraðra í Kópavogi og Skólakór
Kársness undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur, syngja gömul og ný
aðventu- og jólalög. Stundin mið-
ast fyrst og fremst við sönginn,
rifja upp gamalkunnug aðventu- og
jólalög og heyra jafnvel eitthvað
sem ekki er eins kunnuglegt. Eft-
ir jólastundina er boðið upp á
heitt súkkulaði og piparkökur í
safnaðarsal.
Fjórði sunnudagur í aðventu
- Þorláksmessa, barnaguðsþjón-
usta í kirkjunni kl. 11.00, hátíðleg
jólastund fyrir alla fjölskylduna á
vegum sunnudagaskóla Digranes-
kirkju.
Aðfangadagur jóla, 24. desember
kl. 18.00, aftansöngur. Hátíðartón
sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið
af kór Digraneskirkju. Prestur sr.
Gunnar Sigurjónsson, organisti
Kjartan Sigurjónsson, einsöngur
Einar Clausen.
Aðfangadagur jóla, 24. desember
kl. 23.30, aftansöngur. Hátíðartón
sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið
af kór Digraneskirkju. Prestur sr.
Yrsa Þórðardóttir, organisti Kjart-
an Sigurjónsson, einsöngur Helga
Rós Indriðadóttir.
Jóladagur, 25. desember kl.
14.00, hátíðarguðsþjónusta. Hátíð-
artón sr. Bjarna Þorsteinssonar
sungið af kór Digraneskirkju, sr.
Gunnar Sigurjónsson prédikar og
sr. Yrsa Þórðardóttir þjónar fyrir
altari. Einsöngur Einar Clausen.
Annar jóladagur, 26. desember
kl. 11.00, messa, prestur sr. Yrsa
Þórðardóttir. Jólastund aldraðra
fimmtudaginn 27. desember kl.
14.00. Jólastund aldraðra er eitt af
samstarfsverkefnum Digranes- og
Hjallakirkju. Á jólastundinni er boð-
ið upp á vandaða dagskrá ásamt
dýrindis tertum og öðru góðgæti.
Allir eru velkomnir.
Jólaball sunnudagaskólans
sunnudaginn 30. desember kl.
11.00. Jólaballið er í kapellunni á
neðri hæð. Sungin eru lögin sem
tilheyra jólaböllum um Þyrnirós,
Adam sem átti syni sjö og öll þessi
venjulegu jólaballalög. Kjartan org-
anisti spilar á harmonikku af þessu
tilefni. Jólasveinar koma í heim-
sókn og allir fá eitthvað góðgæti
með sér heim. Eftir jólaballið er
heitt súkkulaði og piparkökur.
Gamlársdagur 31. desember
kl. 18.00, aftansöngur, sr. Gunnar
Sigurjónsson prédikar og sr. Yrsa
Þórðardóttir þjónar fyrir altari.
Organisti Kjartan Sigurjónsson og
einsöngur Þórunn Freyja Stefáns-
dóttir.
Þrettándinn, 6. janúar 2008. Tón-
listarguðsþjónusta á vegum Kjart-
ans Sigurjónssonar, organista Digra-
neskirkju og sóknarnefndar.