Kópavogsblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 27
27KópavogsblaðiðDESEMBER 2007
GETRAUNANÚMER
Brei›abliks
ER 200
GETRAUNANÚMER
HK
ER 203
HK-ingurinn Rúrik Gíslason
var fyrirliði 21-árs landsliðs
Íslands í fyrsta skipti þegar það
vann frækilegan sigur á Belgum
í Brussel, 2-1, í Evrópukeppn-
inni í lok nóvembermánaðar.
Rúrik, sem er 19 ára og verð-
ur því gjaldgengur í liðið lengi
enn, tók við fyrirliðabandinu af
Bjarna Þór Viðarssyni sem var í
leikbanni.
Rúrik er þar með fyrstur HK-
inga til að gegna stöðu lands-
liðsfyrirliða en þess má geta að
hann er orðinn næstleikjahæst-
ur af þeim sem nú skipa 21-árs
landsliðið, með 10 landsleiki í
þessum aldursflokki.
Úr fyrri leiknum í Digranesinu.
Á lokahófi Sundssambands
Íslands var sunddeild Breiða-
bliks afhentur hvatningarbikar
SSÍ. Það er mikið ánægjuefni
fyrir sunddeild Breiðabliks, en
ekki síður hvatning.
“Þetta er tvímælalaust mikil
viðurkenning fyrir okkur, og alla
sem lagt hafa lóð á vogarskálarn-
ar til að efla sund í Kópavogi.
Það er gaman þegar tekið er
eftir þegar verið er að vinna að
góðum hlutum. En góðir hlutir
gerast hægt, við höfum verið að
vinna markvisst að uppbyggingu
deildarinnar undanfarin ár, og
sjáum fram á mjög bjarta tíma í
sundinu í Kópavoginum. Þetta
er okkur hvatning til að gera
enna betur á næstu misserum og
árum. Það má einnig geta þess
að stjórn Breiðabliks sæmdi okk-
ur svipuðum verðlaunum sl. vor
frá Breiðablik. Það er því gaman
í sunddeildinni um þessar mund-
ir,” segir Jónas Halldórsson, for-
maður deildarinnar.
Í lýsingu dómnefndar á vali á
Hvatningabikarnum segir m.a. að
tekið sé tillit til þess hvaða félag
hafi komið mest á óvart sundár-
ið þar á undan. Taka skal tillit til
uppbyggingar, áhuga, eljusemi og
þátttöku félags og aðstandenda
félagsins í sundatburðum og mót-
um. Miðað skal við að félag sem
hlýtur Hvatningarbikarinn hafi
á liðnu sundári náð verulegum
árangri í innri uppbyggingu og
fjölgað sundfólki í landinu.
Sunddeild Breiðabliks hlaut
þennan bikar meðal annars af
því að sunddeildin hefur endur-
skipulagt æfingaumhverfi sitt
og innri starfsemi. Í stað þess
að vera með einn og einn góðan
sundmann er deildin komin með
góða breidd inn í sunddeildina
og það skapar afreksárangur til
lengri tíma. Góð uppbygging skil-
ar árangri til lengri tíma. Sund-
deild Breiðabliks er með 2 sund-
menn í aldursflokkahópi SSÍ og
2 sundmenn í unglingalandsliði
SSÍ.
Sunddeild Breiðabliks
hlaut hvatningabikar SSÍ
Skíðadeild Breiðabliks
35 ára
Það var kaldan dag um miðj-
an desember árið 1972 að hóp-
ur fólks hittist í félagsaðstöðu
Breiðabliks í Félagsheimili
Kópavogs. Fundarmenn höfðu
farið saman á skíði og ákváðu
að tímabært væri að stofna
skíðadeild innan Ungmennafé-
lagsins Breiðabliks. Á þessum
stofnfundi var Guðmundur Ant-
onsson kosinn fyrsti formað-
ur deildarinnar en auk hans í
þessa fyrstu stjórn voru kosin,
Sigurjón Hallgrímsson, Guðlaug-
ur Ómar Friðþjófsson, Sigríður
Erla Guðmundsdóttir og Bene-
dikt Bjarnason. Varamenn voru
kosnir Guðmundur Hafsteins-
son, Sigríður Ásgeirsdóttir og
Haraldur Erlendsson. Skíðadeild
Breiðabliks heldur því upp á 35
ára afmæli deildarinnar 15. des-
ember nk.
