Jökull - 01.12.1958, Side 3
JÖKULL
Á R S R I T
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAGS ÍSLANDS
8. ÁR REYKJAVÍK 1958
SIGURÐUR ÞÓRARI NSSON:
Vatnajökulsferðir Jöklarannsóknafélagsins 1958
(With English summary)
VORFERÐIN
Könnunarflug. — Vorið 1958 elndi Jöklarann-
sóknafélag íslands til ferðar á Vatnajökul, svo
sem venja hefur v'erið nokkur undanfarin ár.
Að þessu sinni var eitt af aðalverkefnunum að
koma upp birgðaskemmu i Jökulheimum, en
auk þess skyldi haldið til Grimsvatna og eitt-
livað víðar um jökulinn, ef veður leyfði. Var
ætlunin í fyrstu að leggja af stað laugardaginn
fyrir hvitasunnu, þ. e. 24. maí, en vegna lang-
varandi kulda í maí þótti sýnt, að eigi væri þá
orðið fært inn í Jökulheima, og var förinni því
slegið á frest. Þ. 23. maí flugu þeir Jón Eyþórs-
son og Sigurður Þórarinsson með Sigurði Jóns-
syni, skrifstofustjóra, í flugvél flugstjórnarinn-
ar inn yfir Jökulheima til að kanna leiðina.
Virtist sem ófært myndi bílum, er kæmi inn
fyrir Vatnaöldur, og var ákveðið að fresta brott-
för leiðangursins til föstudags 6. júní. Um flug-
ferðina er það enn fremur að segja, að flogið
var það hátt yfir Jökulheimum, að vel sá til
Svíahnúka, og var engin missmíði að sjá á jökl-
inum inn af Tungnárbotnum, en jökuljaðar
sleiktur og þunnur að sjá langt austur fyrir
Langasjó. Heim var flogið yfir Eldgjá, Kötlu
og Eyjafjallajökul í óvenju góðu skyggni. Sást
greinilega úr flugvélinni, að syðsta gígaröð
Eldgjár gengur eitthvað inn undir Mýrdals-
jökul, því það hattar fyrir a. m. k. einum all-
stórum gíg undir jökuljaðrinum.
Enn sást votta fyrir Kötlusigunum frá 1955,.
en mjög voru þau grunn orðin.
Vélin lenti í Reykjavík kl. 17,38 eftir nær
214 tíma flug.
Ferð til Jökulheima. Skemmugrunnur steypt-
ur. — Föstudagskvöldið 6. júní kl. 23 lagði 27
manna hópur af stað til Jökulheima. Þar af
ætluðu 20 á Vatnajökul, en auk þeirra voru
með í för Jón Eyþórsson, Skúli Skúlason, rit-
stjóri, Þórhildur Þorleifsdóttir (13 ára) og bíl-
stjórarnir Gunnlaugur Jónsson, Halldór Eyjólfs-
son, Haukur Hallgrímsson og Þórir Sveinbjörns-
son. Bílar voru fimm, auk snjóbílanna þriggja,
Gusa, Jökuls I og Grendils.
Ferðin inneftir gekk að óskum. Veður var
stillt og bjart. 'Tungnaá góð yfirferðar og snjór
ekki til verulegs trafala, þótt krækja yrði fram-
hjá nokkrum sköflum milli Ljósufjalla og Jökul-
heima. Komið var að skálanum kl. 16,50 þ. 7.
júni og var þegar að kvöldi þess dags byrjað
að grafa fyrir grunni skemmunnar, en henni
var valinn staður á malarflötinni við hraun-
jaðarinn skammt vestan við veginn upp að hús-
inu. Skemman var teiknuð af Stefáni Bjarna-
1
LANDSOÓKASAFN
22217o
ÍSLAIIDS