Hjólhýsi og toglyfta
Á þessum fyrsta fundi var
ákveðið að koma á reglulegum
skíðaferðum á vegum félagsins
og var fyrsta ferðin í Bláfjöll far-
in þann 30. desember þ.á. Strax
á nýju ári 1973 var síðan farið
um hverja helgi á skíði í Bláfjöll,
ef veður leyfði. Samið hafði ver-
ið við Strætisvana Kópavogs
um að koma skíðafólkinu upp í
Bláfjöll og var því mjög vel tek-
ið. Á þessum árum var engin
aðstaða til staðar í Bláfjöllum
hvorki hús né lyfta. Félagar úr
Breiðablik sáu að nauðsynlegt
væri að gera einhverjar úrbæt-
ur til að fjölga iðkendum og búa
þeim betri aðstæður. Stjórnin
tók því á leigu hjólhýsi sem kom-
ið var fyrir í Bláfjöllum svo hægt
væri að fara inn og hlýja sér eða
borða nesti sitt. Jafnframt stóð
stjórnin fyrir því mikla stórvirki
að kaupa nýja dráttarvél, láta
smíða á hana spil og tengja við
hana ýmsan búnað svo hægt
væri að nýta hana sem toglyftu
á skíðasvæðinu. Þrátt fyrir frum-
stæðan búnað gekk starf deildar-
innar vel.
Fjórum árum eftir stofnun
deildarinnar eða árið 1976 var
keypt skíðalyfta sem tekin var
í notkun ári síðar. Sama ár var
einnig keyptur skíðaskáli í sam-
vinnu við bæjarstjórn Kópavogs
en skíðadeildin sá um rekstur
hans. Skíðaskálinn var strax
mjög vel nýttur og fengu grunn-
skólar Kópavogs og Hafnarfjarð-
ar þar einnig aðstöðu og á skíða-
svæði deildarinnar. Boðið var
upp á skíðakennslu á svæðinu
og var það fjölsótt.
Þrátt fyrir að komin væri ný
lyfta fjölgaði skíðafólki það mik-
il að lyftan annað því vart. Fljót-
lega vaknaði því mikill áhugi inn-
an deildarinnar að koma upp
nýrri skíðalyftu á skíðasvæði
félagins í Drottningargili í Blá-
fjöllum. Stofnað var sérstakt
stryktarfélag deildarinnar árið
1980. Megin hlutverk þessa
styrktarfélags var að afla fjár,
kaupa og reisa nýja skíðalyftu.
Tveim árum síðar, árið 1982, var
síðan ráðist í að byggja nýjan
skíðaskála og jafnframt var lagt
rafmagn fyrir flóðlýsingu svo
skíðamenn gætu skíðað þó væri
farið að rökkva.
Skíðadeildin efldist mjög mik-
ið á þessum árum og fjölgaði
félögum mikið. Ljóst var að
skíðaskálinn var ekki nægilega
hentugur fyrir starfið svo ákveð-
ið var að selja hann ásamt lyft-
unni til Bláfjallarnefndar. Sam-
hliða var gerður samningur við
Kópavogsbæ um byggingu veg-
legs skíðaskála á öðrum stað í
Bláfjöllum sem var vígður 16.
febrúar 1991 og afhentur félag-
inu til rekstar.
Hér hefur verið rakin í stut-
tu máli framkvæmdir á vegum
skíðadeildar Breiðabliks frá
stofnun deildarinnar. Skíðaiðk-
endum í dag finnist það vafa-
laust frumstæður búnaður sem
deildin byrjaði með fyrir 35
árum en þetta var mikið fram-
faraspor fyrir skíðamenn Kópa-
vogs á þessum árum. Allt frá
stofnun deildarinnar hafa stjórn-
ir hennar stefnt markvist að því
að bæta aðstöðu skíðafólks á
svæði félags-
ins í Blá-
fjöllum. Öll
aðstaða til
skíðaiðkunn-
ar hefur því
sífellt verið
að batna og
hefur það
s ý n t s i g
í s töðugt
betri árangri
k e p p n i s -
fólks. Skíða-
deildin eignaðist íslandsmeist-
ara árið 1993 Heiðar Árnason en
síðan þá hefur deildin eignast
fjölmarga íslandsmeistara. Jafn-
framt hefur skíðadeild Breiða-
bliks átt á undanförnum árum
nokkra fulltrúa í landsliði og ung-
lingalandsliði SKÍ. Blikinn Sindri
Már Pálsson fulltrúi félagsins í
landsliði SKI náði þeim frábæra
árangri að fara á Vetrar Ólymp-
íuleikana í Torino á Ítalíu. Hann
keppti fyrstur Íslendinga í bruni
síðan 1960 en einnig keppti
hann í alpatvíkeppni og svigi og
var árangur hans góður. Skíða-
deild Breiðabliks hefur séð um
framkvæmd Unglingameistara-
móts Íslands í nokkur skipti og
hefur það ætíð tekist vel.
Framfarir hjá skíðadeild
Breiðabliks og sá góði árang-
ur sem keppendur hafa náð
má þakka því mikla starfi sem
stjórnir, þjálfarar og hið öfluga
foreldra- og félagsstarf hafa lagt
að mörkum á þessum 35 árum
sem skíðadeildin hefur starfað.
Aðalstjórn Breiðabliks óskar
skíðadeild félagsins til hamingju
með afmælið og þakkar jafn-
framt stjórnum, þjálfurum, iðk-
endum og öllum öðrum félögum
sem komið hafa að starfi skíða-
deildar Breiðabliks á þessum
35 árum fyrir hið góða og mikla
starf deildarinnar. Það er von
okkar að það snjói vel í Bláfjöll-
um í vetur svo iðkendur geti not-
ið þess að skíða um fjöllin blá.
Sigurrós Þorgrímsdóttir,
formaður Aðalstjórnar
Breiðabliks
Sigurrós
Þorgrímsdóttir.
Íþróttir í Kópavogi
Íslandsmeistarar í hópkata karla 2007, úr Breiðablik.
Meistaraflokkur karla í hand-
bolta tapaði naumlega fyrir
danska liðinu FCK í fyrri leik lið-
anna í Evrópukeppni félagsliða,
lokatölur 24 - 26 fyrir FCK. HK
byrjaði leikinn eins og statistar,
Danir komust í 11 - 2 áður en
HK vaknaði af Þyrnirósarsvefn-
inum. Staðan í hálfleik var 15
- 11 fyrir FCK.
HK hafði öðlast sjálfstraust í
seinni hálfleik og tókst að jafna
23-23 og með meiri einbeitingu
hefði liðið getað komist yfir, en
lokatölur urðu 24-26.
Engu líkara var en HK væri á
heimavelli í seinni leiknum í Kaup-
mannahöfn, slíIkur var stuðning-
ur þeirra sem komu að heiman,
og eins þeirra sem bættust við í
Kaupmannahöfn. En FCK var ein-
faldlega of sterkt fyrir HK og vann
leikinn 36-24. En HK-strákarnir
geta borið höfuðið hátt þótt þátt-
töku í Evrópukeppninni sé lokið
að sinni.
Frá lokahófi SSÍ þar sem Blikar fengu hvatningabikar SSÍ.
Rúrik Gíslason
fyrsti landsliðs-
fyrirliðinn úr HK
HK tapaði báðum
leikjunum gegn FCK